Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 2
2 9. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
“Nei, ég kann fáein orð og þau
eiga ekki við í samskiptum við
Impregilo.“
Forstjóri Landsvirkjunar á von á að ítalska verk-
takafyrirtækið Impregilo flytji með sér ítalskt
vinnuafl til starfa við Kárahnjúkavirkjun.
Spurningdagsins
Friðrik, kanntu ítölsku?
Starfsmenn fóru á
fund ráðherra
Allt stefnir í 40 milljón króna halla á rekstri Skógarbæjar. Lokað hefur verið fyrir iðjuþjálfun og
starfsmenn óttast uppsagnir. Elsa Friðfinnsdóttir segir viðurkenningu á að hækka þurfi greiðslu
með sjúklingum undir 67 ára aldri.
HJÚKRUNARHEIMILI Starfsmenn
hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar
gengu á fund heilbrigðisráðherra í
gær og afhentu aðstoðarmanni
hans, Elsu Friðfinnsdóttur, áskorun
til ráðherra um að auknu fé verði
varið í rekstur heimilisins. Í ár
stefnir allt í að halli á rekstri heim-
ilisins verði 40 milljónir. Því hefur
verið mætt með því
að loka fyrir alla
iðjuþjálfun en það
bitnar fyrst og
fremst á sjúklingun-
um, að sögn Hrefnu
Sigurðardóttur, for-
stöðumanns Skógar-
bæjar.
H r a f n h i l d u r
Gísladóttir, talsmaður starfsmanna,
segir ekki annað vaka fyrir starfs-
fólki en að benda á það ástand sem
hafi verið og muni skapast ef ekk-
ert verði að gert. „Heimilismenn og
sjúklingar hafa ekki tök á að mót-
mæla þeim niðurskurði sem bitnar
harðast á þeim. Við lítum svo á að
við getum lagt okkar af mörkum,“
segir hún.
Í bréfi starfsmanna segir meðal
annars: „Starfandi er kjarni af góð-
um og faglega færum starfsmönn-
um sem hafa metnað fyrir hönd
þjónustunnar og er annt um hag
sjúklinga sinna. En þar sem á að
takmarka fjármagn til stofnunar-
innar eru störf okkar í hættu.
Þar sem sjúklingarnir geta ekki
sjálfir sett fram kröfur sínar um
þjónustu eru starfsmenn og að-
standendur þeirra talsmenn.“
Elsa Friðfinnsdóttir, aðstoðar-
maður ráðherra, sagði að um síð-
ustu áramót hafi rekstarformi
Skógarbæjar verið breytt. Áður
hafi heimilið verið á föstum fjárlög-
um, óháð því hve mörg hjúkrunar-
rými voru nýtt. „Nú er Skógarbær á
daggjöldum sem ákvarðast af
svokölluðu RAI mati. Það þýðir að
greitt er meira fyrir sjúklinga sem
eru þyngri í hjúkrun. Á fundinum í
gær með starfsfólkinu kom fram að
útlit er fyrir allt að 40 milljón króna
halla um áramót ef fram heldur
sem horfir. Ráðuneytið hefur fallist
á að á Skógarbæ séu sjúklingar sem
þurfi hærra RAI mat og ákveðið að
hækka matið fyrir þá sjúklinga sem
eru undir 67 ára aldri,“ segir Elsa.
Hún segir að með því muni hall-
inn lækka um helming. „Ráðuneytið
er meðvitað um að það tekur tíma
að aðlagast nýju kerfi og ákveðið
hefur verið að gefa þeim heimilum
þriggja ára aðlögunartíma.”
bergljot@frettabladid.is
Ráðherrar geta ekki sæst á fundarstað:
Opinber heimsókn í uppnámi
JERÚSALEM, AP Ekkert varð af því að
Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, fundaði með
Tommy Lapid, dómsmálaráðherra
Ísraels, í gær. Fischer er í opin-
berri heimsókn í Ísrael. Ráðherr-
arnir gátu ekki komið sér saman
um hvar þeir ættu að hittast.
Lapid vildi fá Fischer á skrif-
stofu sína sem er staðsett í Aust-
ur-Jerúsalem. Ísraelar hertóku
þann hluta borgarinnar í sex daga
stríðinu árið 1967. Það gat Fischer
ekki sætt sig við. „Sem utanríkis-
ráðherra, ekki sem Joschka
Fischer, heldur sem utanríkisráð-
herra verð ég að fara að stefnu
Evrópusambandsins, Þýskalands
og fjölda samstarfsþjóða Ísraels.“
Fischer hefur fundað með
nokkrum ísraelskum ráðherrum
auk forseta Ísraels.
