Fréttablaðið - 11.04.2003, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 11. apríl 2003
Reykjavík - Faxafeni 12 Sími 533-1550 Opið virka daga 10 – 18 Laugard. 11 – 16
Keflavík - Hafnargata 25 Sími 421-3322 Opið virka daga 11 – 18 Laugard. 11 - 14
Páskatilboð
50% afsláttur
Dömufatnaður
Bolir
Buxur
Vesti
Pils
Flíspeysur
Kápur
Jakkar
Íþróttaskór
Gönguskór
Herrafatnaður
Bolir
Buxur
Flíspeysur
Jakkar
Íþróttaskór
Gönguskór
Full búð af
nýjum vörum
Isotex Jakkar,
dömu og herra
verð nú kr. 7.495,-
Bakpokar
verð frá kr. 1.945,-
Svefnpokar
verð frá kr. 4.245,-
Göngustafir
verð frá kr. 1.495,-
Flíspeysur,
dömu og herra
verð nú kr. 2.995,-
verslun/heildverslun
SJÓNVARP Fox-sjónvarpsrisinn hef-
ur gefið grænt ljós á að framleiða
fimmtu seríu þáttanna „Malcolm
in the Middle“, sem sýndir eru á
Skjá 1. Stöðin segir þáttaröðina
setja staðalinn fyrir aðra fjöl-
skyldugamanþætti. Framtíð
Malcolms varð óljós eftir að ljóst
varð að þátturinn hafði staðnað í
vinsældum. Þó er talið að um 10,8
milljónir Bandaríkjamanna sjái
hvern einasta þátt.
Leikkonan Jane Kaczmarek
átti nýlega barn og mun persóna
hennar í þáttunum, skapvonda
mamman Lois, eiga von á sér líka.
Það bætist því annar gríslingur í
fjölskylduna í lok fjórðu seríu.
Malcolm hóf göngu sína árið
2000 og hafa aðdáendur hans fylgt
honum í gegnum grunnskóla og
fylgjast nú með ævintýrum hans í
framhaldsskólanum. Vinsældir
þáttanna fóru stigvaxandi fyrstu
þrjú árin en hafa staðið í stað.
Þegar það gerist í bandarísku
sjónvarpi er hætta á að framleið-
andinn stöðvi framleiðslu. Þannig
má líta á ákvörðun Fox sem annað
tækifæri fyrir Malcolm. ■
FÓLK Kvikmyndastjarnan Jane
Fonda óttast það að innrás
Bandaríkjanna í Írak verði til
þess að heimurinn snúist gegn
þjóðinni. Hún óttast að hert átök
á svæðinu muni skila sér í fleiri
hryðjuverkaárásum og ógni
þannig öryggi landsmanna frek-
ar en hitt.
„Hvað þetta stríð gerir fyrir
stöðugleikann í þjóðfélaginu eða
efnahaginn veit enginn,“ sagði
hún í nýlegu viðtali. „Ég held að
öll heimsbyggðin eigi eftir að
snúast gegn okkur.“
Fonda, sem er 65 ára gömul,
var afar umdeild á tímum Ví-
etnamstríðsins vegna andstöðu
sinnar gegn því. Hún hefur alla
tíð verið mikill friðarsinni og
vakti t.d. mikla reiði í heimalandi
sínu eftir að hún lét mynda sig
með hermönnum Víetkong,
mótherjum Bandaríkjamanna.
Jane Fonda vann Óskarsverð-
laun árið 1978 fyrir leik sinn í
myndinni „Coming Home“. Hún
hélt sig að mestu frá kvikmynda-
leik eftir það, helgaði líf sitt lík-
amlegri heilsu og gerðist braut-
ryðjandi í útgáfu heilsurækt-
armyndbanda.
MALCOLM IN THE MIDDLE
Aðdáendur Malcolm in the Middle mega búast við nýjum einstaklingi í fjölskyldu
Malcolms í framtíðinni.
Malcolm in the Middle:
Fimmtu seríunni gefið grænt
JANE FONDA
Hefur líklegast verið draumastúlka
margra á sjöunda áratugnum þegar
hún lék í hálferótísku geimmynd-
inni Barbarella.
Jane Fonda:
Óttast eftirmála stríðs