Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 6
6 12. maí 2003 MÁNUDAGUR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73.53 -0,74%
Sterlingspund 117.89 -0,41%
Dönsk króna 11.38 0,00%
Evra 84.51 0,45%
Gengisvístala krónu 118,84 -0,47%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 225
Velta 1.118 milljónir
ICEX-15 1.422 0,54%
Mestu viðskipti
Búnaðarbanki Íslands hf.106.207.202
Sölumiðstöð Hraðfrystih. hf. 99.004.950
Baugur Group hf. 98.625.921
Mesta hækkun
Síldarvinnslan hf. 3,26%
Baugur Group hf. 2,78%
Tryggingamiðstöðin hf. 1,96%
Mesta lækkun
Olíuverslun Íslands hf. -4,76%
Skýrr hf. -3,33%
Marel hf. -3,27%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 8604,6 1,3%
Nasdaq: 1520,2 2,0%
FTSE: 3969,4 1,0%
DAX: 2938,1 1,8%
NIKKEI: 8152,2 1,5%
S&P: 933,4 1,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Næstyngsti þingmaðurinn sem kjörinnhefur verið á þing kemur úr Fram-
sóknarflokknum. Þingmaðurinn er 24 ára
gamall. Hvað heitir hann?
2Atli Eðvaldsson hefur látið af störfumsem landsliðsþjálfari karla í knatt-
spyrnu. Ráðinn hefur verið nýr þjálfari til
bráðabirgða. Hvað heitir hann?
3Listaverk íslensks listamanns eyði-lagðist á hafnarbakkanum í Reykja-
vík þegar það brotnaði. Hver er listamað-
urinn?
Svörin eru á bls. 38
Mánudaga
til Föstudaga
Laugardaga kl: 12:00 til 16:00
Opnunartími í sumar:
Sími: 514-4407
kl: 13:00 til 18:00
Belgískur þingmaður:
Lést við
mótmæli
BRUSSEL, AP Stjórnarandstöðumað-
urinn Paul Van Malderen hneig
niður meðan hann tók þátt í mót-
mælagöngu gegn stefnu stjórn-
valda í umhverfismálum. Van
Malderen var fluttur á sjúkrahús.
Þar var hann lýstur látinn af völd-
um hjartaslags.
Um 16.000 manns tóku þátt í
mótmælagöngunni, sem fór fram
í Ghent. Vika er þar til kosið verð-
ur til belgíska þingsins. Van Mald-
eren var ekki í framboði sjálfur. ■
Sigurður Kári
Kristjánsson:
Bíð eftir að
byrja
ÞINGMAÐUR „Kosninganóttin var
mjög spennandi og ég er rosa-
lega ánægður með að vera kom-
inn á þing, get
ekki beðið eft-
ir því að
byrja,“ segir
Sigurður Kári
Kristjánsson,
fjórði þing-
maður Sjálf-
stæðisflokks í
R e y k j a v í k
suður.
S i g u r ð u r
Kári segir að
á heildina litið
lítist honum
vel á niður-
stöðurnar að
því leyti að miklar breytingar
verði, þar sem ný kynslóð sé að
koma inn á Alþingi. Margt ungt
fólk komi úr mörgum flokkum og
líst honum vel á næstu fjögur ár.
Hann segir að væntanlega verði
umskiptin mikil og mörg ný sjón-
armið komi fram. „Þrátt fyrir að
þetta fólk sé ekki allt í Sjálfstæð-
isflokknum held ég að unga kyn-
slóðin sé frjálslyndari og við
komum til með að sjá stuðning
við mál sem lúta að auknu frelsi
á næstu árum, það er sama hvað-
an gott kemur. Ég held að við
munum kýla á að vín og bjór fari
í búðirnar svo ég taki það sem
dæmi,“ segir Sigurður Kári.
