Fréttablaðið - 14.04.2003, Side 8
FYRIR RÉTTI „Ég hef ekki haft þá
kæru sjálfur til meðferðar heldur
úthlutaði ég því máli til annarra,“
sagði Arnar Jensson lögreglumað-
ur á föstudag. Verjandinn Sigríður
Rut Júlíusdóttir spurði hann um
kæru Péturs Þórs
Gunnarssonar á
hendur Hjördísi
Gissurardót tur
fyrir að hafa lagt
hald á vörur úr
Antíkverslun Gall-
erí Borgar, búð
sem hann rak sam-
hliða uppboðsfyr-
irtæki sínu.
Eitt viðamesta
sakamál Íslands-
sögunnar er nú
rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavík-
ur, Stóra málverkafölsunarmálið,
og stefnir nú í að réttarhöldin verði
þau lengstu sem um getur, að með-
töldum Hafskips-, Geirfinns- og
Guðmundarmálum. Komið hefur
fram að kostnaður vegna málsins
er 50 milljónir. Ljóst er að kostnað-
ur við réttarhaldið verður veruleg-
ur en vitni hafa komið hvaðanæva
að á kostnað dómsvalda, mörg frá
Danmörku, Kanada, Englandi og
Bandaríkjunum. Þá er beinn kostn-
aður við málflutninginn ótalinn.
Líklegt er talið að málinu verði vís-
að til Hæstaréttar hvernig sem
dómur Pétur Guðgeirssonar dóm-
ara verður.
Ein myndin, „Lesið við kerta-
ljós“ nýtur nokkurrar sérstöðu en
er ef til vill lýsandi fyrir hversu
flókið þetta mál allt er.
Jónas Freydal er ákærður fyrir
að hafa selt olíumálverk óþekkts
höfundar sem listaverk Ásgríms
Jónssonar þeim Geir Gunnari
Geirssyni og Hjördísi Gissurar-
dóttur á uppboði í Gallerí Borg fyr-
ir 561.000. Myndin er signeruð
Ásgr. J. Rannsóknir Viktors Smára
Sæmundssonar forvarðar hafa leitt
í ljós að myndin er viðgerð og átt
hefur verið við höfundarmerkingu.
Fyrirliggjandi er að Jónas sjálfur
annast viðgerð myndarinnar og
hefur reyndar aldrei þrætt fyrir
það. Fram kom fyrir rétti að hann
lagfærði einnig höfundarmerking-
una.
Í sínu listfræðilega mati segir
Júlíana Gottskálksdóttir að grófir
drættir myndarinnar og muskuleg-
ir litir stingi í augu. Aðall Ásgríms
sé næmleiki á liti og þetta standist
ekki samanburð við verk hans. Í
vitnisburði sínum sagði Hjördís
Gissurardóttir að vakin hefði verið
athygli sín á því, af gestkomandi
aðila sem þekkti til forvörslu, að
höfundarmerkingin væri torkenni-
leg. Hún leitaði til sérfræðinga,
sem leiddi til ákæru um fölsun
snemma árs 1997.
Í málskjölum tengist svo öllu
þessu áðurnefnd kæra en hún
blandaðist í málið þegar Arnar
Jensson yfirheyrði Pétur Þór. Í
samtali við Pétur Þór kemur fram
að Hjördís hafi, þegar hann og kona
hans voru á leið til útlanda, komið í
Antíkverslun Gallerí Borgar ein-
hvern tíma árs 1998. Hún fékk lán-
að antíksófasett, ljósakrónur, antík-
skápa og málverk (2 x 2 metrar) frá
árinu 1907 eftir Poul Friis Nybo.
