Fréttablaðið - 14.04.2003, Síða 10

Fréttablaðið - 14.04.2003, Síða 10
SKAÐABÆTUR Ákvarðanir um skaðabætur til handa aðstandend- um þeirra sem létust í hryðju- verkarásásunum á World Trade Center í New York og varnar- málaráðuneytið í Washington hafa vakið óánægju meðal margra að- standenda að því er breska viku- blaðið The Economist greinir frá. Bæturnar eru greiddar úr op- inberum sjóði sem var komið á fót skömmu eftir árásirnar. Þær hafa verið mjög misjafnar og miðast að nokkru við þær tekjur sem mátti reikna með að viðkomandi hefðu haft í framtíðinni hefðu þeir lifað. Lægstu bæturnar hafa numið um 15 milljónum króna en þær hæstu hátt í hálfum milljarði. Þeir sem eru óánægðastir með bæturnar eru þó ekki þeir sem lægstar bætur fá heldur þeir sem fá hæstu bæturnar. Vegna þess að yfirmaður áætlunarinnar ákvað að setja þak og þröskuld á upphæð skaðabótanna finnst mörgum að- standendum tekjuhárra einstak- linga þeir hafa verið sviknir, að þeir fái mun lægri upphæðir en framtíðartekjur ástvina sinna myndu nema. Nokkur mál eru í gangi fyrir dómstólum af þessum sökum. Bandaríkjaþing sam- þykkti lög sem bönnuðu fólki að krefjast skaðabóta af flugfélögum sem áttu farþegaþoturnar sem flogið var á tvíburaturnana og fyrirtækjum sem sáu um öryggis- þjónustuna á flugvöllum og því getur fólk ekki sótt skaðabætur þangað eins og er svo oft gert þeg- ar flugvélar farast í Bandaríkjun- um. Þetta hefur vakið upp ýmsar spurningar hjá fólki. Ein þeirra spurninga sem blaðamaður spyr er hvort líf háttsetts bankamanns sé meira virði en líf slökkviliðs- manns. Bent hefur verið á að ef til vill hefði verið heppilegra að fara sömu leið við ákvörðun skaðabóta og Bandaríkjaher viðhefur. Aðstand- endur allra þeirra sem látast meðan þeir gegna herþjónustu fá andvirði 15 milljóna króna í bætur. George Priest, prófessor við Yale, segir í samtali við blaðið að ef til vill hefði verið betra að fara þá leið. Mótrök- in eru þau að hættan á háum skaða- bótum letji menn frá því að endur- taka afglöp sín. Þau segir Priest ekki eiga við í þessu. ■ 10 14. apríl 2003 MÁNUDAGUR ■ Asía ■ Stutt Deilt um virði mannslífa Ekki ríkir sátt um hvernig skaðabætur til aðstandenda þeirra sem létust í hryðjuverkaárásunum 11. september hafa verið ákveðnar. Nokkur kærumál standa yfir. FÓLK Á GÖTU Í MANHATTAN HINN AFDRIFARÍKA DAG Sérstakur sjóður var settur á fót til að greiða skaðabætur þeim sem slösuðust í hryðjuverkaárásinni og aðstandendum þeirra sem létust í henni. DÓMUR Hæstiréttur hefur dæmt ís- lenska ríkið til að greiða tollfulltrúa 9,5 milljónir króna í bætur vegna handtöku og gæsluvarðhalds að ósekju. Tollfulltrúinn var grunaður um að eiga aðild að ólöglegum innflutn- ingi á áfengi til landsins í tveimur vörugámum í júní og desember árið 1996. Hann var handtekinn og úr- skurðaður í gæsluvarðhald þann 16. janúar árið 1997. Gæsluvarðhaldið var tvisvar framlengt og sat hann inni í tæpan mánuð eða til 12. febr- úar. Á meðan hann sat í gæsluvarð- haldi var honum veitt lausn úr starfi um stundarsakir og í nóvem- ber sama ár var hann rekinn. Dómur í áfengisinnflutnings- málinu féll ekki fyrr en í apríl 2001 og