Tommy Lapid sagði að það
kæmi ekki til greina að láta gest
sinn segja sér fyrir um hvar skrif-
stofa sín ætti að vera. Þetta sner-
ist ekki um Joschka Fischer eða
Þýskaland heldur rétt Ísraelsríkis
til að ráða sér sjálft. ■
GUÐMUNDUR JÓNSSON
Fénu verður varið til að koma á laggirnar
aðhlynningardeild á höfuðborgarsvæðinu.
Pokasjóður
verslunarinnar:
Byrgið
fær styrk
STYRKUR Pokasjóður verslunarinn-
ar afhenti á þriðjudag Guðmundi
Jónssyni, forstöðumanni Byrgis-
ins, fimm milljóna króna styrk úr
sjóðnum. Peningunum verður
varið til að koma á fót aðhlynn-
ingardeild á höfuðborgarsvæðinu
sem verður upphafið að lang-
tímameðferð sem verður áfram
haldið á nýju heimili Byrgisins á
Efribrú í Grímsnesi. ■
Fyrirbyggjandi árásir:
Mun fjölga í
framtíðinni
KAUPMANNAHÖFN, AP Fyrirbyggj-
andi hernaðarárásir á ríki sem
styðja hryðjuverkahreyfingar eða
búa yfir gjöreyðingarvopnum
eiga eftir að verða algengari í
framtíðinni, sagði Geoffrey Hoon,
varnarmálaráðherra Bretlands, á
ráðstefnu um varnar- og öryggis-
mál sem haldin var í Kaupmanna-
höfn.
Hoon sagði að öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna og Atlantshafs-
bandalagið yrðu að ræða slíkar
aðgerðir. Hann gaf í skyn að Bret-
ar og Bandaríkjamenn ættu að
fara í fararbroddi í slíkum að-
gerðum en sagði það ekki hreint
út. ■
SNERI BAKI VIÐ LAPID
Fischer neitaði að hitta ísraelska dóms-
málaráðherrann í þeim hluta Jerúsalem
sem Ísraelar hertóku 1967.
SKÓGARBÆR
Þar eru ekki eingöngu vistaðir öldrunarsjúklingar heldur býr á Skógarbæ yngra fólk sem þarfnast mikillar umönnunar.
■
Heimilismenn
og sjúklingar
eiga ekki tök á
að mótmæla
þeim niður-
skurði sem
bitnar harðast
á þeim.
Samkomulag náðist um tollaívilnanir og aukin framlög:
EES-viðræður að komast í höfn
UTANRÍKISMÁL Allt útlit var í gær-
kvöldi fyrir að samkomulag væri
að nást um framtíð samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið.
Ekki var þó búið að ganga endan-
lega frá samkomulaginu þegar
Fréttablaðið fór í prentun í gær.
Möguleiki var að staðfesting þess
frestaðist þar til á morgun. Megin-
línur lágu þó að mestu fyrir.
Framlög Íslands í þróunarsjóði
Evrópusambandsins fimmfaldast
frá því sem nú er og verða hálfur
milljarður króna árlega. Það er
áttundi hluti þess sem Evrópu-
sambandið fór upphaflega fram á
en íslensk stjórnvöld höfðu and-
mælt því að framlagið þyrfti að
hækka.
Kröfur Íslendinga um bætur
fyrir missi fríverslunar við
Austur-Evrópulönd náðu ekki allar
fram. Þó tókst að fá toll á síldar-
flökum felldan niður og skiptir þá
engu hvort útflutningur aukist eða
ei. Kvóti fæst fyrir aðrar afurðir
og miðast hann við stöðuna nú.
Stærstur hluti greiðslna til Evr-
ópusambandsins fellur á herðar
Norðmanna. Framlög þeirra tí-
faldast og nema 97% af því sem
EFTA-ríkin greiða, að því er
norska blaðið Dagens Næringsliv
greindi frá. ■
FRÁ HÖFUÐSTÖÐVUM EVRÓPUSAMBANDSINS
Greiðslur Íslands í þróunarsjóði ESB fimmfaldast. Tollur á síldarflök fellur niður.