Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 11
11MÁNUDAGUR 14. apríl 2003
LÖGREGLUMÁL Ungur maður og
kona voru handtekin á Selfossi í
fyrradag vegna gruns um þau
hefðu í fórum sínum fíkniefni. Í
kjölfarið var gerð húsleit hjá
manninum. Þar fannst umtalsvert
magn af fíkniefnum, á annað hund-
rað e-töflur, þrjátíu grömm af am-
fetamíni og rúmlega tuttugu
grömm af hassi. Þá fundust vogir
og blöndunarefni. Stórum hluta
fíkniefnanna hafði verið blandað í
söluumbúðir og telur lögreglan að
fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu
og dreifingar meðal ungs fólks á
Selfossi fyrir páskahátíðina.
Fólkinu var sleppt úr haldi í
gær og telst málið upplýst.
Þá var annar maður handtekinn
á Selfossi í fyrradag. Við húsleit
hjá honum fannst lítilræði af hassi.
Sú handtaka var í engum tengslum
við hitt málið. ■
Par handtekið á Selfossi:
Mikið magn
fíkniefna
fannst
HASS
Lögreglan gerði rúmlega tuttugu
grömm af hassi upptæk.
MADRÍD, AP Átta árum eftir að Jose
Maria Aznar lifði af morðtilræði
ETA, hryðjuverkahreyfingar
Baska, er hann sakaður um
hryðjuverk vegna stuðnings síns
við innrásina í Írak. Einn
baskneskur stjórnmálamaður
hefur gengið svo langt að segja
Aznar engu betri en hryðjuverka-
mennina sem reyndu að ráða
hann af dögum árið 1995.
Vinsældir spænska forsætis-
ráðherrans hafa minnkað mjög
vegna innrásarinnar í Írak. Að-
eins 31% landsmanna er ánægt
með störf Aznars samkvæmt
skoðanakönnun og hefur fækkað
mjög síðustu mánuði. Flokkur
Aznars var lengi vel talinn ör-
uggur um að halda meirihluta
sínum þrátt fyrir að Aznar hafi
lengi sagst ætla að hætta. Nú eru
menn ekki svo vissir. Forveri
Aznars á stóli forsætisráðherra,
sósíalistinn Felipe Gonzales, seg-
ir að Aznar verði að sækjast eftir
endurkjöri, hann geti ekki gert
eftirmanni sínum það að takast á
við vandann sem hann hefur
skapað.
Til marks um óvinsældirnar
má nefna mótmælagöngur þar
sem Aznar hefur verið kallaður
morðingi. Árásir hafa verið gerð-
ar á skrifstofur flokks Aznars og
nokkrir sagt sig úr flokknum í
mótmælaskyni. ■
BALTIMORE, AP Vísindamenn á veg-
um bandaríska hersins segja að
miltisbrandur sem fannst í
sendibréfum í Bandaríkjunum
fyrir tveimur árum síðan hafi
verið búinn til með einföldum
aðferðum, ódýrum búnaði og
takmarkaðri sérfræðikunnáttu.
Skýrsla þessa efnis var gefin út
eftir að framkvæmdar höfðu
verið nákvæmar rannsóknir á
efninu.
Niðurstöður vísindamann-
anna staðfesta kenningar banda-
rísku alríkislögreglunnar um að
miltisbrandurinn hafi verið
framleiddur af leikmönnum.
Rannsóknin vekur þó talsverðan
ugg þar sem hún gefur til kynna
að hryðjuverkasamtök á borð
við al Kaída geti með einföldum
hætti búið til banvæn sýklavopn
án fjárhagslegs stuðnings utan-
aðkomandi aðila. ■
FARALDUR, AP Tvö Asíuríki hafa
bæst í hóp þeirra átján landa þar
sem upp hafa komið tilfelli heil-
kennis alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu. Yfirvöld í Indónesíu
tilkynntu að breskur kaupsýslu-
maður hefði greinst með sjúk-
dóminn. Á Filippseyjum var er-
lendur ferðamaður á lagður inn á
spítala þegar hann sýndi einkenni
HABL. Báðir mennirnir höfðu ný-
lega ferðast til Hong Kong.
