Fréttablaðið - 14.04.2003, Qupperneq 15
15MÁNUDAGUR 14. apríl 2003
VERSLUN Húsfyllir var þegar
breska verslunarkeðjan Next
opnaði verslun í Kringlunni í
fyrradag. Samkvæmt talninga-
kerfi í versluninni komu níu þús-
und manns í verslunina fyrsta
daginn, eða ríflega þrjú prósent
þjóðarinnar. Aðsóknin að búðinni
er umtalsvert meiri en eigendur
hér á landi og forsvarsmenn Next
í Englandi bjuggust við og sjálf-
sagt fá fordæmi fyrir öðru eins.
Verslunin í Kringlunni er
fyrsta verslunin sem opnuð er í
norðurhluta Evrópu utan Bret-
landseyja. Verslunin býður upp á
tískufatnað fyrir konur, karla og
börn á hagstæðu verði. Verslunin
er á 2. hæð þar sem útivistarbúðin
Nanoq var áður. ■
ATVINNA „Fækkun atvinnulausra
er ekki einungis nýjum störfum
að þakka,“ segir Ketill Jósefsson,
forstöðumaður Svæðisvinnumiðl-
unar Suðurnesja, um fækkun at-
vinnulausra á Suðurnesjum. Ket-
ill segir að nýverið hafi verið
gerðir svokallaðir starfsþjálfun-
arsamningar við fyrirtæki og
stofnanir á svæðinu, bæði í einka-
geiranum og á vegum sveitarfé-
laganna. Hann segir að boðið sé
upp á starfsþjálfun frá þremur og
upp í sex mánuði. Viðkomandi fyr-
irtæki taka starfsmann af at-
vinnuleysisskrá og greiða laun og
tengd gjöld af viðkomandi starfs-
manni á samningstíma.
„Okkar draumur og markmið
með þessu er að viðkomandi fái
áframhaldandi ráðningu en það
hefur því miður ekki alltaf orðið,“
segir Ketill. Hann segir atvinnu-
leysi vera árstíðabundið á Íslandi,
sérstaklega á haustin og fram eft-
ir vetri. Hann segir sumarafleys-
ingar yfirleitt draga úr atvinnu-
leysinu. „Í fyrravor gerðist það að
óhemjufjöldi af sjómönnum bætt-
ist á atvinnuleysisskrá. Þeim var
sagt upp og bátum jafnvel lagt
vegna þess að kvótinn var leigður
út. Við höfum sjaldan verið með
jafn marga á atvinnuleysisskrá
yfir sumartímann eins og í fyrra.
Ég reyni að vera bjartsýnn hvað
sumarið varðar, en þó hafa komið
fulltrúar áhafna til okkar og
stungið því að okkur að nokkur
fjöldi gæti komið inn í maí. Ég hef
ekkert í höndunum hvað það varð-
ar en starf sjómannsins hefur ver-
ið að breytast, það er óöruggara
en áður,“ segir Ketill.
Ketill segir ýmislegt á seyði og
margt jákvætt fram undan í at-
vinnumálum. Hann segir að
ákveðið hafi verið að stækka fjöl-
brautaskólann og von sé á nýrri
sorpeyðingarstöð í Helguvík. Ket-
ill segir að Kaffitár hafi nú þegar
byrjað að reisa nýtt verksmiðju-
hús og ýmsar vegaframkvæmdir
séu hafnar eða liggi í loftinu.
„Sveitarfélögin þyrftu að vinna
betur saman og sýna meiri sam-
stöðu því það hefur gefist mjög
vel þegar þau vinna saman,“ segir
Ketill.
hrs@frettabladid.is
Starfsþjálfun fækk-
ar atvinnulausum
Gripið hefur verið til starfsþjálfunarsamninga á Suðurnesjum til
að fækka atvinnulausum. Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja vill nánara
samstarf sveitarfélaga.
FRÁ GRINDAVÍK
Ýmislegt er á seyði og margt jákvætt fram undan í atvinnumálum.
BELGRAD, AP Stjórnarandstæðingar
hafa orðið fórnarlömb nornaveiða
í stíl kommúnista, segir Vojislav
Kostunica, fyrrum forseti
Júgóslavíu. Nokkrir samstarfs-
menn hans hafa verið sakaðir um
að eiga þátt í morðinu á Zoran
Djindjic, fyrrum forsætisráð-
herra Serbíu. Kostunica neitar öll-
um slíkum ásökunum.
Um 7.000 manns hafa verið
teknir til yfirheyrslu vegna
morðsins á Djindjic. Rúmlega
þriðjungur þeirra er enn í fang-
elsi. Þeirra á meðal eru tveir sam-
starfsmenn Kostunica. ■
Leit að morðingjum:
Líkist mest
nornaveiðum
VOJISLAV KOSTUNICA
Rannsókn á morðinu á Djindjic tekur á sig
mynd kommúnískra nornaveiða.
Next í Kringlunni:
Þúsundir
komu fyrsta
daginn
FRÁ NEXT Í KRINGLUNNI
Við lokun var farið að bera á því að vörur vantaði í ákveðnum númerum, en ný sending af
vörum kom í búðina í gær. Nextbúðin í Kringlunni fær vörur með flugi frá Bretlandi
þrisvar í viku hverri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M