Fréttablaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 2
2 11. apríl 2003 FÖSTUDAGUR
Nei, enda er því ekki lokið. Sumir
segja að stríðið byrji þegar byss-
urnar þagna.
Þorvaldur Þorvaldsson trésmiður hefur verið ötull
mótmælandi stríðsins í Írak undanfarið og stjórn-
að mörgum mótmælafundinum.
Spurningdagsins
Þorvaldur, saknar þú stríðsins?
Mannréttindadómstóll Evrópu dæmir ríkið til að greiða lögmanni 2,1 milljón:
Stjórnvöld brutu á lögmanni
DÓMSMÁL Íslensk stjórnvöld brutu á
rétti Péturs Þórs Sigurðssonar hér-
aðsdómslögmanns samkvæmt nið-
urstöðu Mannréttindadómstóls Evr-
ópu.
Íslenskum stjórnvöldum hefur
verið gert að greiða Pétri Þór 2,1
milljón króna í bætur og um 1,3
milljónir króna í málskostnað. Mál-
ið snýst um meint vanhæfi hæsta-
réttardómara. Árið 1997 hafnaði
Hæstiréttur beiðni lögmannsins um
endurupptöku í skaðabótamáli gegn
Landsbanka Íslands, sem fallið
hafði honum í óhag. Fór hann fram
á endurupptöku eftir að hafa fengið
upplýsingar um að maki eins hæsta-
réttardómarans, sem sýknaði
Landsbankann, hefði átt í viðamikl-
um fjárhagslegum samskiptum við
bankann. Vegna þessa taldi hann
dómarann hafa verið vanhæfan, en
Hæstiréttur hafnaði beiðninni um
endurupptöku í tvígang. Eftir þetta
skaut Pétur Þór málinu til Mann-
réttindadómstólsins, sem ákvað
árið 2001 að taka málið til efnislegr-
ar meðferðar. Dómurinn féll síðan í
gær. Dómstóllinn telur ekki ástæðu
til að ætla að hæstaréttardómarinn
hafi verið hlutdrægur í málinu gegn
Landsbankanum, hins vegar varð-
aði málið hlutleysisreglu Mannrétt-
indasáttmála Evrópu. Pétur Þór
hefði með réttu getað efast um hlut-
leysi Hæstaréttar. ■
FANGELSI „Ég krefst þess að mál
þetta verði rannsakað og hef óskað
eftir fundi með dómsmálaráðherra
vegna þess,“ segir Hólmfríður Lúð-
víksdóttir, móðir 24 ára gamals
fanga á Litla-Hrauni sem sætir við-
urlögum vegna hótana sem hann er
sagður hafa borið upp við fanga-
vörð sem vefengdi að hann væri
veikur. Fanginn, Aðalsteinn Árdal
Björnsson, hafði í tvo sólarhringa
kvartað undan miklum innvortis
verkjum en læknir sem skoðaði
hann ráðlagði heitt bað. Seinna kom
á daginn að fanginn var sárkvalinn
vegna veikinda.
Fanginn er fórnarlamb barnaníð-
ings sem dæmdur var fyrir Hæsta-
rétti árið 1995. Þá var hann 15 ára
en misnotkunin stóð að sögn móður
fangans frá því hann var 13 ára.
„Sonur minn hefur óskað eftir
því að fá aðstoð sálfræðings eða
geðlæknis en kerfið bregst ekki
við því. Ég tel að brotið hafi verið
á mannréttindum hans með því að
refsa honum með þessum hætti í
fangelsinu. Þá tel ég lífsnauðsyn-
legt að sonur minn fái hjálp sál-
fræðings eða geðlæknis,“ segir
Hólmfríður.
Ítarlegt viðtal er við móður
fangans í helgarútgáfu Frétta-
blaðsins. ■
Stækkun EES sam-
þykkt eftir páska
Utanríkisráðherra segir að skrifað verði undir stækkun Evrópska efna-
hagssvæðisins eftir páska. Snurða hljóp á þráðinn í gær. Ísland borgar
500 milljónir króna á ári í þróunarsjóði fátæku landanna.
