Fréttablaðið - 14.04.2003, Side 30

Fréttablaðið - 14.04.2003, Side 30
Björn Bjarnason er í jötunmóðþessa daganna og fer mikinn á heimasíðu sinni, www.bjorn.is. Hann skýtur enn þungum skotum að fólki sem starfar við fjölmiðla. Undir pistlinum „Traust eða tækifæris- mennska í stjórnmálum og fjölmiðl- um segir Björn meðal annars: „Ég sé, að á pressan á strik.is, hina deyjandi og rykföllnu vefsíðu, sem Ásgeir Friðgeirsson, frambjóð- andi Samfylkingarinnar, stýrir, skrifar Hallgrímur Thorsteinsson, þáttarstjórnandi í útvarpi Sögu, pistil og gefur til kynna, að þessi gagnrýni mín á ríkisútvarpið missi marks, af því að ég sinni stjórnmála- störfum og sé auk þess sjálfstæðis- maður.“ Eftir að hafa bent á villur í rök- stuðningi Hallgríms segir Björn: „Hún breytir auðvitað engu um rétt minn til að gagnrýna efni í ríkis- útvarpinu eða öðrum fjölmiðlum, ef mér þykir ástæða til þess.“ 30 14. apríl 2003 MÁNUDAGUR FASTEIGNASALI „Það eru minni pening- ar í þessu en maður hélt. En fyrir duglega menn getur lífsafkoman verið góð en það gerist ekkert af sjálfu sér,“ segir Björn Þorri Vikt- orsson, formaður Félags fasteigna- sala, sem fundaði með sínu fólki á dögunum um menntunarmál fast- eignasala og kröfur sem til þeirra eru gerðar. Björn vill auka kröfurn- ar og ætlar að fylgja þeirri skoðun sinni fast eftir í samráði við dóms- málaráðuneytið. Björn er lögfræðingur að mennt og byrjaði í fasteignasölunni þegar hann var að leita sér að sumarvinnu á háskólaárunum: „Mér fannst þetta spennandi og svo festist ég í þessu,“ segir hann. Uppalinn á Akranesi en rekur ættir sínar í Skagafjörðinn þar sem hann var í sveit í 14 sumur á Hvíteyrum í Lýtingsstaðahreppi: „Þar lærði ég að vinna og fór á hest- bak daglega. Eiginlega synd að krakkar fari ekki lengur í sveit. Þar er ekkert lengur fyrir þau að gera, allt fullt af vélum og hreinlega hættulegt,“ segir Björn sem rekur fasteignasöluna Miðborg við Suður- landsbraut í samvinnu við aðra. Kvæntur Salvöru Lilju Brandsdótt- ur og saman eiga þau þrjú börn; tvær stelpur og einn strák: „Konan mín er matreiðslumeist- ari og var yfirkokkur á Grand hót- eli. En með þrjú börn er of mikið að sinna því öllu. Hún býr til fínan mat heima og þess nýt ég til fulls eins og sjá má á ístrunni á mér,“ segir formaður Félags fasteigna- sala sem hvílir bein og huga með því að ferðast um hálendið á sínum fjallajeppa ásamt fjölskyldu. Þar finnur hann hvíld frá argaþrasi fasteignasölunnar og hugsar sitt ráð. Eins og vera ber. ■ Persónan BJÖRN ÞORRI VIKTORSSON FORMAÐUR FÉLAGS FASTEIGNASALA ■ hefur vissar áhyggjur af þeim kröfum sem gerðar eru til stéttarinnar. Því ætlar hann að breyta - og bæta. Imbakassinn Með yfirkokk á heimilinu w w w .d es ig n. is © 2 00 3Fæst um land allt Dreifingaraðili: Tákn heilagrar þrenningar Til styrktar blindum BJÖRN ÞORRI VIKTORSSON Hugsar sitt ráð í fjallajeppa á hálendinu með konuna sér við hlið og börnin í aftur- sætinu. TEKIÐ Á ÓÞEKKT Hjalti Sölvason, starfsþróunarstjóri Nýherja, segir fyrirtæki geta gert ýmislegt til að draga úr líkum á því að starfsmenn séu óþekkir í vinnunni. STARFSMANNAMÁL Óþekkt er ekki bundin við æskuna. Hún fylgir okkur mannfólkinu alla tíð. Hjalti Sölvason, starfsþróunarstjóri hjá Nýherja, hefur velt fyrir sér óþekkt á vinnustöðum. „Óþekkt á vinnustað er það sem starfsmenn gera í vinnutíma sem er ekki ætl- ast til þess að þeir geri,“ segir Hjalti. „Þetta er frjálsleg þýðing á enskum bókartitli, Organizational Misbehaviour.“ Einn höfunda bókarinnar, Paul Thompson, var einmitt kennari Hjalta í Edinborg. Hann segir að þeir skilgreini óþekktina í bókinni mjög breitt; allt frá því að vinna ekki nógu vel upp í það að vinna ekki þau verk sem á að vinna. Sum óþekktin sé lögbrot, en önnur sé lögleg en stangist á við almennt siðferði. „Það er ekki ólöglegt að koma af stað kjaftasögu, en það er ekki siðlegt.“ Óþekktin hefur ýmist birtingar- form. Stríðni og rógburður eru eitt, en alvarlegasta stigið er ein- elti. Þjófnaður og skemmdarverk eru einnig dæmi um óþekkt á vinnustað. Algengari dæmi óþekktar eru hins vegar óhófleg notkun síma, tölvupósts og skreppitúra sem eru í óþökk at- vinnurekanda. Hjalti segir orsakir óþekktar vera viljann til að ráða sér sjálfur. „Þetta er ákveðin sjálfstæðisbar- átta. Sumir finna hjá sér löngun til að brjóta reglurnar.“ Hann segir einnig algengt að erfiðleikar í einkalífi brjótist út í óþekkt að vinnustaðnum. Fólk taki með sér vanlíðan í vinnuna. „Ástæðan get- ur líka verið óánægja með laun eða stefnu fyrirtækis.“ Hjalti segir rót óþekktar einnig geta legið hjá fyrirtækinu sjálfu. „Samband yfirmanns og starfs- manns hefur mikið að segja. Því betra samband milli starfsmanns og yfirmanns, því minni líkur eru á óþekkt starfsmanns.“ haflidi@frettabladid.is Vinnustaðurinn ■ Óþekkt er fyrirbæri sem kemur fyrir á mörgum vinnustöðum. Óþekkt er allt frá smávægilegu slugsi upp í glæpsam- lega hegðun. Hvað er steikin að gera í rúminu, Runólfur? Það á að láta hana liggja í tuttugu mínútur! af fólkiFréttir Óþekktarangar vinnustaðarins

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.