Fréttablaðið - 14.04.2003, Side 23
MÁNUDAGUR 14. apríl 2003
SJÓNVARP Samtök sjónvarpsfrétta-
stofa hafa sent frá sér tilkynningu
þar sem þau biðja Íraksher og
Bandaríkjaher um aukinn skiln-
ing og virðingu fyrir vinnu þeirra.
Þau hvetja báðar hliðar til að
vernda fréttamenn til þess að
sannleikurinn komist rétt til skila.
„Í stríði verða margir saklaus-
ir einstaklingar að fórnarlömbum,
en við höfum sérstökum skyldum
að gegna gagnvart þeim sem
kjósa að setja í hættu þá hugsjón
að halda heimssamfélaginu vel
upplýstu,“ segir í tilkynningunni.
„Fjölmiðlafólk er reiðubúið til
þess að hætta lífi sínu vegna þess
að það er sannfært um að deilur á
milli samfélaga leysist betur ef
fólk fær tækifæri til að meta að-
stæður út frá staðreyndum.“
Tíu fjölmiðlamenn hafa látist í
Íraksstríðinu og tveggja er sakn-
að. Stærsti hluti þeirra hefur ver-
ið tökumenn og fréttaskýrendur.
Allir höfðu reynslu af því að segja
fréttir frá stríðssvæðum.
Á þriðjudag létust þrír í
Bagdad þegar skot úr bandarísk-
um skriðdreka kom niður á hótel
þar sem hundruð blaða- og frétta-
manna gistu. ■
Samtök sjónvarpsfréttastofa:
Biðja um vernd
SADDAM FELLDUR AF STÓLI
Tíu fjölmiðlamenn hafa látist í stríðsátök-
unum í Írak. Fréttastofur hvetja til virðingar
fyrir vinnu fjölmiðlamanna.
STJÖRNULÍF Kiefer segist sjálfur
hafa lifað lífinu hratt og að hann
hafi ekki getað beðið eftir að full-
orðnast. „Ég hætti í skóla þegar
ég var 15 ára og ákvað ári seinna
að verða leikari,“ segir hann í ný-
legu viðtali. „Svo gifti ég mig 19
ára, eignaðist barn og skildi.“
Fyrsta eiginkona Kiefers var
leikkonan Camelia Kath, sem er
tólf árum eldri en hann, og þau
eru enn góðir vinir.
Leikarinn hefur alltaf verið
eftirlæti slúðurdálkahöfunda og
fátt hefur vakið meira umtal en
fyrirhuguð gifting hans og Juliu
Roberts árið 1991. Julia aflýsti
brúðkaupinu þremur dögum fyrir
brúðkaupsdaginn og hljópst á
brott til Írlands með vini sínum
Jason Patric. Kiefer sat eftir með
sárt ennið og harðneitaði að
ástæðan fyrir brotthlaupi brúðar-
innar væri hans eigið framhjá-
hald. Leikarinn fann svo ástina
aftur árið 1996 og þá með súper-
módelinu Kelly Winn. Það hjóna-
band entist í þrjú ár.
Undanfarið hefur gengið
orðrómur um að Kiefer eigi í ást-
arsambandi við listakonuna
Catherine Bisson, en hann segir
engan fót fyrir því. „Við erum
góðir vinir, það er allt og sumt.“
Nú er Kiefer sem sagt á lausu
og þrátt fyrir langan vinnudag við
upptöku á sjónvarpsþáttunum 24
er hann mikið á djamminu. „Ég á
ekki í neinni baráttu við áfengið,“
segir hann. „Mér finnst einfald-
lega gaman að skemmta mér og
drekk auðvitað stundum of mikið.
En ég er búinn að leika í 40 kvik-
myndum og hef aldrei komið of
seint í vinnu. Ég á ekki við vanda-
mál að stríða.“
Þrátt fyrir að Kiefer sé sérlega
fallegur og sexý segist hann dauð-
hræddur við að reyna við stelpur.
„Það endar yfirleitt með ósköp-
um. Þó ég reyni að brosa og vera
eðlilegur verð ég máttlaus í
hnjánum og alltaf hálf hallæris-
legur.“
Hann segist ekki verða auð-
veldlega ástfanginn, en þegar það
gerist á annað borð sé hann ást-
fanginn upp fyrir haus. „Ég heill-
ast af góðum konum. Sterkar og
góðar konur eru kynþokkafyllst-
ar,“ upplýsir Kiefer Sutherland. ■
24 stunda partýtröll
Kiefer Sutherland, sem nú gleður áhorfendur Stöðvar 2 sem leyniþjónustumaðurinn
Jack Bauer í 24 Hours, er einhleypur og sérlega liðtækur á djamminu. Hann þvertekur þó
fyrir að hann eigi við áfengisvandamál að stríða.
KYNÞOKKAFULLUR SJARMÖR
Kiefer Sutherland er á lausu núna og tíður
gestur á skemmtistöðunum.
Dómstóll í Hollandi:
Táfýlu-
maður
dæmdur
FÓTAFNYKUR 39 ára Hollendingur í
Delft, sem var ákærður fyrir að
fara ítrekað inn á bókasafn í bæn-
um á illa lyktandi sokkaleistum,
áfrýjaði málinu og tapaði. Ekki
nóg með það heldur var sektin
þyngd um helming.
Maðurinn mun hafa látið kvart-
anir safnvarðar og gesta sem vind
um eyru þjóta og hélt áfram að
koma á bókasafnið í táfýlusokkun-
um, öðrum til sárrar gremju.
Hann var dæmdur til að greiða
rúmar fimm þúsund krónur í sekt,
en nú hefur upphæðin sem sagt
verið tvöfölduð. Maðurinn er ekki
sáttur við niðurstöðuna og ætlar
með málið fyrir æðri dómstóla í
Hollandi.
„Ég þekki minn rétt,“ segir
hann, „og gefst ekki upp fyrir
teprunum.“ ■
NATALIE IMBRUGLIA
Söngkonan Natalie Imbruglia var glæsileg
er hún mætti til frumsýningar gaman-
myndarinnar „Johnny English“ í Empire-
kvikmyndahúsinu við Leicester Square í
London á sunnudaginn fyrir viku. Eins og
margir vita er þetta nú ekki í fyrsta skipti
sem stúlkan fetar leiklistarbrautina því hún
var lengi með hlutverk í áströlsku sápuóp-
erunni „Nágrannar“.
BÓKAORMUR DÆMDUR
Hollenskur bókaormur var dæmdur til að
greiða 5 þúsund krónur í sekt.