Fréttablaðið - 14.04.2003, Side 21
MÁNUDAGUR 14. apríl 2003 21
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
CHARLOTTE GRAYkl. 5.45, 8 og 10.20 CRUSH kl. 5.50 og 8 ABOUT SCHMIDT kl. 5.45
ABRAFAX OG SJÓRÆNINGJARNIR kl. 4 FINAL DESTINATION kl. 8 og 10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 b.i. 12 ára Sýnd kl. 10.10 THE HOURS b.i. 12 kl. 8
CHICAGO b.i. 12 kl. 8
Sýnd kl. 10 b.i. 14 ára
Sýnd kl. 5.50 og 10 b.i. 12 ára
COMEDIAN kl. 6
EL CRIMEN DEL PADRE AMAR kl. 6
NAQOYQATSI kl. 6
GOOD GIRL kl. 8
GAMLE MÆND I NYE Biler kl. 8
HEAVEN kl. 10.20
SPIDER kl. 10.20
KVIKMYNDAHÁTIÐ 101
Leikkonan Angeline Jolie hefurlofað að borga 5 milljónir doll-
ara til yfirvalda
í Kambódíu á
næstu 15 árum í
þeim tilgangi að
búa til friðaðan
griðastað fyrir
villt dýralíf í
landinu. Um er
að ræða 49 þús-
und ekrur af
skóglendi í norðvesturhluta lands-
ins. Leikkonan heillaðist mikið af
landinu þegar hún heimsótti það
við tökur á fyrri „Tomb Raider“-
kvikmyndinni sem fjallaði um æv-
intýri Löru Croft.
Bíl leikarans Sean Penn var ræntfyrir helgi. Í honum voru meðal
annars tvær byssur sem voru í
eigu leikarans. Leikarinn sat að
snæðingi á veitingahúsi um miðjan
dag þegar einhver fingralangur
einstaklingur skellti sér inn í bíl
hans, bak við stýrið og keyrði
burt. Ef þið finnið svartan Buick
Grand National með tveimur
skammbyssum í hanskahólfinu,
vinsamlegast hafið samband við
leikarann.
Breska tónlistarmanninum CraigDavid brá heldur í brún er
hann mætti á tónleikastað í Glas-
gow þar sem tónleikar hans höfðu
verið auglýstir. Ástæðan var sú að
„tónleikastaðurinn“ var ferja sem
tók aðeins 250 manns. Um var að
ræða einkateiti sem útvarpsstöð í
bænum hafði planað. Hlustendur
hringdu inn og kepptu um miða í
samkvæminu. David lét þetta ekki
á sig fá, tók lagið og skemmti sér
konunglega með gestunum.
Leikarinn Russell Crowe og eig-inkona hans Danielle Spencer
keyptu dýrustu
fasteign sem völ
var á í Sydney.
Húsið er á efstu
hæð háhýsis sem
liggur við hina
heimsfrægu höfn
borgarinnar. Leik-
arinn borgaði um
640 milljónir ís-
lenskra króna fyrir íbúðina.
Dub-tónlist hefur skotið uppdreymandi kolli sínum annað
slagið frá því að King Tubby og fé-
lagar fikruðu sig freðnir áfam með
delay-tæki sín í heimahljóðverum á
Jamaíka í lok sjöunda áratugarins.
Síðustu árin hefur hreinræktað
dub ekki verið auðfengið. Aðallega
hafa áhrif þess heyrst hér og þar í
öðrum stefnum, til dæmis mikið í
triphoppi og elektróník. Tilkoma
raftónlistarmannsins Deadbeat,
sem kemur frá Kanada, hlýtur því
að teljast ánægjuefni.
Frumraun hans, „Wild Life
Documentaries“, hefur allt það sem
góð dub-plata þarf að hafa til
brunns að bera og meira til. Tónlist
hans er þægilegur og heillandi sam-
bræðingur dubs og ambients. Ég
fékk nánast víðáttubrjálæði að
renna þessari plötu í gegn þar sem
hljóðheimurinn er stærri en rúm-
mál Smáralindar. Skrjáf-rafhljóðin
renna sér til hægri, vinstri, upp og
niður í gegnum hafssjó endurvarps-
ins og einfaldar laglínurnar gera
meira fyrir andlega líðan hlustand-
ans en nálastunguaðferðin.
Á meðan ég er að skrifa þetta er
ég með heyrnartólin á höfðinu og
því staðsettur inni í miðju tónhaf-
inu. Ég er orðinn svo rosalega af-
slappaður við hlustunina að ég er
byrjaður að slefa á lyklaborðið og
er alveg við það að so... zzz... zzz...
zzz... hmmm... svíííífaaandi skýý...
Birgir Örn Steinarsson
DEADBEAT: Wild Life Documentaries
Umfjölluntónlist
Eins og þægilegt
andvarp
Rapparinn Snoop Dogg komstnærri dauða sínum á fimmtu-
dagskvöldið síðasta. Hann var að
keyra í glæsibifreið sinni í miðbæ
Los Angeles þegar þrír menn í
nálægum bíl hófu skothríð. Allir
mennirnir þrír tóku þátt í því að
skjóta á bíl rapparans og greinilega
um skipulagt morðtilræði að ræða.
Einn tilræðismannana er sagður
hafa kallað nafn rapparans áður en
kúlnahríðin hófst. Rapparinn hafi
neitað að sýna sig og eftir það
rigndi kúlum á bifreiðina.
Í bíl Snoop voru sjö lífverðir og
meiddist einn þeirra mikið. Snoop,
sem heitir réttu nafni Calvin
Broadus, er sagður ómeiddur.
Enn sem komið er hefur enginn
verið handtekinn fyrir tilræðið.
Snoop Dogg var fyrsti rappar-
inn sem upptökustjórinn Dr. Dre
tók undir sinn verndarvæng. Sam-
an gerðu þeir tímamótaplötuna
„Doggystyle“ árið 1993. Snoop varð
á skömmum tíma einn vinsælasti
rappari Bandaríkjanna en hefur átt
í erfiðleikum með að halda í vin-
sældir sínar eftir að samstarfi hans
og Dr. Dre lauk.
Síðasta plata hans „Paid tha Cost
to Be da Bo$$“, sem kom út í fyrra,
þótti hans best heppnaða í mörg ár.
Vinsældir hans hafa svo farið ört
vaxandi að nýju eftir að rapparinn
tók að sér að gera gamanþætti fyr-
ir MTV-sjónvarpsstöðina. Hann
hefur einnig reynt að fóta sig í
kvikmyndaleik með misjöfnum ár-
angri. ■
Snoop Dogg:
Slapp ómeiddur
frá morðtilræði
SNOOP DOGG
Komst nálægt því á
fimmtudag að uppfylla
spádóm textans „Murder
Was the Case“.
■ TÓNLIST