Fréttablaðið - 14.04.2003, Qupperneq 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Mánudagurinn 14. apríl 2003
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Bíó 20
Íþróttir 16
Sjónvarp 22
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
SKAÐABÆTUR
Deilt um
virði
mannslífa
VIÐSKIPTI
Frekari samruni
fyrirhugaður
MÁNUDAGUR
88. tölublað – 3. árgangur
bls. 2
FÓLK
Grín í
sumargjöf
bls. 10
TÓNLEIKAR Norski kórinn Ra Sanglag
syngur á hádegistónleikum í and-
dyri Norræna hússins. Stjórnandi
kórsins er Inga Kjæraas. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 12.00.
Norskur kór
TÓNLEIKAR Pólski harmonikuleikar-
inn Krzysztof Olczak leikur verk
eftir Johann Sebastian Bach, Luis
Milan, Luis de Narvaez, Vaclav
Trondheim, Arne Nordheim og
Larry Lake á einleikstónleikum í
Norræna húsinu. Einnig leikur
hann tvö verk eftir sjálfan sig.
Tónleikarnir hefjast klukkan 18.00.
Pólskur harmon-
ikkuleikari
BÍÓ Óskarsverðlaunamyndin
„Bowling for Columbine“, eftir
Michael Moore, verður sýnd á
Kvikmyndahátíð bíófélagsins 101.
Myndin fjallar um byssulöggjöf-
ina í Bandaríkjunum. Titill mynd-
arinnar vísar til skotárásarinnar í
Columbine-skóla þegar tveir nem-
endur réðust inn vopnaðir rifflum
og drápu þrettán manns, einn
kennara og 12 unglinga. Fyrr um
daginn höfðu þeir verið að spila
keilu.
Myndin er sýnd klukkan 17.50 og
22.15 í Regnboganum við Hverfis-
götu.
Keilað fyrir
Columbine
bls. 20
REYKJAVÍK Austan
10 m/s. Úrkomulítið.
Hiti 4 til 8 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Skúrir 6
Akureyri 6-8 Rigning 6
Egilsstaðir 5-10 Rigning 7
Vestmannaeyjar 6-8 Rigning 6
➜
➜
➜
➜
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
90.000 eintök
73% fólks lesa blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
mánudögum?
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
20%
D
V
58%
75%
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
febrúar 2003
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003.
FÓLK
bls. 16
Partýtröll
ÍÞRÓTTIR
Gaman að
vinna titla
bls. 23
JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, forsæt-
isráðherra Ísraels, segist vel geta
hugsað sér að afhenda Palestínu-
mönnum eitthvað af þeim land-
spildum, sem landnemar frá Ísrael
ráða yfir á landsvæðum Palestínu-
manna utan eiginlegra landamæra
Ísraels. Sú afhending yrði að vera
hluti af almennu friðarsamkomu-
lagi við Palestínumenn.
Þetta kom fram í viðtali við
ísraelska dagblaðið Haaretz. Shar-
on hefur verið eindreginn fylgis-
maður þeirrar stefnu ísraelskra
landtökumanna að setjast að á
landi Palestínumanna til þess að
tryggja Ísraelsmönnum sem mest
landsvæði. Hann hefur oft áður
gefið í skyn að hann væri reiðubú-
inn til að afhenda eitthvað af þess-
um landsvæðum, en nú hefur hann
í fyrsta sinn sagt það berum orðum
og nefnt ákveðnar byggðir.
Sharon segist engu að síður
hafa miklar efasemdir um þær
hugmyndir að friðarsamkomulagi
sem nú eru helst í umræðunni. Þar
er átt við hugmyndir að þriggja
þrepa áætlun sem Bandaríkin,
Evrópusambandið, Sameinuðu
þjóðirnar og Rússland kynntu á
síðasta ári. ■
Viðtal í ísraelsku dagblaði:
Sharon þokast í friðarátt
ARIEL SHARON
Forsætisráðherra Ísraels gengur þarna í
fylgd lífvarða inn á ríkisstjórnarfund í gær.
AP
/M
YN
D
EFNILEGUR Veðurblíðan lék við landsmenn á laugardaginn var. Fjölmenni var á Austurvelli og sleikti æskan sólina og lék sér í boltaleikjum.