Þegar Pétur Þór vildi svo fá við-
skiptin gerð upp tjáði Hjördís hon-
um að þetta væri tekið í pant vegna
þess að Ásgrímsverkið væri vé-
fengt. Í kærunni er varningurinn
metinn á um 2,2 milljónir en fyrir
rétti bar Hjördís að andvirði væri
um 400 þúsund. Kæran er í biðstöðu
vegna þess að hún tengist Stóra
málverkafölsunarmálinu. Er þetta
eitt tilvik af 103.
jakob@frettabladid.is
8 14. apríl 2003 MÁNUDAGUR
■ Asía
■ Bandaríkin
Á trúnaðarstiginu
Ég hlakka til að fá tækifæri til
að kynnast sjónarmiðum þínum,
ræða við þig um þann mikla ár-
angur sem við Íslendingar höf-
um í sameiningu náð og hvernig
við getum best tryggt að Ísland
verði áfram í fremstu röð.
Davíð Oddsson í opnuauglýsingu. Morgunblað-
ið, 13. apríl.
Ingibjörg Sólrún?
Ég leita að gaman-
semi eða skop-
skyni og hlýju, og
vil að konur séu
skemmtilegir fé-
lagar. Mér finnst
gott að konur séu
sjálfstæðar og röggsamar
þannig að samskiptin séu sjálf-
krafa og þvingunarlaus eins og
vera ber meðal jafninga.
Steingrímur J. Sigfússon um það hverju hann
leitar helst að í fari kvenna. Orðlaus, apríl 2003.
Orðrétt
www.ru.is
Fyrri umsóknarfrestur
er til 15. apríl
ÍS
LE
N
S
K
A
AU
G
LÝ
S
IN
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
H
IR
2
05
75
03
/2
00
3
www.ru.is
Lagadeild • Viðskiptadeild • Tölvunarfræðideild
Þeir sem sækja um nám við Háskólann í Reykjavík
fyrir 15. apríl fá svar innan þriggja vikna
„Ég vil stuðla að því að Heilbrigð-
isstofnunin geri verktakasamning
við heilsugæslulækna í Reykja-
vík. Ég átti fund með lækninga-
forstjóra Heilsugæslunnar í
Reykjavík, Lúðvíki Ólafssyni, og
hann útilokaði ekki slíkt fyrir-
komulag,“ segir Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra um málefni
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
„Aðalatriðið er það að ég tel ekki
aðgengilegt að Heilsugæslan í
Reykjavík taki yfir allan rekstur-
inn á Heilbrigðisstofnun Suður-
nesja,“ segir Jón. „Ég tel að rekst-
urinn eigi að vera í höndum Suð-
urnesjamanna.“
Skiptar skoðanir hafa verið á
meðal heilsugæslulækna í
Reykjavík um tillögu ráðherra, en
samkvæmt skilningi hans hefur
þeim ekki verið hafnað. Ef þeim
verður hafnað verður sú leið val-
in, segir Jón, að halda áfram að
auglýsa eftir einstaklingum til
þess að ráða í stöður sérfræðinga
í heimilislækningnum á Suður-
nesjum. ■
EIGENDUR SEKTAÐIR Vinnueftir-
litið á Rhode Island hefur sektað
eigendur næturklúbbs um and-
virði rúmra 80 milljóna króna
fyrir að tryggja starfsmenn sína
ekki eins og lög gera ráð fyrir.
Eldsvoði kostaði 99 manns lífið á
skemmtistaðnum, þeirra á meðal
fjóra starfsmenn.
SKRIÐDREKA FYRIR PÁLMAOLÍU
Stjórnvöld í Malasíu hafa samið
við Pólverja um að kaupa 48
skriðdreka. Kaupverðið nemur
nær 30 milljörðum króna. Þriðj-
ungur af kaupverðinu verður
greiddur með malasískum vör-
um, þeirra á meðal pálmaolíu.
ENN HÆTTULEGIR Dómsmálaráð-
herra Japans segir Aum Shin-
rikyo, trúarhreyfinguna sem stóð
fyrir gasárás í neðanjarðarlest í
Japan 1995, enn hættulega. Hann
vill hafa meðlimi hennar undir
ströngu eftirliti til að koma í veg
fyrir hryðjuverk.
