Fréttablaðið - 12.05.2003, Qupperneq 4
4 12. maí 2003 MÁNUDAGUR
Var þetta spennandi kosninga-
nótt?
Spurning dagsins í dag:
Ertu ánægð(ur) með úrslit kosning-
anna?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
40%
60%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Kristján Möller ánægður með stuðninginn:
Vissi að þetta yrði tvísýnt
KOSNINGAR „Ég er mjög sáttur og
kátur með þessa viðbót sem við
fáum í þessu kjördæmi,“ sagði
Kristján Möller, þingmaður
Samfylkingar í Norðausturkjör-
dæmi. „Við sjáum að það er
grundvöllur fyrir því að búa til
sterkan jafnaðarmannaflokk.“
Þrátt fyrir að Framsókn fengi
áberandi mestan stuðning fólks í
kjördæminu bætir Samfylking
talsverðu við sig frá síðustu
kosningum og fær jafnmörg at-
kvæði og Sjálfstæðisflokkurinn.
„Við settum okkur það tak-
mark að komast upp fyrir 30
prósent og það náðist. Við erum
að bjóða fram í fyrsta skipti. Síð-
ast vorum við kosningabandalag
fjögurra flokka og því er þetta
stórmerkilegur árangur í því
ljósi.“
„Mér er efst í huga þakklæti
til okkar stuðningsmanna í mínu
breytta kjördæmi og allra þeirra
sem tóku þátt í þessari baráttu
með okkur. Nýja kjördæmið er
stórt og enginn leikur að nálgast
kjósendur á öllum stöðum, en
þetta hafðist.“ ■
Dramatík í Reykjavík
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var inni þar til klukkan rúmlega níu í gær-
morgun. Framsóknarmaðurinn Árni Magnússon skaust þá upp fyrir
hana. Frjálslyndir fengu ekki mann.
KOSNINGAR Kosningin í Reykjavík-
urkjördæmi norður var mjög
dramatísk. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, forsætisráðherraefni Sam-
fylkingarinnar, var inni allt þar til
klukkan rúmlega níu í gærmorgun,
þegar framsóknarmaðurinn Árni
Magnússon ýtti henni út.
Framsóknarflokkurinn vann
þónokkurn sigur í kjördæminu, þar
sem hann fékk tvo menn kjörna.
Skoðanakannanir höfðu sýnt að
jafnvel Halldór Ásgrímsson væri
tæpur á að komast inn, en þegar
talningu var lokið stóð Framsókn-
arflokkurinn uppi með tvo menn
kjörna í
R e y k j a v í k
norður og einn
í Reykjavík
suður.
Þó Ingi-
björg Sólrún
hafi ekki náð á
þing fékk Sam-
fylkingin átta
menn kjörna í
Reykjavíkur-
kjördæmunum
tveimur, og eru
þrír þeirra að
setjast á þing í
fyrsta skiptið.
Össur Skarp-
h é ð i n s s o n
skákaði Davíð
Oddssyni í
R e y k j a v í k
norður með því
að ná fyrsta
sætinu þar. Næstu menn inn í báð-
um kjördæmunum voru Samfylk-
ingarmenn.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem fékk
tæp 46% þegar Reykjavík var eitt
kjördæmi fyrir fjórum árum, tap-
aði töluverðu af því fylgi núna.
Flokkurinn fékk tæp 36% í Reykja-
vík norður og 38% í Reykjavík suð-
ur. Alls fengu sjálfstæðismenn níu
þingmenn kjörna, þar af þrjá sem
eru að setjast á þing í fyrsta skipt-
ið. Hinir nýju þingmenn flokksins
eru allt ungir karlmenn. Þeir taka
sæti þriggja kvenna sem hafa setið
á þingi fyrir flokkinn, en þær eru
Lára Margrét Ragnarsdóttir,
Katrín Fjeldsted og Ásta Möller.
Vinstri grænir fengu samtals
tvo menn kjörna í Reykjavík og
það þýðir að Kolbrún Halldórsdótt-
ir og Ögmundur Jónasson halda
þingsætum sínum. Úrslit kosning-
anna í Reykjavík voru nokkur von-
brigði fyrir Frjálslynda flokkinn
því hvorki Margrét Sverrisdóttir
né Sigurður Ingi Jónsson náðu
kjöri. Nýtt afl fékk 1,3% í Reykja-
vík norður og 1,4% í Reykjavík
suður.
trausti@frettabladid.is
FRÁ GAZA
Íbúðarhús í rúst eftir árásir ísraelskra her-
manna.
