Fréttablaðið - 11.04.2003, Page 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Föstudagurinn 11. apríl 2003
Tónlist 24
Leikhús 24
Myndlist 24
Bíó 28
Íþróttir 16
Sjónvarp 30
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
BÆKUR
Aðdráttarafl
ódauðleikans
AUGLÝSINGAR
Hollywood
hringir ekki
FÖSTUDAGUR
86. tölublað – 3. árgangur
bls. 38
MYNDLIST
Sýra
og sokkabuxur
bls. 26
FYRIRLESTUR Kanadíski sagnaþulur-
inn Ruth Christie heldur fyrirlestur
í Þjóðarbókhlöðunni klukkan 16.30,
þar sem hún segir frá fjölskyldu
sinni og samskiptum hennar við ís-
lensku innflytjendurna sem settust
að á „Nýja Íslandi“ árið 1875.
Langalangafi hennar var frumbygg-
inn John Ramsey sem reyndist ís-
lenskum innflytjendum mjög vel.
Íslenskir
innflytjendur
FUNDUR Utanríkisráðuneytið heldur
ráðstefnu um hagsmunagæslu inn-
an Evrópska efnahagssvæðisins
klukkan 13.00. Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra setur ráðstefn-
una. Valinkunnir innlendir og er-
lendir fyrirlesarar munu fjalla um
það hvernig gæta eigi hagsmuna
sveitarfélaga og fyrirtækja innan
EES. Meðal þess sem fjallað er um
er hvaða leiðir séu færar til þess að
hafa áhrif á stefnumörkun Evrópu-
sambandsins. Fundurinn fer fram á
ensku.
Hagsmunagæsla
innan EES
bls. 24
BAGDAD Sannkölluð óöld ríkti í
Bagdad í gær. Tugþúsundir
Íraka streymdu út á götur borg-
arinnar, réðust til inngöngu í
fjölda bygginga og létu þar
greipar sópa. Kveikt var í fjöl-
mörgum húsum og lagði þéttan
reyk yfir borgina. Bandarískar
hersveitir reyndu af veikum
mætti að hafa hemil á æstum
mannfjöldanum en áttu í fullu
fangi með að berja á bak aftur
mótspyrnu stuðningsmanna ír-
askra stjórnvalda.
Að sögn Alþjóða Rauða kross-
ins réðst hópur vopnaðra Íraka
til inngöngu á sjúkrahús borgar-
innar og stal þar öllu steini létt-
ara. Mennirnir höfðu á brott
með sér rúm, ýmis konar tækja-
búnað og sjúkragögn. Loka
þurfti nokkrum sjúkrahúsum
vegna óláta og þjófnaðar.
Á meðan óbreyttir borgarar
fóru rænandi og ruplandi um
Bagdad héldu bandarískar her-
sveitir áfram að berjast við
vopnaða Íraka víðs vegar um
borgina.
Borgaralega klæddir Írakar
létu skothríð dynja á forseta-
höllinni á bökkum árinnar Tígris
og svöruðu bandarískar her-
sveitir sem hafast þar við með
því að skjóta úr fallbyssum á
árásarmennina.
Að minnsta kosti einn banda-
rískur landgönguliði lét lífið og
fjórir særðust í sjálfmorðsárás
á eftirlitsstöð innrásarhersins í
fátækrahverfi í miðri Bagdad.
Fregnir herma að íraskur karl-
maður hafi gengið að varðstöð-
inni með sprengiefni vafin um
sig miðjan og sprengt sig þar í
loft upp. ■
Stjórnleysi
í Bagdad
Á meðan Bandaríkjaher reyndi að brjóta á bak
aftur mótspyrnu vopnaðra Íraka í Bagdad fór
almenningur ruplandi um borgina.
UMFERÐARSLYS Sjúkrabíll með
sjúkling innanborðs skall á
fólksbíl á Bústaðabrúnni um
fjögurleytið í gær. Sjúkrabíllinn
var á leið með sjúklinginn á
Landspítala – Háskólasjúkrahús
við Hringbraut.
Að sögn lögreglu er talið að
sjúkrabíllinn hafi verið í for-
gangsakstri þegar fólksbíllinn
ók í veg fyrir hann. Sjúkrabíllinn
kastaðist af bílnum og skall á
umferðarvita.
Fólksbíllinn gjöreyðilagðist
og beita þurfti klippum til að ná
ökumanni og farþega úr fólks-
bifreiðinni. Sjúkrabíllinn var
dreginn burt mikið skemmdur.
Ökumenn sjúkrabílsins og
fólksbílsins voru fluttir á slysa-
deild. Sjúkraflutningamaður
sem var farþegi í sjúkrabílnum
og farþegi fólksbifreiðarinnar
sluppu ómeiddir. Annar sjúkra-
bíll kom á vettvang og flutti
sjúklinginn í sjúkrabílnum á
áfangastað. ■
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
febrúar 2003
26%
D
V
90.000 eintök
73% fólks lesa blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
föstudögum?
68%
77%
REYKJAVÍK Hæg suðvestlæg
eða breytileg átt og slydda
eða rigning. Hiti 0 til 5 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skýjað 3
Akureyri 3-8 Slydda 3
Egilsstaðir 3-8 Slydda 3
Vestmannaeyjar 3-8 Skýjað 3
➜
➜
➜
➜
Árekstur á Bústaðavegi:
Sjúkrabíll og fólksbíll skullu saman
FRÁ SLYSSTAÐ
Beita þurfti klippum til að ná ökumanni og farþega úr fólksbíl sem lenti í árekstri við sjúkraflutningabíl á Bústaðabrúnni í gær.
! " #$%&'( )"((**+ ) , -*(.* / 0-$%&'1
(-* ( ! )
Fundað um viðhald
Alþingishússins:
Fyrsta við-
gerð í 122 ár
VIÐHALD „Þetta er feikilega góð
ending,“ segir Jón Gestsson hjá
Framkvæmdasýslu ríkisins, sem
hefur yfirumsjón með væntan-
legri viðgerð á Alþingishúsinu,
þeirri fyrstu í 122 ár. „Engin við-
gerð hefur farið fram á húsinu frá
því það var byggt 1881,“ segir
hann.
„Það þarf að endurnýja fúgur á
milli steina og skipta nokkrum
þeirra út en þeir eru ekki margir,“
segir Hjalti Sigurðsson hjá Línu-
hönnun, sem sér um verkið.
„Þetta hús er í mjög góðu standi
miðað við aldur.“
Þar sem Alþingishúsið er frið-
að ber að kynna fyrirhugaðar við-
gerðir og hugsanlegar breytingar
fyrir Húsafriðunarnefnd og verð-
ur það gert á fundi í dag. Að sögn
Jóns Gestssonar má búast við að
almenningur verði var við við-
gerðir á Alþingishúsinu því ekki
verði komist hjá því að reisa
vinnupalla við húsið á meðan á
framkvæmdum stendur. Alþingis-
húsið er hlaðið úr íslensku grá-
grýti og dæmafá ending vekur
upp spurningar hvort ekki væri
ráð að byggja fleiri hús með þessu
lagi. Svar sérfræðinga er á einn
veg: „Það er of dýrt.“ ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
STJÓRNLAUS FRIÐUR
Íraskur karlmaður gengur við hlið skriðdreka bandaríska innrásarliðsins í Bagdad og veifar
hvítum fána. Enn ríkir ófriður í borginni en Bandaríkjamenn halda áfram að reyna að
brjóta á bak aftur andstöðu stuðningsmanna íraskra stjórnvalda.
M
YN
D
/A
P