Í Hong Kong hafa yfirvöld
ákveðið að banna fólki sem um-
gengist hefur sýkta einstaklinga
að yfirgefa borgina. Þegar hefur
hundruðum manna verið gert að
halda sig heima í tilraun til þess
að hefta útbreiðslu sjúkdómsins.
Strangt eftirlit er haft með því að
fyrirskipunum yfirvalda sé fram-
fylgt.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna hefur varað almenning við
því að ferðast til Kína. Ástæðan er
meðal annars sú að kínversk yfir-
völd hafa tilkynnt að allir sem
sýni einkenni HABL verði lagðir
inn á sjúkrahús. ■
FARALDUR „Fólk hefur hringt nokk-
uð út af lungnabólgufaraldrinum,
en lítið er um að fólk leiti til lækn-
is,“ segir Sigurður Guðmundsson
landlæknir um viðbrögð við til-
mælum Landlæknisembættisins
um að fólk sem komi frá svæðum
þar sem faraldurinn hefur komið
upp leiti læknis verði það vart við
einkenni.
Faraldurinn hefur komið upp í
þremur löndum, Kína, Kanada og
Singapore. Sigurður segir ekki
ástæðu til að óttast. Aðeins fólk
sem komi frá þessum svæðum og
verði vart öndunarfærasýkingar
hafi ástæðu til að láta athuga sig,
það séu tilmælin.
„Meðgöngutími sjúkdómsins
er frá tveimur eða þremur dögum
upp í sjö daga. Ef tíu dagar eru
liðnir frá því fólk kom frá ein-
hverju þessara svæða og það er
að fá einhver einkenni er það ekki
þessi sjúkdómur,“ segir Sigurður.
Hann segir engar nýjar upplýs-
ingar komnar um eðli, orsök eða
útbreiðslu sýkingarinnar. Ýmsar
vangaveltur séu hins vegar uppi.
„Líklega er þetta ný veira, hugs-
anlega breytt corona-veira sem
veldur venjulegu kvefi. Hún gæti
hafa fengið erfðaefni í sig frá ein-
hverjum öðrum sýklum, einhvers
konar stökkbreyting með íblönd-
un við aðra sýkla og hefur klam-
idía til dæmis verið nefnd,“ segir
Sigurður.
„Margir faraldrar hafa gengið í
gegnum söguna. Þeir hafa yfirleitt
breiðst út frá einum stað til annars
þar sem fólk ferðaðist helst fót-
gangandi eða á hestum. En nú sjá-
um við hvernig nútímafaraldur
breiðist út. Mikið erfiðara er að sjá
útbreiðsluna fyrir. Það tekur mið
af því hvernig við ferðumst og því
eru tengsl milli Kanada, Kína og
Singapúr án þess að smit finnist
þar á milli, segir Sigurður. ■
Jose Maria Aznar:
Sakaður um
hryðjuverk
FORSÆTISRÁÐHERRA Í VANDA
Spænskir ljósmyndarar sem venjulega vaka vel yfir Aznar í þinginu sneru baki við honum
og héldu á lofti mynd af myndatökumanni sem bandarískir hermenn skutu til bana.
Fáir leitað læknis vegna lungnabólgufaraldurs:
Ekki ástæða
til að óttast
Hong Kong boðar hertar aðgerðir:
Tvö ný ríki
bætast í hópinn
BÍÐA VIÐSKIPTAVINA
Afgreiðslufólk bíður eftir viðskiptavinum í
tómri snyrtivöruverslun í verslunarmiðstöð
í Hong Kong. Verslunarmiðstöðin tilheyrir
húsaþyrpingu þar sem upp hafa komið
nokkur tilfelli heilkennis alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu.
MIKILL ÓTTI ÁSTÆÐULAUS
Nú sést hvernig nútímafaraldur breiðist út með tilliti til nýrra ferðahátta.
Rannsóknir á miltisbrandi:
Einfaldur í framleiðslu