Fréttablaðið - 12.05.2003, Qupperneq 8
8 12. maí 2003 MÁNUDAGUR
Skjól í skýjunum
„Það er ekkert þras um pólitík
þarna efra og stjórnmálamenn
fyrir handan eru ekki að velta
fyrir sér hvernig þessar kosning-
ar fara núna.“
Þórhallur Guðmundsson miðill. Fréttablaðið, 10.
maí.
Hárrétt hjá Halldóri
„Þá hefðir þú ekki farið í þetta
framboð.“
Halldór Ásgrímsson að svara Guðmundi G. Þór-
arinssyni í Nýju afli þegar Guðmundur var að ef-
ast um eigin spádómsgáfu í kosningasjónvarpi.
Margrét Sverrisdóttir:
Sjávarútvegsmálin stærsti sigurinn
KOSNINGAR „Þetta er búið að vera
ævintýralegt,“ sagði Margrét
Sverrisdóttir, formaður Frjáls-
lynda flokksins, sem tvöfaldar
fylgi sitt frá síðustu kosningum
og má teljast sigurvegari í þess-
ari lotu.
„Hvað sjávarútvegsmálin
urðu að stóru kosningamáli lít-
um við á sem okkar stærsta sig-
ur. Fyrir svona ungan flokk að
auka fylgið og tvöfalda þing-
mannafjöldann er mjög mikil-
vægt og mikil vítamínsprauta.“
Þrátt fyrir gott gengi flokks-
ins náði Margrét sjálf ekki inn.
„Það eru ákveðin vonbrigði fyrir
mig persónu-
lega að ná
ekki inn. Við
það að flokk-
urinn vann
stærri sigur í
Norðvestur-
k j ö r d æ m i
datt ég út
v e g n a
misræmis at-
kvæða eftir
landshlutum.“
„Við spýt-
um í lófana
aftur. Við erum hvergi hætt,“
sagði Margrét aðspurð um fram-
haldið.
æmis atkvæða eftir lands-
hlutum. Það er einmitt eitt af því
sem við höfum verið að berjast
fyrir, hvað það er ósanngjarnt.“
„Núna fer maður kannski að-
eins að blása úr nös en svo spýt-
um við í lófana aftur. Við erum
hvergi hætt.“ sagði Margrét að-
spurð um framhaldið. „Það er
ekki einu sinni víst að þessi
stjórn sem verður mynduð sitji
allt tímabilið og því sóknarfæri
ef það gerist.“ ■
Ágúst Ólafur Ágústsson:
Ný kyn-
slóð þing-
manna
KOSNINGAR „Ég er afskaplega
ánægður með sögulegan stórsigur
Samfylkingarinn-
ar,“ segir Ágúst
Ólafur Ágústsson,
25 ára gamall nýr
þingmaður Sam-
fylkingar.
„Þetta er betri
útkoma en ég
hafði þorað að að
vona.“ Ágúst
Ólafur var ýmist
inni eða úti á
kosninganótt, en
náði kjöri undir
morgun. „Ég var
að vonum ánægð-
ur, en góður árangur flokksins
skiptir höfuðmáli í því samhengi.
Síðan er auðvitað sérstakt
ánægjuefni hversu mikið af ungu
fólki er á leið á þing, og það úr öll-
um flokkum. Það virðist vera
komin ný kynslóð þingmanna,
sem er mikið fagnaðarefni. Kjós-
endur eru greinilega að gefa skýr
skilaboð um að þeir vilji að Sam-
fylkingin hafi hlutverk í næstu
ríkisstjórn, og ég tel að það beri
að virða.“ ■
Stjórnarflokkarnir á toppnum
Örlög stjórnarflokkanna eru ólík á milli norðurkjördæmanna. Sjálfstæðisflokkur hélt stöðu sinni
nokkurn veginn í vestrinu. Framsókn kom sterk út austanmegin.
KOSNINGAR Eftir mikla og nei-
kvæða umræðu um framkvæmd
á prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjördæmi áttu margir
von á að flokkurinn kynni að tapa
fylgi í kjördæminu. Niðurstaðan
varð þó sú að þarna tapaði flokk-
urinn minnstu fylgi í öllum kjör-
dæmum ef miðað er við kosning-
arnar fyrir fjórum árum. Gengið
í austrinu olli flokksmönnum
vonbrigðum. Báðar þingkonur
flokksins í kjördæminu féllu fyr-
ir borð.
Framsóknarmenn í Norð-
austurkjördæmi brostu breitt í
gærmorgun. Þeir bættu ekki að-
eins við sig fylgi frá síðustu
kosningum heldur náðu þeir fjór-
um þingmönn-
um inn. Fyrir
kosningarnar
áttu menn
frekar von á
því að þeir
næðu aðeins
inn þremur
þingmönnum í
kjördæminu. Í
það minnsta
ein könnun
benti til þess
að jafnvel það
tækist ekki.
Tapið er um-
talsvert í vestrinu. Sex prósent
og einn þingmaður töpuðust frá
síðustu kosningum. Í samanburði
við síðustu kosningar kemur
Framsókn verst út í Norðvestur-
kjördæmi.