var tollfulltrúinn þá sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins. Í kjölfarið höfðaði hann skaðabóta- mál á hendur íslenska ríkinu vegna handtöku og gæsluvarðhalds að ósekju, missis embættis og dráttar á málsmeðferð. Í maí í fyrra dæmdi Héraðsdóm- ur Reykjavíkur ríkið til að greiða manninum 5 milljónir króna í bæt- ur og 750 þúsund krónur í máls- kostnað. Ríkið áfrýjaði dómnum og í vikunni dæmdi Hæstiréttur það til að greiða 9,5 milljónir í bætur og 950 þúsund í málskostnað. Garðar Gíslason hæstaréttardómari skilaði sératkvæði þar sem hann fellst ekki á að lagaskilyrði hafi skort til að víkja tollfulltrúanum úr emb- ætti. Þótti honum hæfilegar bætur vera 1,5 milljónir króna. ■ Hæstiréttur þyngdi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur: Tollari fær 9,5 milljónir í bætur HÆSTIRÉTTUR Tollfulltrúi var grunaður um að eiga aðild að ólöglegum innflutningi á áfengi til landsins í tveimur vörugámum í júní og desember árið 1996. BREYTING Á KJÖRSTAÐ Í NOREGI Breyting hefur orðið á lista yfir kjörstaði í útlöndum vegna utan- kjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir alþingiskosningarnar 10. maí næstkomandi. Ræðismaður Ís- lands í Stafangri, Jan-Peter Schöpp, mun taka á móti kjósend- um. ELDUR Í BÍLSKÚR Eldur varð í bíl- skúr við Naustabúð á Hellissandi fyrir helgi. Svo virðist sem kvikn- að hafi í út frá rafmagni. Tals- verðar skemmdir urðu og ýmis verðmæti urðu eldinum að bráð. Slökkvilið Snæfellsbæjar kom á staðinn og slökkti eldinn. Það var húsbóndinn á heimilinu sem upp- götvaði eldinn eftir að hann fann reykjalykt. SPRENGING Í FLUGELDAVERK- SMIÐJU Að minnsta kosti sjö létu lífið og fjórir slösuðust þegar sprenging varð í flugeldaverk- smiðju í borginni Kagoshima í Japan. Mikill eldur braust út og var sprengingin svo öflug að rúður brotnuðu í skólabyggingu skammt frá. FERÐAMAÐUR DREPINN Ítalskur ferðamaður var skotinn til bana í suðurhluta Afganistan. Orfeo Bartolini, sem ferðaðist um heiminn á vélhjóli, fannst látinn í héraði þar sem vígasveitir Talí- bana hafa enn mjög sterk ítök. Ekki er vitað hvernig dauða hans bar að. BARNUNGIR HERMENN Yfirvöld í Sri Lanka og Tamil-tígrar hafa gert samkomulag um að koma á fót endurhæfingarstöðvum fyrir barnunga hermenn sem börðust í borgarastríðinu í landinu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna og Tamil-tígrar munu hafa yfir- umsjón með verkefninu. Hug- myndin er að börnin geti snúið aftur til fjölskyldna sinna að lok- inni endurhæfingu, en mörg þeirra eru afar illa farin bæði á sál og líkama. Taílenskur nýársfagnaður: Braut- ryðjandi heiðraður ÍSAFJÖRÐUR Fyrsta Taílendingnum sem fluttist til Vestfjarða var færð gjöf á taílenskri nýárshátíð á Ísafirði í gær. Gjöfina fékk hann í þakklætis- skyni fyrir að ryðja brautina í nýju samfélagi. Hátíðin hófst með líflegri skrúðgöngu um bæinn þar sem var bæði sungið og dansað. Gengið var með búddalíkneski í broddi fylkingar. Í Grunnskóla Ísafjarðar var meðal annars flutt erindi um nýárshátíðina og siði hennar. Hátíðarhöldunum lauk með fegurðarsamkeppninni Ung- frú Songkran. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.