EFNAHAGSMÁL Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra segir að skrifað
verði undir nýjan samning um
stækkun evrópska efnahagssvæð-
isins eftir páska, en ekki á leið-
togafundi Evrópusambandsins í
Aþenu í næstu viku eins og stefnt
hafi verið að.
Ekkert varð af því að samnings-
drögin um stækkun svæðisins
yrðu samþykkt í
gær. Pólverjar and-
mæltu því að síldar-
kvóti EFTA-land-
anna til Evrópu-
sambandsins væri
of lítill og kröfðust
þess að tollar yrðu
felldir niður af norskum laxi.
„Það þarf að fara betur yfir
þetta og það mun sennilega ekki
gerast neitt fyrir páska,“ segir
Halldór. „Ég hef litla trú á miklum
breytingum og tel að samningum
verði lokið eftir páska og segi eins
og karl fyrir austan ‘ef það hlánar
ekki fyrir páska þá hlánar eftir
páska’.“
Halldór segir að það sem skipti
máli sé að samningurinn gangi til
staðfestingar þjóðþinganna á
sama tíma og samningurinn um
stækkun Evrópusambandsins.
„Um leið og við staðfestum
þennan samning á Alþingi þá
þurfum við að staðfesta stækkun
Evrópska efnahagssvæðisins og
það ætti allt að hafast. Það á ekki
að koma að sök þó ekki verði hægt
að undirrita þennan samning í
tengslum við fundinn í Aþenu.“
Náðst hefur samkomulag um
greiðslur EFTA-ríkjanna í þróun-
arsjóði fátækari Evrópusam-
bandsríkjanna og samkvæmt því
mun Ísland greiða 500 milljónir á
ári næstu fimm ár. Alls verður
framlag EFTA-ríkjanna tæpir 20
milljarðar króna á ári og greiða
Norðmenn langmest.
Aðspurður um það hvað ís-
lenska þjóðin fái í staðinn segir
Halldór: „Það er mikilvægt fyrir
Ísland eins og önnur lönd í Evrópu
að þessi markaður þróist. Við
stóðum frammi fyrir þessari
kröfu og sættum okkur við hana.
M.a. vegna þess að ef við gerum
það ekki má ganga út frá því að
samningurinn um Evrópska efna-
hagssvæðið fari í uppnám. Þar að
auki höfum við tryggt það að jarð-
hitaverkefni geta fengið stuðning
úr þessum sjóðum og þannig eru
opnaðir möguleikar fyrir Ísland
til að vinna með löndunum í Mið-
og Austur-Evrópu á því sviði.“
trausti@frettabladid.is
brynjolfur@frettabladid.is
Banaslys á Sauðárkróki:
Einn lést
og annar í
lífshættu
BANASLYS Banaslys varð á Strand-
vegi rétt við slökkvistöðina á Sauð-
árkróki klukkan fjögur í gær. Mal-
arflutningabíll og pallbíll skullu
saman í hörðum árekstri. Farþegi í
pallbílnum lést við áreksturinn og
er talið að hann hafi látist sam-
stundis. Ökumaður pallbílsins var
fluttur alvarlega slasaður með
sjúkraflugi til Reykjavíkur og er
talinn í lífshættu. Bílarnir voru að
koma úr gagnstæðri átt þegar þeir
skullu saman. Ökumaður flutninga-
bílsins slapp lítið slasaður. ■
EIRÍKUR BERGMANN EINARSSON
Á von á því að stækkun EES gangi í gegn
um leið og stækkun ESB.
Pólverjar og Írar deila:
Samkomu-
lag um EES
frestast
UTANRÍKISMÁL Ekkert varð af því að
samningsdrög um stækkun Evr-
ópska efnahagssvæðisins yrðu
samþykkt í gær eins og stefnt
hafði verið að. Pólverjar kvörtuðu
yfir því að síldarkvóti EFTA-land-
anna til Evrópusambandsins væri
of lítill og kröfðust þess að tollar
yrðu felldir niður af norskum laxi.