Vígi Vinstrihreyfingarinnar –
græns fram-
boðs er
sterkast í
n o r ð u r k j ö r -
d æ m u n u m
tveimur. Það
kom nokkuð á
óvart að flokk-
urinn styrkti
sig í Norðvest-
u r k j ö r d æ m -
inu, fór yfir
tíu prósentin.
Þróunin var í
hina áttina í
Norðaustur -
kjördæminu þar sem andstaða
flokksins við stóriðju og virkjan-
ir hefur veikt stöðu hans.
Niðurstöðurnar í norðurkjör-
dæmunum valda Samfylkingunni
væntanlega vonbrigðum. Flokk-
urinn stefndi að því að ná þremur
þingmönnum í hvoru kjördæmi
um sig. Það tókst í hvorugu
tilfelli, niðurstaðan var fjórir
þingmenn samanlagt og Gísli S.
Einarsson, sá þingmaður flokks-
ins í kjördæmunum tveimur sem
hefur mesta þingreynslu, féll af
þingi.
Guðjón A. Kristjánsson, mað-
urinn sem sendi öllum íbúum
Norðvesturkjördæmis jólakort,
fór á þing við annan mann í
sterkasta vígi Frjálslynda
flokkins. Vestan markanna bætti
flokkurinn við sig fylgi en var
talsvert frá því að ná inn manni.
brynjolfur@frettabladid.is
MARGRÉT
SVERRISDÓTTIR
Ævintýri líkast að ná
þessum árangri.
STURLA
BÖÐVARSSON
Fyrsti þingmaður
Norðvesturkjördæmis.
VALGERÐUR
SVERRISDÓTTIR
Fysti þingmaður Norð-
austurkjördæmis.
Norðvesturkjördæmi
2
1
,7
%
2
9
,6
%
14
,3
%
0
,7
%
2
3
,2
%
10
,6
%
Úrslit kosninga 2003
Kjördæmakjörnir:
Sturla Böðvarsson D
Jóhann Ársælsson S
Magnús Stefánsson B
Einar K. Guðfinnsson D
Guðjón A. Kristjánsson F
Anna Kristín Gunnarsdóttir S
Kristinn H. Gunnarsson B
Jón Bjarnason U
Einar Oddur Kristjánsson D
Uppbótarþingmaður:
Sigurjón Þórðarson F
Næstir inn:
Gísli S. Einarsson S
Guðjón Guðmundsson D
Norðausturkjördæmi
3
2
,8
%
2
3
,5
%
5
,6
%
0
,6
%
2
3
,4
%
14
,1
%
Úrslit kosninga 2003
Kjördæmakjörnir:
Valgerður Sverrisdóttir B
Halldór Blöndal D
Kristján L. Möller S
Jón Kristjánsson B
Steingrímur J. Sigfússon U
Tómas Ingi Olrich D
Einar Már Sigurðarson S
Dagný Jónsdóttir B *
Birkir Jón Jónsson B *
Uppbótarþingmaður:
Þuríður Backman U
Næstir inn:
Arnbjörg Sveinsdóttir D
Lára Stefánsdóttir S
* Nýir þingmenn
2 3 2 2 1 4 2 2 2
!
"# $ %!
&
#% $
'
# ( # )! *"+ ,-..
/
0 1 0 2 !# ( 3
ÁGÚST ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON
Átti spennandi og
tvísýna kosninga-
nótt, en endaði
inni á þingi.
SVEITARSTJÓRNIR Sjálfstæðismenn í
bæjarráði Hafnarfjarðar segja
meirihluta Samfylkingarinnar
hafa farið fram með „ótrúlegri
valdníðslu“ varðandi leikskólann
Tjarnarás og Íslensku mennta-
samtökin, sem ráku skólann.
„Allt eins er líklegt að bæjaryf-
irvöld hafi skapað sér ómælda
skaðabótaskyldu með vinnubrögð-
um sínum,“ bókuðu sjálfstæðis-
menn á bæjarráðsfundi á fimmtu-
daginn. Þeir segja margar áleitnar
spurningar vera varðandi skuld-
bindingar við fyrrverandi og nú-
verandi starfsmenn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar
sögðust hins vegar mótmæla öll-
um „getgátum um valdníðslu“ sem
órökstuddum og ábyrgðarlausum.
„Framgangur þessa máls ligg-
ur fyrir með skýrum hætti og þar
á meðal ítrekaðar óskir bæjaryfir-
valda við Íslensku menntasamtök-
in,“ bókuðu Samfylkingarmenn og
tóku enn fremur fram að samn-
ingaviðræður stæðu nú yfir um
uppgjör og frágang mála. Þau mál
og önnur stjórnsýsla væru í eðli-
legum og réttum farvegi. ■
TJARNARÁS
„Ljóst er að semja verður á allt öðrum forsendum en hægt hefði verið að gera ef verkefn-
ið hefði verið nálgast á ábyrgan hátt,“ segja sjálfstæðismenn í Hafnarfirði um brotthvarf
Íslensku menntasamtakanna frá rekstri leikskólans Tjarnaráss.
Sjálfstæðismenn óttast skaðabótakröfur
Íslensku menntasamtakanna:
Saka bæjarstjórn
um valdníðslu
Orðrétt