Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 23
Ástralski Hollywood-leikarinnRussell Crowe gifti sig á mánu- dag. Brúður hans er kærasta hans til langs tíma, Danielle Spencer. Þau giftu sig á bú- garði leikarans í Ástralíu. Aðeins hinir allra nán- ustu voru við- staddir og voru gestirnir því aðeins um 80 talsins. Breska „garage“-hnátan Ms.Dynamite hefur gert samning við Pepsi um að auglýsa gos- drykkinn kunna. Stelpan fær um 122 milljónir króna fyrir. Fyrirtæk- ið hefur ákveðið að fara í samstarf við einn ungan breskan tónlistar- mann á hverju ári. Ms. Dynamite nældi sér í samninginn eftir að Gareth Gates, sem var í öðru sæti í „Pop Idol“-sjónvarpskeppninni, var sagt upp. Áhugamenn um útlit leikkonunn-ar Halle Berry eiga von á glaðn- ingi þar sem stúlk- an hefur tekið að sér enn eitt hlut- verkið sem krefst þess að hún sýni sig bera. Myndin heitir „Gothika“ og í henni leikur Berry sálfræðing sem sakaður er um morð. Hún getur þó ómögulega munað eftir því að hafa framið verknaðinn. Í einu atriðanna, sem gerist í sturtuklefa geðspítala, lend- ir hún í slagsmálum við aðrar berrassaðar kolklikkaðar hnátur. Berry þvertók víst fyrir það að not- aður yrði staðgengill í nektarsenun- um. Hljómsveitirnar Blur, Metallicaog Linkin Park verða á meðal hljómsveita sem koma fram á Reading og Leeds tónleikahátíðun- um sem fara fram bak í bak í borg- unum helgina 22.-24. ágúst. Einnig koma fram Placebo, Beck, White Stripes, The Streets, Doves og El- bow. MIÐVIKUDAGUR 9. apríl 2003 23 SÍMI 553 2075 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Sýnd kl. 6, 8 og 10THE HUNTED kl. 10.10 THUNDERPANTS kl. 4 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 4 CRUSH kl. 3.45, 5.50 og 8 ABOUT SCHMIDT kl. 5.30 FINAL DESTINATION kl. 8 og 10 Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10.10 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10 og 12.10 FRIDA b.i. 12 kl. 5.30 THE HOURS b.i. 12 5.40, 8 og 10.20 HREIN OG BEIN kl. 8 GANGS OF NEW YORK b.i. 16 kl. 10.20 Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 b.i. 14 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára TÓNLIST Það er virðingarvert fyrir rokksveitir að fá Dave Grohl, fyrr- um trommara Nirvana, til þess að leika á plötum sínum. Trommuleik- ur hans greiddi t.d. leið Queens of the Stone Age upp á toppinn og lífgaði verulega upp á fyrstu breið- skífu gríndúettsins Tenacious D. Grohl er greinilega vinsælt aukakrydd á plötum og hefur hann tekið að sér að leika á trommur á nýrri plötu Killing Joke. Platan heitir „Axis of Evil“ og kemur út í sumar. Þetta verður fyrsta plata Killing Joke síðan 1996. Sveitin var stofnuð 1978 og var ein af helstu nýbylgjusveitum Breta í upphafi níunda áratugar- ins. Liðsmenn íslensku sveitarinn- ar Þeyr voru í nánu samstarfi við þá. Grohl hefur víst verið mikill að- dáandi sveitarinnar frá upphafi og stökk því á tækifærið að fá að leika með þeim. Liðsmenn Killing Joke kynntust Grohl á tónleikahátíð á Nýja-Sjálandi þar sem trommar- inn fór m.a. upp á svið með sveit- inni og flutti lagið „Requiem“. Grohl hefur verið höfuðpaur Foo Fighters frá því að Nirvana leið undir lok. Þar syngur hann og leikur á gítar. ■ DAVE GROHL Fyrrum Nirvana-trommarinn lék á síðustu plötum Queens of the Stone Age og Tenacious D. Ætlar núna að taka upp kjuðana fyrir bresku nýbylgjusveitina Kill- ing Joke. Dave Grohl: Trommar með Killing Joke Bassaleikari Radiohead, ColinGreenwood, segist jafn óhress og bróðir sinn, Jonny, yfir þeirri út- gáfu nýju plötunnar sem lak á Netið. Hann segir útgáfurnar allar vera óhljóðblandaðar og líkir lekan- um við það að einhver myndi ryðj- ast inn í hús sem væri í miðri upp- byggingu og rífa allt niður. Hann biður aðdáendur um að sýna þolin- mæði því lokaútgáfan sé mun betri en þær útgáfur sem netverjar skiptast á þessa dagana. Leikkonan Winona Ryder, sem varfundin sek um búðarhnupl á síð- asta ári, hefur fengið mikið lof frá dómara málsins. Honum þykir stelpan standa sig vonum framar í góðgerðarmálavinnunni sem henni var skylt að vinna. Hún hefur nú skilað af sér þeim 480 klukkustund- um sem hún átti að vinna og má hún því snúa sér aftur að kvik- myndaleik. Dómarinn var hins veg- ar ekkert sérstaklega hrifinn af þeirri hugmynd Winonu að selja fötin sem hún stal í búðinni og gefa ágóðann til góðgerðamála. Fréttiraf fólki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.