Sigurður segir því ekki að
neita að Sjálfstæðismenn hefðu
viljað sjá meira fylgi. Hann seg-
ist telja að flokkurinn hafi staðið
sig vel síðustu fjögur ár og að
tillögur hans hafi verið mjög
góðar. „Við erum mjög ánægð
með að ríkisstjórnin haldi svo
traustum meirihluta. „Mín spá
er að ríkisstjórnin haldi áfram,
enda er það að mínu mati það
besta sem getur gerst að stjórn-
in haldi áfram á þeirri leið sem
hún hefur verið.“ ■
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslyndra:
Svekktur með fimmta manninn
Féll fram af klettum:
Lést
samstundis
BANASLYS Rúmlega tvítugur mað-
ur lést eftir að hann féll fram af
klettum á Hellissandi rétt eftir
miðnætti á föstudag. Maðurinn
féll niður fimm metra og er talið
að hann hafi látist samstundis.
Maðurinn var ásamt gömlum
skólafélögum sínum við gleð-
skap á skemmtistaðnum Svörtu-
loftum. Varð slysið í námunda
við staðinn. Mikil geðshræring
greip um sig meðal félaga
mannsins og fengu þeir allir
áfallahjálp.
Ekki er vitað nákvæmlega
hvernig slysið varð og er málið í
rannsókn. ■
Sturla Böðvarsson ánægður með fylgið:
Kom ekkert á óvart
KOSNINGAR „Flokkurinn er að
uppskera langt, langt undir
væntingum á landsvísu,“ sagði
Sturla Böðvarsson, efsti maður á
lista Sjálfstæðisflokks í Norð-
vesturkjördæmi. Það er eina
kjördæmið þar sem flokkurinn
hélt í horfinu frá síðustu kosn-
ingum.
„Stuðningurinn við okkur hér
kom ekki á óvart. Ég þekki vel til
í kjördæminu og ég er ánægður
með þessa niðurstöðu. Okkar
fólk vann afskaplega vel fyrir
kosningarnar og þegar til kom
var listinn afskaplega samhent-
ur.“
Skammt er síðan prófkjör
flokksins var í uppnámi og ollu
niðurstöður þess talsverðum
deilum.
„Það er eins og gengur að
prófkjör eru ekki ávísun á róleg-
heit innan flokka en ég lagði
mikla áherslu á að ná hópnum
vel saman og það tókst.
Það eru alls konar aðstæður
sem skapa fylgið og ekki hægt
að setja samasemmerki á milli
kjördæma,“ sagði hann aðspurð-
ur um af hverju Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði tapað talsverðu
annars staðar á landinu.
„Stjórnin heldur velli og ég
geri ekki ráð fyrir öðru en unnið
verði á þeim grundvelli.“ ■
Kristján felldi
Sjálfstæðisflokkinn
Sjálfstæðisflokkurinn hefði að líkindum orðið stærstur í Suðurkjördæmi
hefði T-listinn ekki boðið fram. Samfylkingin náði fyrsta sætinu. Eini
ráðherra kjördæmisins má láta sér lynda að vera þriðji þingmaður þess.
KOSNINGAR Í fyrsta skipti frá
kosningunum 1979 kemur fyrsti
þingmaður stærsta hluta þess
svæðis sem myndar Suðurkjör-
dæmi ekki úr röðum Sjálfstæðis-
manna. Margrét Frímannsdóttir,
varaformaður Samfylkingar,
varð fyrsti
s t j ó r n m á l a -
m a ð u r i n n
utan Sjálf-
stæðisflokks
og Framsókn-
arflokks til að
vera fyrsti
þ i n g m a ð u r
s v æ ð i s i n s .
Það mátti þó
ekki miklu
muna að Árni
Ragnar Árna-
son, efsti
maður á lista
Sjálfstæðis-
flokksins, hreppti sætið. Munur-
inn á Samfylkingu og Sjálfstæð-
isflokki var aðeins hálft prósent,
um það bil
sjöundi hluti
þess fylgis
sem fyrrum
þ i n g m a ð u r
Sjálfstæðis-
f l o k k s i n s ,
Kristján Páls-
son, og félag-
ar hans í T-
l i s t a n u m
fengu.