Powell á ferð um Vestur-
bakkann.
Friðarferlið
af stað
JERÚSALEM, AP Ísraelskar hersveitir
réðust inn í þorp á heimastjórnar-
svæði Palestínu og palestínskur
byssumaður drap vegfaranda á
sama tíma og Colin Powell, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
hvatti báðar þjóðir til að ganga til
samninga um frið á svæðinu.
Powell var á Vesturbakkanum
á fundi með forsætisráðherra
Palestínu, Mahmoud Abbas, til að
þrýsta á um að Palestínumenn
gengu eftir að svokallað „vega-
kort til friðar“ yrði virt af hálfu
Palestínumanna. Hefur hann lof-
að að beita Ariel Sharon sams kon-
ar þrýstingi en Sharon hefur látið
hafa eftir sér að Ísraelsmenn ætli
ekki að hætta baráttunni gegn
hryðjuverkamönnum sem undan-
farin ár hafa sprengt, skotið og
limlest fleiri hundruð manns í
landinu. ■
NORÐUR-ÍRLAND
Upp komst um háttsettan
breskan njósnara.
Upp kemst um síðir:
Breskur
njósnari á
flótta
ÍRLAND, AP Bresk blöð skýra frá því
að einn helsti njósnari Breta inn-
an IRA, írska lýðveldishersins, sé
á flótta eftir að upp um hann
komst innan samtakanna.
Njósnarinn er einn af örfáum
breskum njósnurum sem tekist
hefur að koma sér fyrir í innsta
hring samtakanna. Hann reis hátt
og var orðinn sérlegur öryggis-
fulltrúi í Lýðveldishernum, þeim
sama og hann njósnaði um, á
skömmum tíma.
Háttsettir lögreglumenn í N-Ír-
landi staðfesta að „Steikarhnífur,“
sem er dulnefni njósnarans, hafi
flúið og sé nú undir verndarvæng
bresku leyniþjónustunnar. ■
Afar ólíklegt að útstrikanir í Reykjavíkurkjördæmum
breyti úrslitum kosninganna:
Um 1.000 kjörseðlum
Samfylkingar breytt
KOSNINGAR Um 1.000 kjörseðlum
Samfylkingarinnar í Reykjavíkur-
kjördæmi norður var breytt með
því að færa menn upp eða strika
út aðra, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins.
Helst var það nafn Helga
Hjörvar sem var strikað út og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir færð
ofar á listann. Ríkisútvarpið
greindi frá því í gær að um 500
kjörseðlum sjálfstæðismanna hafi
verið breytt. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins var helst verið
að strika út nafn Davíðs Oddsson-
ar, Björns Bjarnasonar og hinna
ungu frambjóðenda flokksins. Um
250 kjörseðlum Vinstri grænna
var breytt.
Sveinn Sveinsson, í yfirkjör-
stjórn Reykjavíkurkjördæmis
suður, segir að breytingar og út-
strikanir á kjörseðlum hafi verið
um 800 til 900 í Reykjavík suður.
Hann segist ekki hafa upplýsingar
um það hverja var verið að strika
út. Ríkisútvarpið greindi frá því
að nokkuð hafi verið um að nöfn
Sólveigar Pétursdóttur, Marðar
Árnasonar og Jóhönnu Sigurðar-
dóttur hafi verið strikuð út.
Farið verður yfir kjörseðlana í
vikunni, en afar ólíklegt er talið
að það muni leiða til breytinga á
úrslitum kosninganna. ■
KRISTJÁN MÖLLER
Mikið þakklæti til stuðningsmanna.
HELGI HJÖRVAR
Helst var það nafn Helga Hjörvar sem var
strikað út og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
færð ofar á listann.
STYRKURINN AFHENTUR
Sveinbjörn Ragnarsson, gjaldkeri LNV, og
Kristján Örn Kristjánsson, formaður LNV,
afhentu Rúnari Birni Pálssyni styrkinn.
