Fréttablaðið - 11.04.2003, Síða 15
17FÖSTUDAGUR 11. apríl 2003
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
05
23
03
/2
00
3
Smáralind
mán.-fös. kl. 11-19
lau. kl. 11-18
sun. kl. 13-18
Glæsibæ
mán.-fös. kl. 10-18
lau. kl. 10-16
OPIÐ
Líkamsræktarföt
eins og þau gerast
best, fyrir konur
á öllum aldri.
Komdu í Smáralind
eða Glæsibæ
og sjáðu úrvalið.
Það er
ekki
eftir
neinu
að bíða.
Ertu ekki byrjuð?
Smáralind - Glæsibæ
Sími 545 1550 og 545 1500
KÖRFUBOLTI Penny Hardaway náði
sinni fyrstu þreföldu tvennu í eitt
og hálft ár þegar Phoenix Suns vann
Dallas Mavericks 112:89 í NBA-
deildinni í körfubolta í fyrrakvöld.
Kappinn skoraði 10 stig, tók 10
fráköst og gaf 10 stoðsendingar.
Shawn Marion skoraði 31 stig og tók
15 fráköst fyrir Suns.
Mavericks, sem hefur leitt deild-
ina í allan vetur, datt með ósigrinum
niður fyrir San Antonio Spurs í sam-
anlögðum árangri. Spurs vann
Portland Trailblazers með 84 stig-
um gegn 79 og hefur nú unnið 10
leiki í röð í deildinni. „Við höfum
engar áhyggjur af Dallas,“ sagði
Tim Duncan, leikmaður Spurs, sem
skoraði 11 stig og tók 11 fráköst í
leiknum. „Við einbeitum okkur bara
að því að standa okkur vel og sjá
hversu langt það fleytir okkur.“
Michael Jordan skoraði 21 stig
þegar Washington Wizards tapaði
fyrir Boston Celtics með 85 stigum
gegn 83. Þar með dvínuðu vonir
Wizards um að komast áfram í úr-
slitakeppnina. ■
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Marion Jones,
þrefaldur Ólympíumeistari frá
því í Sydney árið 2000, er ófrísk
og getur því ekki tekið þátt í HM í
París sem haldið verður í sumar.
Jones á von á barninu í júlí með
unnusta sínum Tim Montgomery,
heimsmethafanum í 100 metra
hlaupi karla.
Jones mun hefja æfingar á ný
síðar á þessu ári í undirbúningi
sínum fyrir Ólympíuleikana í Aþ-
enu á næsta ári. Montgomery
verður aftur á móti á meðal kepp-
enda á HM í París. ■
Marion Jones ófrísk:
Missir
af HM
í sumar
BARN Á LEIÐINNI
Marion Jones á von á barni í júli.
NBA-deildin:
Spurs fram
úr Mavericks
DUNCAN
Tim Duncan (til hægri) ver skot Mehmet Okur, leikmanns Detroit Pistons, í leik liðanna á
dögunum. Duncan og félagar í San Antonio Spurs eru nú með besta vinningshlutfall NBA-
deildarinnar.
Special Olympics:
Íslands-
leikarnir á
morgun
FÓTBOLTI Fjórðu Íslandsleikar
Special Olympics hefjast í
Reykjaneshöll á morgun.
Leikarnir eru haldnir í samvinnu
Íþróttasambands fatlaðra og KSÍ
og eru liður í árlegri knattspyrnu-
viku Special Olympics og UEFA.
Eik/Akur, Nes, Suðri, Ösp og Þjót-
ur senda lið til keppninnar, sem
hefst kl. 10.10.
Aðaltilgangurinn með knatt-
spyrnuvikunni er að fjölga knatt-
spyrnuiðkendum meðal þroska-
heftra í Evrópu. ■
SIGLINGAR
Úrvalshópur Siglingasambands Íslands æfir
fyrir Smáþjóðaleikana á Möltu.
Siglingar:
Æft fyrir
Smáþjóða-
leikana
SIGLINGAR Fyrsta æfing ársins hjá
úrvalshópi Siglingasambands Ís-
lands fór fram á Fossvogi í vik-
unni. Óttarr Hrafnkelsson stjórn-
aði æfingunni en hópurinn mun
æfa tvisvar í viku fram að Smá-
þjóðaleikum.
Ellefu siglingamenn tóku þátt í
æfingunni að þessu sinni. Hópur-
inn hefur tvívegis áður komið
saman frá áramótum þar sem m.a.
hefur verið mælt þrek.
Fyrsta stóra verkefnið sem ligg-
ur fyrir er þátttaka í Smáþjóðaleik-
unum á Möltu en þar munu sjö sigl-
ingamenn taka þátt. Tilkynnt verð-
ur um keppendur á leikunum eftir
opnunarmót sem fer fram í næsta
mánuði. ■