Fram að þessu hafði verið talið að
samkomulagið væri klappað og
klárt.
Eiríkur Bergmann Einarsson,
stjórnmálafræðingur við Háskóla
Íslands, segist ekki eiga von á
öðru en að samningsdrögin verði
samþykkt þrátt fyrir andmæli
Pólverja. „Írar settu fram athuga-
semdir sem ganga í hina áttina.
Þeim þykja heimildirnar of rúm-
ar.“ Írar eru eina Evrópusam-
bandsríkið sem á í samkeppni við
EFTA-ríkin um þessa markaði.
Líklegasta niðurstaðan að mati Ei-
ríks er því sú að Pólverjar sætti
sig við orðinn hlut.
„Þetta hefur valdið því að ekki
er hægt að skrifa undir stækkun-
ina á leiðtogafundinum í Aþenu en
ætti ekki að koma í veg fyrir að
hægt verði að stækka Evrópska
efnahagssvæðið á sama tíma og
stækkun Evrópusambandsins
gengur í gegn,“ segir Eiríkur. ■
Lífeyrissjóður
Austurlands:
Sjóðstjórn til
saksóknara
LÍFEYRIR Nokkrir sjóðfélagar í Líf-
eyrissjóði Austurlands hafa kært
stjórn og fyrrum framkvæmda-
stjóra sjóðsins til ríkissaksókn-
ara. Þess er krafist að farið verði
ofan í saumana á því hvers vegna
risatap blasir við hjá sjóðnum. Þá
eru sett spurningarmerki við
ýmsar fjárfestingar sjóðsins sem
og það að fyrrum framkvæmda-
stjóri og endurskoðandi sjóðsins
ráku saman einkahlutafélagið Sjö
dverga ehf.
Málefni Lífeyrissjóðs Austur-
lands verða tekin fyrir hjá helstu
verkalýðssamtökum Austurlands
á næstu vikum. ■
Selveiðiskipið
Polarsyssel:
Einn fót-
brotnaði
LANDHELGISGÆSLAN Varðskipið Ægir
kemur með norska selveiðiskipið
Polarsyssel til hafnar á hádegi í dag.
Áhöfn selveiðiskipsins lenti í vand-
ræðum þegar skipið sat fast í ís 160
sjómílur vestnorðvestur af Ísa-
fjarðardjúpi. Öðru selveiðiskipi,
Polarfangst, tókst að draga skipið
úr ísnum. Þegar varðskipið kom að
var hafist handa við að koma sjó-
dælum um borð í Polarsyssel. Að
því búnu tók Polarfangst olíu úr sel-
veiðiskipinu og hélt til veiða.
Klukkutíma eftir að varðskipið
var komið með Polarsyssel í tog
barst hjálparbeiðni frá Polarfangst.
Einn skipverjinn hafði dottið milli
ísjaka og fótbrotnað. Eftir að búið
var að færa hann um borð í varð-
skipið var tekin ákvörðun um að
kalla til þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar. Skipverjinn var hífður um borð
og lenti þyrlan við Landspítala – há-
skólasjúkrahús í Fossvogi um
klukkan hálfþrjú í fyrrinótt. ■
HÆSTIRÉTTUR ÍSLANDS
Árið 1997 hafnaði Hæstiréttur beiðni
Péturs Þór Sigurðssonar lögmanns um
endurupptöku í skaðabótamáli gegn
Landsbanka Íslands, sem fallið hafði
honum í óhag.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA
Halldór segir að það sem skipti máli sé að samningurinn gangi til staðfestingar
þjóðþinganna á sama tíma og samningurinn um stækkun Evrópusambandsins.
■
“Við stóðum
frammi fyrir
þessari kröfu
og sættum okk-
ur við hana.”
HÓLMFRÍÐUR LÚÐVÍKSDÓTTIR
Vill fund með dómsmálaráðherra.
Fárveikur fangi úrskurðaður í einangrun:
Móðir krefst fundar með ráðherra
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T