Fréttablaðið - 12.05.2003, Síða 9
MÁNUDAGUR 12. maí 2003
Leigðu fjórar vídeóspólur og keyptu
fjórar Coke flöskur í Bónusvídeó
- og þá færðu miða á fyrsta
Sumardjamm FM957.
VILTU KOMA
Á SUMARDJAM
M?
Bjarni Benediktsson:
Blendnar
tilfinningar
KOSNINGAR „Það er ánægjulegt að
við skyldum ná baráttusætinu,“
sagði nýkjörinn þingmaður Sjálf-
stæðisflokks í Suðvesturkjördæmi.
„Þetta var tvísýnt en ég var full-
viss um að komast inn þar til seint
um nóttina að það fór aðeins um
mig. Uppbótarsæti kostar það að
okkur er hent út og inn viðstöðu-
laust.“
„Þetta er mun minna fylgi en við
stefndum að í okkar kjördæmi og
endurspeglar stöðuna í öðrum kjör-
dæmum. Mér fannst margir fara
frá okkur yfir á Framsókn og hugsa
sem svo að það þyrfti ekkert að hafa
áhyggur af Sjálfstæðisflokknum.
Fólk vildi styðja ríkisstjórnina og
kaus Framsóknarflokkinn. Sjálfir
ráku þeir þannig áróður. Atlagan að
ríkisstjórninni tókst ekki.“ ■
BJARNI BENEDIKTSSON
Komst inn á lokasprettinum.
Framsókn í
lykilstöðu
Segir Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmála-
fræði. Í fyrsta skipti er hægt að mynda tveggja
flokka stjórn án Sjálfstæðisflokks.
KOSNINGAR „Stóru tíðindin í þess-
um kosningaúrslitum eru þau að
það er hægt að mynda tveggja
flokka ríkisstjórn án þátttöku
Sjálfstæðisflokksins,“ segir
Baldur Þórhallsson, dósent í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, aðspurður um álit sitt á
niðurstöðum kosninganna. „Það
er í fyrsta skipti í sögu lýðveldis-
ins.“
Baldur segir Framsóknar-
flokkinn vera í meiri lykilaðstöðu
nú en nokkru sinni fyrr. „Hann
hefur oft verið í lykilstöðu, en
aldrei svona sterkt eins og núna,“
segir Baldur. „Halldór hlýtur að
gera kröfu um forsætisráðherra-
embættið. Hann hefur allt í hönd-
unum. Hann getur krafist góðra
ráðherraembætta og að þeirra
mál verði í forgrunni í næstu rík-
isstjórn.“
Að mati Baldurs vann Fram-
sóknarflokkurinn varnarsigur, en
hann segir varla hægt að tala um
sigur, því einungis tvisvar áður
hafi flokkurinn fengið verri
útkomu í kosningum. Það var
1956 og 1978. Þetta eru því í raun
slök úrslit fyrir framsóknarmenn
að mati Baldurs. Sigurvegarar
kosninganna, að hans mati, eru
Samfylkingin og Frjálslyndir.
„Báðir þessir flokkar ná veru-
legum árangri,“ segir hann.
„Samfylkingin nær að rjúfa 30%
múrinn. Og í tilviki Frjálslynda
flokksins er þetta einungis í
annað skipti sem nýr flokkur
kemur inn og bætir við sig í
næstu kosningum eftir að hann
býður fyrst fram.“
Baldur segir kosningarnar
vera stórtap fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, einkum og sér í lagi í
Reykjavík. „Það hefur verið höf-
uðvígi flokksins,“ segir Baldur.
„Þetta hlýtur að vera áhyggju-
efni fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
flokksforystuna.“
Útkoman er ekki góð fyrir
Vinstri græna, segir Baldur.
„Þeir hafa verið áberandi og ver-
ið leiðandi í mjög mörgum mál-
um,“ segir Baldur. „Að þeir skuli
ekki græða á því að ríkisstjórnin
missi fylgi sitt hlýtur að vera
vonbrigði fyrir þá.“
gs@frettabladid.is
BALDUR ÞÓRHALLSSON
Halldór Ásgrímsson hlýtur að gera kröfu
um forsætisráðherraembættið.
Arnbjörg Sveinsdóttir, Sjálfstæðisflokki:
Engar áhyggjur
KOSNINGAR „Þetta eru lýðræðisleg-
ar niðurstöður og ekkert við því að
gera,“ segir Arnbjörg Sveinsdótt-
ir, fyrrverandi þingkona Sjálf-
stæðisflokksins í Norðausturkjör-
dæmi. Arnbjörg missti þingsæti
sitt.
„Við höfum ekki unnið nægi-
lega vel hérna fyrir austan, það
hefur einfaldlega skort á betri
vinnubrögð. Við hefðum átt að ein-
beita okkur betur að málefnunum,
en baráttan snerist allt of lengi um
Ingibjörgu Sólrúnu og kosninga-
bararáttan var í skötulíki allt of
lengi. Við hefðum átt að geta gert
miklu betur hér.“
Arnbjörg er hvergi bangin við
framtíðina þrátt fyrir tapað þing-
sæti og segist einfaldlega ætla að
leita sér að vinnu.“Ég fer örugg-
lega að gera eitthvað skemmtilegt.
Ég hef það alltaf að markmiði að
verkefnin séu skemmtileg og það
er fullt af tækifærum í lífinu. Að-
spurð um líklegt stjórnarsamstarf
segist Arnbjörg ekki sjá annað en
að stjórnin haldi samstarfinu
áfram. „Mér finnst það bara blasa
við og túlka úrslitin sem skýr
skilaboð kjósenda um það.“ ■
ARNBJÖRG SVEINSDÓTTIR
Telur að kosningabaráttan hefði þurft að
vera markvissari í Norðausturkjördæmi.