Þessi piltur sýndi ótrúleg tilþrif í markinu og hver veit nema hann eigi eftir að standa á milli stanganna í íslenska landsliðinu seinna meir.
Hlýtt um páskana:
Ekkert
hret í kort-
unum
VEÐUR Það er ekkert páskahret í
kortunum hjá Veðurstofunni og
allt útlit er fyrir ágætisvorveður
næstu daga. Á skírdag er gert
ráð fyrir sunnanátt, skúrum og
rigningu með köflum. Það verður
bjart fyrir norðan og austan og
hlýtt um allt land. Spádeild Veð-
urstofunnar telur þó að enn sé of
fljótt að slá því föstu að vorið sé
komið enda er enn búist við élj-
um á Vestfjörðum og hitastigið á
hálendinu er alveg við frost-
markið. Þetta gæti þó verið mik-
ið verra og þar sem engar vís-
bendingar eru enn sjáanlegar um
kuldakafla má segja að það sé
ágætis síðvetrar- eða vorveður
þessa dagana, allt eftir því
hvernig fólk lítur á það. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
SKOÐANAKÖNNUN Kvótakerfið nýtur
lítils stuðnings landsmanna sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Frétta-
blaðið gerði á laugardaginn. Úrtak-
ið í könnuninni var tólf hundruð
manns og 80,5% þeirra sem svör-
uðu sögðust vera andvíg kerfinu en
19,5% voru fylgjandi kerfinu.
Fleiri konur eru óánægðar með
fiskveiðistjórnunarkerfið en karl-
ar. 15,9% kvenna sögðust fylgjandi
fiskveiðistjórnunarkerfinu en
84,1% eru andvígar. Hjá körlunum
eru 22,6% hliðhollir kerfinu en
77,4% andvígir.
„Þessi afstaða þjóðarinnar kem-
ur mér ekki á óvart,“ segir Guðjón
A. Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins. „Það hefur lengi
verið ljóst að þjóðin er á móti kerf-
inu og sér óréttlætið og ósanngirn-
ina í því. Þeir sem hafa notið kerf-
isins hafa barist fyrir því á hæl og
hnakka og það eru væntanlega þeir,
ættingjar þeirra og erfingjar sem
taka afstöðu með því.“
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, segir að nið-
urstaðan komi nokkuð á óvart.
„Þar sem enn hefur ekki fundist
fyrirkomulag sem skilar þjóðinni
meiru kemur þessi niðurstaða
nokkuð á óvart,“ segir Friðrik. „Það
mætti athuga það næst að spyrja
um leið hvort fólk vilji fá minna út
úr sjávarútveginum. Annar megin-
tilgangur kerfisins er að hámarka
það sem þjóðin hefur út úr þessum
veiðum.“
Árni M. Mathiesen sjávarút-
vegsráðherra sagðist ekki vilja tjá
sig um niðurstöðuna fyrr en hann
væri búinn að skoða tölurnar betur.
Adolf H. Berndsen, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, á sæti í sjáv-
arútvegsnefnd. Hann segist telja
þessa niðurstöðu sýna það í hnot-
skurn að það þurfi að skýra kerfið
betur út fyrir fólki. „Það þarf
greinilega að skýra betur fyrir
fólki hvaða plúsar eru við kerfið.
Meirihlutinn sér, samkvæmt þessu,
bara það neikvæða.“
Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Íslands, segist
ekki hissa á að fólk sé ósátt.
„Þessi niðurstaða kemur í sjálfu
sér ekki á óvart þar sem stjórnvöld
hafa svikist um að taka á vanda-
málunum og sníða af kerfinu þá
galla sem bent hefur verið á“ segir
Sævar. „Ég held að grundvallar-
ástæðan sé sú að núverandi stjórn-
völdum hefur tekist að svæfa um-
ræðuna.“
thorarinn@frettabladid.is
Mikil andstaða
við kvótakerfið
Áttatíu prósent landsmanna eru andvíg kvótakerfinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Guðjón A. Kristjánsson segir þjóðina sjá ranglætið í kerfinu en Friðrik J. Arn-
grímsson segir að enn hafi ekki fundist betra fyrirkomulag.
FRIÐRIK J.
ARNGRÍMSSON
Betra fyrirkomulag
hefur ekki fundist.
SÆVAR
GUNNARSSON
Ekki hissa á að fólk
sé ósátt.