HEILAGAR KÝR Neðri deild ind-
verska þingsins skorar á ríkis-
stjórn landsins að banna slátrun
kúa. Kýr eru heilagar í augum
Hindúa, sem eru 900 milljónir
talsins í Indlandi. Sala nautakjöts
er bönnuð í Indlandi, nema á hót-
elum og veitingastöðum í stór-
borgum.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja:
Tillögum ráðherra
ekki hafnað
JÓN KRISTJÁNSSON
Heilbrigðisráðherra hefur lagt til að
heilsugæslulæknar í Reykjavík geri verk-
takasamninga við Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja.
LANDHELGISGÆSLAN Hlustunardufl
frá fyrrum Sovétríkjunum fannst
í fjörunni vestan við Skjálfanda-
fljótsós í síðustu viku. Duflið var
notað af Rússum til að nema hljóð
frá kafbátum og skipum sem nálg-
uðust stendur þeirra á kalda-
stríðsárunum. Talið er að duflið
hafði slitnað frá festingum sínum
og rekið síðan mánuðum saman
áður en það rak á fjöruna við
Skjálfandafljótsós. Samkvæmt
upplýsingum frá Dagmar Sigurð-
ardóttur, upplýsingafulltrúa
Landhelgisgæslunnar, var
sprengideild Gæslunnar gert við-
vart af lögreglunni í Húsavík. Í
ljós kom að duflið er ekki talið
hættulegt að öðru leyti en að það
getur skapað siglingahættu fyrir
minni skip og báta.
Fjöldi slíkra dufla á borð við
það sem fannst hefur rekið á
fjörur hér á landi og á svipaðar
slóðir. Má nefna að eitt slíkt dufl
fannst á Tjörnesi fyrir tveimur
árum. Þá hefur slík dufl rekið á
fjörur um allt land á síðustu þrjá-
tíu árum. ■
Sovéskt hlustunardufl
fannst:
Notað á
kaldastríðs-
árunum
HLUSTUNARDUFLIÐ SEM FANNST
Duflið er 3,2 metrar að lengd, 76 sentímetrar í þvermál og 1.200 kíló að þyngd. Myndina
tók lögreglan á Húsavík.
Torkennileg höf-
undarmerking
Stóra málverkafölsunarmálið stefnir í að verða það lengsta í réttarsögu
Íslands. Hjördís Gissurardóttur kærði Pétur Þór fyrir málverkafölsun.
Verkið seldi Jónas Freydal á uppboði í Gallerí Borg.
JÓNAS
FREYDAL
Jónas seldi Hjör-
dísi og Geir
Gunnari verkið. PÉTUR ÞÓR GUNNARSSON
Hefur kært Hjördísi Gissurardóttur fyrir að hafa lagði hald á vörur í Antíkbúð hans í skaða-
bætur fyrir verk sem hún keypti á uppboði Gallerí Borgar og nú er sagt falsað.
ÁSGRÍMUR JÓNSSON - EÐA EKKI?
Umdeilt verk. „Lesið við kertaljós, olía 56,5
x 34 sentimetrar, merkt Ásgr. J. Verkið
keyptu Hjördís Gissurardóttir og Geir
Gunnar Geirsson á uppboði Gallerí Borgar
árið 1993 og borguðu 561.000 fyrir.
Kjördæmaskipting:
Grafarholt
í norður
KOSNINGAR Landskjörstjórn hefur
ákveðið endanlega skiptingu
Reykjavíkur í tvö kjördæmi,
Reykjavíkurkjördæmi norður og
suður.
Kjósendur sem búa við sunnan-
verða Hringbraut eða Miklubraut
verða á kjörskrá í Reykjavíkurkjör-
dæmi suður en kjósendur sem búa
við þessar götur að norðanverðu
eru á kjörskrá í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður. Þó hefur verið ákveð-
ið að íbúar í Grafarholtshverfi,
austan Vesturlandsvegar, tilheyri
Reykjavíkurkjördæmi norður.
Alls eru 85.521 kjósandi á kjör-
skrá í Reykjavík. ■