Sauðárkrókur:
Lögreglan
afhendir
styrk
GJÖF Líknar- og hjálparsjóður
Landssambands lögreglumanna
afhenti í gærdag Rúnari Birni
Þorkelssyni og fjölskyldu fjár-
styrk. Rúnar Björn féll úr ljósa-
staur á Sauðárkóki á nýársdag á
þessu ári. Eftir slysið lamaðist
hann. Rúnar hefur nú öðlast mátt
í hendur og er það meira en búast
mátti við í fyrstu. Vonast hann eft-
ir því að ná það miklum framför-
um að hann geti ekið bíl í framtíð-
inni.
Það var að frumkvæði lög-
reglumanna á Sauðárkróki að
líknarsjóðinum var send beiðni
um styrk. ■
Hvetur sitt fólk til dáða:
Kosningar á
Ítalíu í nánd
RÓM, AP Silvio Berlusconi, forseti
Ítalíu, jós skömmum yfir komm-
únista í ávarpi til flokks síns,
Forza Italia. Sagði hann þar að
brottför hans úr viðskiptaheimin-
um í stjórnmál hefði verið nauð-
syn til að bjarga Ítölum frá
vinstrihreyfingunni á Ítalíu en
ekki í eigin þágu, eins og gagn-
rýnendur hans hafa haldið fram.
Sveitarstjórnarkosningar fara
fram á Ítalíu eftir tvær vikur og
er stuðningur við Berlusconi og
flokk hans í lágmarki eftir að enn
ein réttarhöldin hófust vegna
meintrar spillingar forsetans.
Berlusconi hefur lengi haft
ímugust á kommúnistum og hefur
varað sterkt við því að þeir komist
til valda á Ítalíu. ■
Pakistanar rétta
sáttahönd:
Tilboð um
viðræður
PAKISTAN, AP Talsmaður stjórn-
valda í Pakistan hefur látið hafa
eftir sér að friðarviðræður á
milli Indlands og Pakistan geti
hafist innan tíðar. „Við getum
hafið viðræður fljótlega, von-
andi strax í næsta mánuði,“
sagði Rashid Ahmed, upplýs-
ingaráðherra Pakistan.
Landamæradeilur hafa verið á
milli þjóðanna í langan tíma og
oft munað litlu að upp úr syði.
Báðar þjóðir búa yfir kjarnorku-
vopnum sem þær hafa hótað að
nota ef aðstæður krefjast. ■
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
Formaður Samfylking-
arinnar skákaði Davíð
Oddssyni, formanni
Sjálfstæðisflokksins, í
Reykjavíkurkjördæmi
norður. Alls fékk Sam-
fylkingin átta þing-
menn kjörna í Reykja-
vík en Sjálfstæðis-
flokkurinn níu.
Reykjavíkurkjördæmi
norður
11
,6
%
3
5
,5
%
5
,5
%
1
,3
%
3
6
,3
%
9
,8
%
Úrslit kosninga 2003
Kjördæmakjörnir:
Össur Skarphéðinsson S
Davíð Oddsson D
Bryndís Hlöðversdóttir S
Björn Bjarnason D
Guðrún Ögmundsdóttir S
Guðlaugur Þór Þórðarson D *
Halldór Ásgrímsson B
Kolbrún Halldórsdóttir U
Helgi Hjörvar S *
Uppbótarþingmenn:
Sigurður Kári Kristjánsson D *
Árni Magnússon B *
Næstir inn:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir S
Ásta Möller D
* Nýir þingmenn
Reykjavíkurkjördæmi
suður
11
,3
%
3
8
,0
%
6
,6
%
1
,4
%
3
3
,3
%
9
,3
%
Úrslit kosninga 2003
Kjördæmakjörnir:
Geir H. Haarde D
Jóhanna Sigurðardóttir S
Pétur Blöndal D
Ásta Ragnh. Jóhannesdóttir S
Sólveig G. Pétursdóttir D
Jónína Bjartmarz B
Mörður Árnason S *
Guðmundur Hallvarðsson D
Ögmundur Jónasson U
Uppbótarþingmenn:
Ágúst Ólafur Ágústsson S *
Birgir Ármannsson D *
Næstir inn:
Einar Karl Haraldsson S
Margrét K. Sverrisdóttir F
* Nýir þingmenn
2 4 4 1
1 5 4 1
BERLUSCONI
Getur ekki liðið kommúnista við stjórn Ítalíu.