Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 20
■ ■ FUNDIR  12.00 Fjallað verður um óþekkt á vinnustað (Organizational Mis- behaviour) á hádegisverðarfundi FVH, birtingarform óþekktar, ástæður óþekkt- ar og leiðir til að bregðast við. Fundur- inn verður haldinn í Hvammi Grand Hótel Reykjavík og stendur 13.30. Fund- urinn er opinn öllum. Fyrirlesarar eru Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík, og Hjalti Sölvason, starfsþróunarstjóri Nýherja.  12.15 Náttúrufræðistofnun Íslands heldur Hrafnaþing á Hlemmi í sal Möguleikhússins nú í hádeginu. Guð- mundur A. Guðmundsson fuglafræðing- ur flytur erindið Eru milljón heiðlóur á Íslandi? Hrafnaþingin eru öllum opin meðan húsrúm leyfir.  12.30 Arkitektarnir Heba Hertervig, Hólmfríður Jónsdóttir og Hrefna Björg Þorsteinsdóttir í Arkibúllunni halda fyr- irlestur um eigin verk og vinnuaðferðir í Listaháskóla Íslands, Skipholti 1, stofu 113.  13.30 Fræðslu- og umræðufundur um atvinnumissi, áhrif hans á fólk og hvernig skynsamlegt er að bregðast við verður haldinn í Safnaðarheimili Dóm- kirkjunnar, Lækjargötu 14a, á horni Lækjargötu og Vonarstrætis. Á fundinum mun Garðar Vilhjálmsson, fræðslustjóri Eflingar, fjalla um stuðning við atvinnu- lausa og nauðsyn þess að vera tilbúinn til að læra og bæta við sig þekkingu.  16.15 Auður Torfadóttir dósent heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknar- stofnunar KHÍ um byrjendakennslu í ensku. Fyrirlesturinn verður haldinn í salnum Skriðu í Kennaraháskóla Ís- lands við Stakkahlíð og er öllum opinn.  16.30 Hólmfríður Garðarsdóttir, lektor í spænsku, heldur fyrirlestur á vegum Stofnunar Vigdísar Finnbogadótt- ur í erlendum tungumálum um jafnrétti fjölmenningar og fjöltyngis. Hólmfríður fjallar um það hvernig síbreytilegar áherslur í þýðingafræði nýtast til að ögra viðhorfum okkar. Fyrirlesturinn er hald- inn í stofu 201 í Odda og verður túlkað- ur á táknmál.  20.00 Guðmundur Oddur Magn- ússon, prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands, og Jón Ólafsson heimspekingur halda fyrirlestra í Hafn- arhúsinu í tengslum við sýningu á sov- éskum veggspjöldum frá sjötta og sjö- unda áratugnum. Sýningunni lýkur 27. apríl.  20.30 Í tilefni af útgáfu bókar- innar Ferðalok eftir Jón Karl Helga- son efnir bókaforlagið Bjartur til um- ræðufundar á Súfistanum við Lauga- veg um þjóðargrafreitinn og bein Jónasar Hallgrímssonar. Framsögu- menn verða Jón Karl og Adolf Frið- riksson, forstöðumaður Fornleifa- stofnunnar Íslands.  20.30 Tómas Grétar Gunnarsson fjallar um rannsóknir sínar á íslenska jaðrakaninum á fræðslufundi Fugla- verndarfélagsins, sem fer fram í stofu 101 í Odda, húsi félagsvísinda- og við- skiptadeilda Háskóla Íslands. ■ ■ TÓNLIST  20.00 Lúðrasveitin Svanur kveður stjórnanda sinn til 10 ára, Har- ald Árna Haraldsson, með tónleik- um í Loftkastalanum. Á efnisskránni eru verk á borð við West Side Story, Western Pictures, Os Pàssoros do Brasil, Czardas og Hornkonsert nr. 2 eftir Mozart. Einleikarar eru Ella Vala Ármannsdóttir og Styrmir Barkarson.  20.00 Píanóleikararnir Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Þorsteinn Gauti Sigurðsson halda tónleika fyrir tvö píanó í Salnum í Kópavogi. Þar leika þau þekkt verk eftir Brahms, Debussy, Milhaud, Fauré og Sjostakovitsj. Tónleik- arnir eru tileinkaðir minningu Árna Kristjánssonar píanóleikara. ■ ■ LEIKLIST  14.00 Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir gamanleikritið Forsetinn kemur í heimsókn í Ásgarði, Glæsibæ. Sýningum fer að ljúka.  20.00 Rauða spjaldið eftir Kjart- an Ragnarsson og Sigríði Margréti Guðmundsdóttur verður sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins.  20.00 Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare er sýnt á Litla sviði Borg- arleikhússins í uppfærslu Vesturports. ■ ■ SÝNINGAR  Yfirlitssýning á verkum Georgs Guðna stendur yfir í Listasafni Íslands.  