Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 11
■ Lögreglufréttir
11MÁNUDAGUR 12. maí 2003
Tryggingin bætir tjón vegna slysa sem verða í frítíma og inniheldur hún dánarbætur,
dagpeninga og stighækkandi örorkubætur. Börn undir 16 ára aldri eru tryggð við
íþróttaæfingar og keppni, hér á landi og erlendis. Þá nær tryggingin til barna vátryggðs,
yngri en 16 ára, sem hafa annað lögheimili en hann og eru á ferðalagi með honum
erlendis. Sjúkrakostnaður innanlands er greiddur að tiltekinni fjárhæð þegar um
bótaskyld tjón er að ræða vegna varanlegrar örorku eða tímabundins missis starfsorku.
Farangurstrygging erlendis
Tryggingin bætir tjón sem verður ef farangur týnist í flutningum eða er stolið í
innbroti á ferðalögum erlendis.
Ferðasjúkra- og ferðarofstrygging erlendis
Tryggingin greiðir bætur ef rjúfa þarf ferð erlendis vegna tiltekinna atvika svo og
sjúkrakostnað ef slys eða veikindi ber að höndum á ferðalögum erlendis.
Með umönnunartryggingu barna fást bætur vegna langtímadvalar barna yngri en
16 ára á sjúkrahúsi.
Afslættir
Fjölskyldu- og heimilistryggingar hjá VÍS veita einnig rétt til margvíslegra afslátta
á öðrum tryggingum svo sem:
• bifreiðatryggingum
• brunatryggingum íbúðarhúsnæðis
• húseigendatryggingum íbúðarhúsnæðis
• Lífís, líf- og sjúkdómatryggingum
og fjölmörgum sértryggingum sem VÍS býður viðskiptavinum sínum
Nánari upplýsingar um bótasvið er að finna í skilmálum félagsins.
þar sem tryggingar
snúast um fólk
VÍS býður nú fjölbreyttari tryggingar fyrir
fjölskyldur og heimili
– og veitir þér alla afslætti strax
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
6
3
6
2
Frítímaslysatrygging
Verð 8.825 kr. á ári
eða 735 kr. á mánuði*
Frítímaslysatrygging
Verð 13.406 kr. á ári
eða 1.117 kr. á mánuðiFarangurstrygging erlendis
Sjúkrakostnaðar- og
ferðarofstrygging á
ferðalögum erlendis
*
Umönnunartrygging barnaFrítímaslysatrygging
Verð kr. 17.943 á ári
eða 1.495 kr. á mánuði*Farangurstrygging erlendis
Sjúkrakostnaðar- og
ferðarofstrygging á
ferðalögum erlendis
Umönnunartrygging barna
*Iðgjöld með afslætti vegna eins bíls þar sem það á við, með opinberum gjöldum án stimpilgjalds, í maí 2003. Vátryggingarverðmæti innbús kr. 4.500.000.
Bótasvið og bótafjárhæðir eru mismunandi eftir tryggingum.
Frítímaslysatrygging
Guðmundur Árni
Stefánsson:
Nýtt
landslag
KOSNINGAR „Það er augljóst að lands-
lag í stjórnmálum hefur breyst í
þessum kosningum,“ segir Guð-
mundur Árni Stefánsson. „Hér er að
rísa stór og breiður jafnaðarmanna-
flokkur. Ríkisstjórnin fékk gula
spjaldið. Báðir stjórnarflokkarnir
eru því sem næst í sögulegu lág-
marki. Vilji þjóðarinnar er skýr,
verið er að kalla Samfylkinguna til
verka, en hvernig úr stjórnarmynd-
unarviðræðum spilast er allt of
snemmt að spá um. En við getum
verið kátir í mínu kjördæmi. Mæl-
umst langt yfir landsmeðaltali
flokksins.“ ■
Birgir Ármannsson:
Stefndi að þingsæti
KOSNINGAR „Ég er afskaplega
ánægður að niðurstaðan varð sú
að ég datt inn á þing, sem ég
stefndi að þegar ég fór í fram-
boð,“ segir Birgir Ármannsson,
sem er fjórði þingmaður Sjálf-
stæðisflokks í Reykjavík suður.
Birgir segir kosninganóttina
hafa verið mjög spennandi fyrir
hann og aðra, óvissan var mikil.
Hann segist hafa viljað sjá stöðu
Sjálfstæðisflokksins sterkari
eftir kosningarnar.
Hann segir málefnastöðu
flokksins sterka og að sú mikla
vinna sem lögð var í baráttuna
af hálfu frambjóðenda og sjálfa-
boðaliða hefði verið vel heppn-
uð. „Ég reiknaði með að Sjálf-
stæðisflokkur fengi betri út-
komu. Hins vegar ber að líta á að
flokkurinn er búinn að vera í rík-
isstjórn í tólf ár og það getur
skapað vilja til breytinga hjá
hluta kjósenda. Mér finnst mjög
mikilvægt að ríkisstjórnin hélt
meirihluta í kosningunum, það
er afrek þegar stjórnin er búin
að vera við völd í átta ár og hart
er að henni sótt.“ ■
BIRGIR ÁRMANNSSON
Hann segir kosninganóttina hafa verið
spennandi og ómögulegt hafi verið að sjá
hver endanleg niðurstaða yrði.
FESTIST UNDIR BÍLNUM Kona
var flutt á slysadeild eftir að ekið
var á hana við Fjörukrána í Hafn-
arfirði aðfaranótt laugardags.
Hún festist undir bílnum. Lyfta
varð bílnum með handafli til að
ná konunni undan honum. Hún
var talin nokkuð slösuð, meðal
annars var hún mjaðmagrindar-
brotin, og var flutt til aðhlyn-
ningar á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús í Fossvogi.
BÍLVELTA Á HELLISHEIÐI Bíll valt
á Hellisheiði um fimmleytið á
laugardagsmorgun. Hálka var og
var ökumaður, sem var einn í
bílnum, fluttur á slysadeild Land-
spítalans. Meiðsl hans voru ekki
talin mikil. Bíllinn skemmdist
talsvert og þurfti að draga hann
burt. Ökumaðurinn gerði sér ekki
grein fyrir að hálka var á veg-
inum, með fyrrgreindum
afleiðingum.