S a m f y l k -
ingin fylgir
góðum sigr-
um sínum í
bæjarstjórnarkosningum á Suð-
urlandi á síðasta ári eftir með
því að ná inn fjórum þingmönn-
um, einum fleiri en fyrir fjórum
árum. Sjálfstæðisflokkurinn
tapar tveimur þingmönnum og
forystuhlutverki sínu. Hafa
verður til hliðsjónar í þessum
samanburði að kjördæmamörk
voru allt önnur og því miðað við
búsetu þingmanna í þessum efn-
um.
Framsóknarflokkurinn held-
ur nokkurn veginn sínum hlut ef
fylgi flokksins í gömlu kjör-
dæmunum sem mynda Suður-
kjördæmi er umreiknað yfir á
núverandi kjördæmaskiptingu.
Vegna færri þingsæta verður
flokkurinn þó af einum þing-
manni.
Varaformaður Frjálslynda
flokksins, Magnús Þór Haf-
steinsson, náði inn sem kjör-
dæmakjörinn þingmaður í næst-
sterkasta vígi flokksins.
Útkoma Vinstri grænna í
kjördæminu er sú lakasta á
landinu öllu. T-listi Kristjáns
Pálssonar var langt frá því að ná
þingsæti. Helstu áhrifin af
framboðinu voru þau að Sjálf-
stæðismenn héldu ekki stöðu
sinni sem stærsti flokkurinn á
svæðinu.
Talsverð endurnýjun er í
þingmannaliði kjördæmisins.
Fjórir koma nýir inn. Fjórir falla
á móti, þar af teljast a.m.k. tveir,
Ísólfur Gylfi Pálmason, Fram-
sókn, og Kjartan Ólafsson, Sjálf-
stæðisflokki, hafa verið í bar-
áttusæti á sínum lista.
brynjolfur@frettabladid.is
KOSNINGAR „Það er örlítið
spennufall,“ segir Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, „Ég er auðvitað
vel sáttur með fylgisaukning-
una, en ég get ómögulega leynt
því að það voru vonbrigði að ná
ekki fimmta manninum inn, það
munaði svo sáralitlu. Það er ör-
lítill skuggi á sigurgleðinni, þeg-
ar ekki vantar nema 20 atkvæði
upp á.“
Guðjón segist reikna með að
stjórnin haldi samstarfinum
áfram. „Ég spái því að þeir haldi
áfram, félagarnir. En við erum
auðvitað alltaf tilbúnir ef ein-
hver vill ræða við okkur um þau
mál sem við höfum barist fyrir
og á okkar grundvelli.“ ■
STURLA BÖÐVARSSON
Mjög ánægður með þann stuðning sem
hann hlýtur.
MARGRÉT
FRÍMANNSDÓTTIR
Efsti maður Suðurkjör-
dæmis kemur af lista
Samfylkingar.
KRISTJÁN PÁLSSON
Komst ekki á þing en
réði miklu um foryst-
una í kjördæminu.
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
Spáir því að stjórnin sitji áfram.
Suðurkjördæmi
2
3
,7
%
2
9
,2
%
8
,7
%
0
,7
%
2
9
,7
%
3
,4
%
4
,7
%
Úrslit kosninga 2003
Kjördæmakjörnir:
Margrét Frímannsdóttir S
Árni Ragnar Árnason D
Guðni Ágústsson B
Lúðvík Bergvinsson S
Drífa Hjartardóttir D
Hjálmar Árnason B
Björgvin G. Sigurðsson S *
Guðjón Hjörleifsson D *
Magnús Þór Hafsteinsson F *
Uppbótarþingmaður:
Jón Gunnarsson S *
Næstir inn:
Ísólfur Gylfi Pálmason B
Kjartan Ólafsson D
* Nýir þingmenn
2 3 1 4
SIGURÐUR KÁRI
KRISTJÁNSSON
Hann segir að búast
megi við miklum um-
skiptum sem lúta að
auknu frelsi.