Helgi Þorgils Friðjónsson er með einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann sýnir þar eingöngu ný málverk.  „Út um græna grundu“ nefnist mál- verkasýning Gunellu, sem nú stendur yfir í baksalnum í Galleríi Fold við Rauðarárstíg.  Tómas M. er með ljósmyndasýningu á kaffihúsinu Castro í Austurstræti. 20 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 6 7 8 9 10 11 12 APRÍL Miðvikudagur Þau Steinunn Birna Ragnars-dóttir og Þorsteinn Gauti Sig- urðsson eru ekki með nema tutt- ugu fingur samtals. Þeim veitti víst ekki af að vera með nokkra í viðbót í kvöld, þegar þau leika á tvö píanó á tónleikum í Salnum í Kópavogi. „Þetta er algjör handfylli, allir tíu puttarnir eru notaðir nánast stöðugt. Við þyrftum meira að segja að hafa nokkra til vara,“ segir Steinunn Birna. „Þetta ætti að vera h e l m i n g i auðveldara þegar tveir píanistar eru að spila, en það er þvert á móti helmingi erfiðara. Við erum lafmóð og bullandi sveitt eftir hverja æfingu, það gengur svo mikið á.“ Sjaldgæft er að heyra tvo pí- anóleikara leika fjórhent á sviði í einu. Enn sjaldgæfara er þó að sjá tvö píanó á sviðinu og leikið á þau samtímis, eins og boðið verður upp á í Salnum í kvöld. „Sennilega er það vegna þess að ekki mjög margir staðir hafa tvo flygla innanborðs,“ segir Steinunn Birna. „En í Salnum er þessi fína aðstaða með tveimur konsertflyglum.“ Þau Steinunn Birna og Þor- steinn Gauti héldu fyrst tón- leika af þessu tagi árið 1995 í Íslensku óper- unni. Húsfyllir varð á þeim tónleikum og þau þurftu að endurtaka leikinn þrisvar. Að þessu sinni hafa þau æft dagskrá með verk- um eftir Brahms, Debussy, Mil- haud, Fauré og Sjostakovitsj. „Þótt við þurfum að hafa heil- mikið fyrir því að læra þessa tón- list er mjög auðvelt að hlusta á hana. Þetta eru allt verk sem fólk þekkir, hreint gúmmulaði.“ Steinunn Birna segir að það hljóti líka að skila sér til áhorf- enda hvað þau sjálf hafa gaman af að spila þetta. „Píanóleikarar eru svo vanir því að vera einir á báti. Það er mjög sérstök upplifun að vera að þessu með öðrum píanista.“ gudsteinn@frettabladid.is ■ TÓNLEIKAR Tuttugu puttar á ferð og flugi Georg Guðnie n d u r v a k t i landslagið sem enginn hafði þor- að að líta við ára- tugum saman nema alþýðumál- arar sem héldu áfram að mála sófamálverkið fyrir alþýðu manna,“ segir Rúnar Helgi Vign- isson rithöfundur. „Landslags- hefðin er sterk meðal þjóðarinnar og samgróin þjóðerniskennd Ís- lendinga og þess vegna er sér- staklega áhugavert að skoða þessa endurvinnslu Georgs Guðna á íslensku landslagi.“ Mittmat Avis dagsleiga, helgarleiga, vikuleiga. Eyddu minna í bílinn en meira í sjálfan þig og þína. Kynntu þér tilboð Avis á bílaleigubílum. Hringdu í Avis sími 5914000 Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík – www.avis.is Við gerum betur Njóttu þ ess að ferðast um lan dið á góðum bíl Cakewalk sumar 2003 Höfum opnað verslun að Strandgötu 29. Hafnarfirði með frábærum vörum frá Cakewalk. Opnunartíminn er eftirfarandi: þriðjudaga til föstudaga frá kl. 16:00 til 18:00 Laugardaga frá kl. 12:00-14:00 Komdu og skoðaðu frábærar sumarvörur frá Cakewalk Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir „Forsetinn kemur í heimsókn“ gamanleikur með söngvum í Ásgarði, Glæsibæ miðvikudaga og föstudaga kl. 14.00 og sunnudaga kl. 15.00. Miðapantanir á skrifstofu s. 588-2111, einnig eru miðar seldir við innganginn. Laugavegi 32 561 0075 ÞORSTEINN GAUTI OG STEINUNN BIRNA Þau leika á tvö píanó í Salnum í Kópavogi í kvöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.