Fréttablaðið - 12.05.2003, Qupperneq 12
12 12. maí 2003 MÁNUDAGUR
!
L J Ó S M Y N D A S T Ú D Í Ó
P É T U R P É T U R S S O N
VG á Iðnó:
Vinstribylgja við tjörnina
KOSNINGAR Vinstri grænir voru
áhyggjufullir framan af kosninga-
nótt í Iðnó, við hlið Ráðhússins.
Ölvaður gestkomandi maður
hrópaði „Þetta er allt búið,“ en Ög-
mundur Jónasson sefaði áhyggjur
hans með vel völdum orðum.
Síðar um kvöldið bylgjaði há-
vær rokktónlist Reykjavíkurtjörn
þegar það lifnaði yfir Vinstri
grænum í talningu og kosninga-
vöku. Innandyra stóð Steingrímur
J. Sigfússon, formaður flokksins,
og skeggræddi við ungan vinstri-
mann sem bar merki með yfirlýs-
ingu um að hann keypti ekki
bandarískar vörur. Fjöldi ungliða
flokksins dansaði við tónlist
Möggu Stínu og voru margir
íklæddir bol, ýmist með mynd af
andliti byltingarleiðtogans Che
Guevara eða Steingríms for-
manns. Einn ungliðinn kyssti for-
manninn á kinnina, og annar
faðmaði hann nokkru síðar. Að-
spurður sagði Steingrímur styrk
flokksins liggja í ungliðunum, því
þar væri framtíðin. „Hér er geis-
landi gleði. Það er mjög ánægju-
legt að Sjálfstæðisflokkurinn sé
að tapa fylgi,“ sagði hann og
óskaði síðan Magnúsi Þór Haf-
steinssyni, frambjóðanda Frjáls-
lyndra, til hamingju með þingsæt-
ið þar sem hann gekk meðfram
tjarnarbakkanum. ■
Geðshræring
á Broadway
Samfylkingarfólk fagnaði af innlifun á
kosninganóttinni. Stuðmaður spilaði fyrir
dansi og flokksmenn sungu með.
KOSNINGAR Össur Skarphéðinsson
kvaðst aðspurður furðu rólegur
skömmu fyrir birtingu fyrstu talna
að kvöldi kosninganna. Andrúms-
loftið á Broadway var þrungið
spennu sem skyndilega breyttist í
geðshræringu. Úr mannfjöldanum
heyrðist skræk kvenmannsrödd
kalla „yes!“ og tryllingslegur fögn-
uður braust út. Við fyrstu tölur kom
í ljós að Samfylkingin stóð nánast
jafnfætis Sjálfstæðisflokknum og
Össur formaður sleppti af sér beisl-
inu.
Á Broadway var fjöldi fólks sem
fagnaði líkt og Berlínarmúrinn
hefði fallið. Ekki voru þó allir Sam-
fylkingarmenn, því sænskur hótel-
gestur spurði blaðamann hvort eitt-
hvað gott hefði gerst og hvort um
væri að ræða hægri eða vinstri-
flokk. Sjálfur sagðist hann kjósa
hægri í heimalandi sínu, vegna þess
að vinstrimenn hafi verið við völd í
hálfa öld.
Össur steig á svið: „Ég lofa því
ekki en það kann að fara svo að rík-
isstjórnin falli. Ekki fara snemma
að sofa vegna þess að undrin og
kraftaverkin gerast undir morgun
og það vita kaþólikkarnir,“ sagði
hann og þakkaði stuðningsmönnum.
Jakob Frímann Magnússon stuð-
maður spilaði „Ég er frjáls“ á píanó
og salurinn söng með. Textanum
var hnikað til og íhaldið nefnt á
nafn. Nokkru síðar boðaði flutning-
ur lagsins „Fröken Reykjavík“
komu forsætisráðherraefnis flokks-
ins í húsið. Aðspurð sagði Jóhanna
Sigurðardóttir að liðveisla Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur hefði
breytt miklu. „Hún ógnaði mjög
okkar andstæðingum og hefur stað-
ið sig vel.“
Fiðringur fór um salinn þegar
Ingibjörg Sólrún gekk niður tröpp-
urnar á neðri hæð Broadway. „Ég er
búin að vera dofin og fann ekki fyr-
ir sigurgleði fyrir en núna að ég
kem til ykkar,“ sagði hún á sviðinu
og salurinn sveiflaðist með. „Nú er
kominn til sögunnar stór og öflugur
jafnaðarmannaflokkur á stærð við
jafnaðarmannaflokka á Norður-
löndunum.“ Ingibjörg kallaði Össur
Skarphéðinsson upp á svið, en hann
var farinn í sjónvarpið. Saman
sungu frambjóðendur flokksins
„Maístjörnuna“. Að baki Ingibjarg-
ar stóð Helgi Hjörvar og honum að
baki sást Steingrímur J. Sigfússon
vondaufur í sjónvarpsútsendingu á
tjaldi.
jtr@frettabladid.is
Samkomuhús á Grand
Hótel:
Framsóknar-
menn
endurheimtir
KOSNINGAR Framsóknarmönnum á
Grand Hótel virtist nokkuð brugðið
fyrri hluta kosningakvölds. Fylgj-
endur og frambjóðendur flokksins
sátu við borð sín og fylgdust hljóð-
látir með ræðu formannsins í sjón-
varpinu og endurspegluðu áhyggjur
hans. Yfir salnum ríkti yfirvegun og
yfirbragðið var líkt og á samkomu-
húsi utan borgarinnar.
Eftir miðnætti sótti flokkurinn í
sig veðrið í talningunni og að sama
skapi birti yfir mannskapnum á
Grand Hótel. Halldór Ásgrímsson
formaður kvaðst aðspurður vera
mjög sáttur og þakklátur, en baðst
þreytulega undan fleiri fjölmiðla-
viðtölum og hélt heim á leið. Salur-
inn fagnaði þegar hver Framsókn-
armaðurinn á fætur öðrum var end-
urheimtur í talningu.
Svo virtist sem nokkuð væri
dregið af Framsóknarmönnum eftir
að þeir skutu skoðanakönnunum ref
fyrir rass með kröftugum enda-
spretti í kosningabaráttunni. Þó ein-
kenndist fas þeirra af meðvituðu
mikilvægi í íslenskum stjórnmál-
um. ■
ÁHYGGJUFULLIR FRAMBJÓÐENDUR
Kolbrúnu Halldórsdóttur og Ögmundi Jónassyni var órótt þegar þau fylgdust með talningu
framan af kosninganótt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
BRAGÐAÐ Á SIGRI
Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, lofaði hörðustu stjórnarandstöðu sem
landið hefur séð, ef kosningarnar færu ekki á besta veg fyrir flokkinn.
INGIBJÖRGU FAGNAÐ
Ingibjörgu Sólrúnu var fagnað með dynj-
andi lófataki og söng þegar hún kom á
Broadway.
BROSMILDUR FORMAÐUR
Halldór Ásgrímsson var sáttur og þakklátur
og brosti líklega síðasta brosi sínu þessar
kosningar þegar í ljós kom að Framsókn
héldi nánast sínu frá síðustu kosningum. FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI