Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 15

Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 15
15MÁNUDAGUR 12. maí 2003 KOSNINGAR „Þetta er frábær árang- ur og grundvöllur til að byggja á,“ sagði Eyjólfur Ármanns- son, frambjóðandi Frjáls- lynda flokksins, á kosn- ingavöku flokksins á Hót- el Borg. Þar var margt manna og gleði mikil því sigur blasti við. „Sverrir Hermannsson, Margrét dóttir hans og Guðjón A. hafa unnið frábært starf og ég held að þar verði framhald á,“ sagði Eyjólf- ur, sem skipaði annað sæti listans í Reykjavík norður. Hópur heyrnarlausra setti svip á kosningahátíð Frjálslynd flokksins enda einn úr röðum þeirra í framboði; Sigurlín Mar- grét Sigurðardóttir, sem skipaði annað sæti lista flokksins í Suðvesturkjör- dæmi og braut þar með blað í stjórnmálasögu landsins. Táknmálastúlk- ur var til staðar á kosn- ingavökunni og túlkaði það sem sagt var í kosningasjónvarpinu jafnóðum fyrir viðstadda: „Þetta er góður hópur sem gott er að hafa með sér,“ sagði Eyjólfur Ár- mannsson. ■ KOSNINGAR Gleðin var blendin á kosningahátíð Sjálfstæðisflokks- ins á Hótel Nordica þegar fyrstu tölur fóru að berast eftir að kjör- stöðum var lokað á laugardags- kvöldið. Fjöldi gesta í stórglæsi- legum húsakynnum hins nýja hót- els vissi vart hvort þeir ættu að fagna eða ekki. Þeir voru tvístíg- andi. Geir Haarde, varaformaður flokksins, mætti tímanlega ásamt eiginkonu sinni og var höfuð sam- komunnar á meðan Davíð Odds- son sinnti öðrum erindum annars staðar, enda í mörg horn að líta. Eftir því sem tölurnar urðu fleiri dró úr þeirri bjartsýni sem þó örl- aði á í upphafi og um leið úr gleð- inni: „Ég útnefndi sjálfan mig bjart- sýnasta mann landsins fyrr í dag en ég dreg það til baka,“ sagði Sig- urður Kári Kristjánsson, fram- bjóðandi og fyrrum formaður ungra sjálfstæðismanna. Arftaki hans, Ingvi Hrafn Óskarsson, var á svipuðum nótum, allt að því nið- urdreginn. „Þetta er ekki gott,“ sagði hann. Allt um kring stóðu flokksmenn á tali og spurningarn- ar flugu um loftið: „Var það ör- yrkjadómurinn? Eða frjálslyndir? Eða bara við?“ Verulegur kippur kom þó í samkomuna og engu var líkara en þakið ætlaði að rifna af húsinu þegar Davíð Oddsson gekk í sal- inn við gífurleg fagnaðarlæti fylgismanna sinna. Foringinn þakkaði fyrir sig og spurði hvern- ig fagnaðarlætin hefðu orðið hefði hann gengið í hús með betri út- komu en þetta. Heilsaði fólki á báða bóga og bar sig vel. Það gerði einnig Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins: „Þetta er í fínu lagi. Við erum stærsti flokkurinn og getum myndað tvær meirihlutastjórnir eins og staðan er nú,“ sagði Kjart- an en bjartsýni hans smitaði ekki frá sér svo um munaði. Flokks- menn voru ekki alveg vissir hvort þeir ættu að á sér einn gráan eða ekki. Sumir létu sig hafa það. Hin- ir fóru heim. eir@frettabladid.is KRISTJÁN PÁLSSON Segir fjölmiðla koma í veg fyrir að framboð í einu kjördæmi njóti sannmælis. Kristján Pálsson, T-lista: Á brattann að sækja KOSNINGAR „Við vissum að það yrði á brattann að sækja,“ segir Krist- ján Pálsson, á T-listanum í Suður- kjördæmi. Hann náði ekki kjöri. „Við buðum fram í einu kjör- dæmi og nutum ekki forréttinda stóru framboðanna að vera í öll- um mögulegum þáttum til að kynna sig og sín málefni. Skoð- anakannanir mæla á landsvísu, sem er vont fyrir okkur.“ Kristján bendir á að framboðið hafi oft mælst með eitt prósent á lands- vísu, sem hefði jafnvel dugað fyr- ir manni. „Ég er glaður að 845 manns hafi risið upp með mér til að mótmæla vinnubrögðum Sjálf- stæðisflokksins. Mér sýnist að flokkurinn hafi fengið refsingu í kjördæminu fyrir sín vinnubrögð, önnur eins útreið hefur ekki sést hér áður. Við hjá T-listanum erum hamingjusamt fólk og ekki í dep- urðarkasti. Við dreifðum rósum í gær og glöddum menn með söng og tónlist og færðum meiri gleði en önnur framboð.“ ■ KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Katrín segir að tónninn eigi eftir að breyt- ast með ungu þingmönnunum. Katrín Júlíusdóttir: Mörg brýn verkefni ÞINGMAÐUR „Mér líður vel og útkoma flokksins gleður mig,“ segir Katrín Júlíusdóttir, nýkjörinn þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjör- dæmi. Katrín segir það mjög ánægju- legt að Samfylkingin hafi náð því takmarki að brjóta þrjátíu prósenta múrinn. Hún segir að breiðfylking jafnaðarmanna sé augljóslega kom- in til að vera í íslenskri pólitík. Það leggst mjög vel í hana að vera orðin þingmaður, en Katrín er aðeins 28 ára gömul. „Mér finnst skemmtileg- ast að sjá nýja kynslóð af ungu fólki, tónninn á þinginu á örugglega eftir að breytast aðeins. Málefni ungs fólk eiga áreiðanlega eftir að vera áberandi. Þar eru mörg brýn verkefni, eins og Lánasjóður ís- lenskra námsmanna og húsnæðis- mál,“ segir Katrín. ■ KOSNINGAR Þó nokkurs munar hafi gætt á fylgi flokkanna í síðustu skoðanakönnunum þeirra aðila sem gerðu kannanir fyrir þing- kosningar fóru þær ansi nærri úrslitum kosninganna. Sam- kvæmt útreikningum Gallups voru meðalfrávik kannana frá niðurstöðum kosninga á bilinu 0,81% í 1,34%. Gallup fer næst niðurstöðum kosninganna í lokakönnun sinni sem gerð var 7. og 8. maí. Meðal- frávikið er 0,81%. Mestu munaði að fylgi Sjálfstæðisflokksins var ofmetið um 2,1%, fylgi annarra flokka var mælt um eða innan við prósenti frá úrslitunum. Frétta- blaðið kemur í humátt á eftir Gallup. Þar er meðalfrávikið 0,9% á hvern flokk. Mestu munar að fylgi Frjálslynda flokksins og Samfylkingar var ofmetið um 1,5 og 1,6%. Félagsvísindastofnun var að meðaltali 1,04% frá úrslitum kosninganna. 1,19% munaði að meðaltali á könnun DV og endan- legum niðurstöðum. Mestu mun- aði á könnunum Gallup og úrslit- unum, þar munaði þó aðeins 1,34% að meðaltali. ■ PÓLITÍK Á TÁKNMÁLI Heyrnarlausir ræða kosningaúrslitin á Hótel Borg. Frjálslyndir á Hótel Borg: Heyrnarlausir settu svip á samkomuna EYJÓLFUR ÁRMANNSSON Úrslitin grundvöllur til að byggja á. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FYLGST MEÐ TÖLUM Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins og makar þeirra hlýða á fréttir a nýjustu tölum. Tvístígandi á Hótel Nordica Gleðin var blendin á kosningahátíð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Flokksmenn fögnuðu þó formanni sínum vel þegar hann gekk í salinn IBM B -1,5% D +3,3% S +1,6% U -1,9% DV B -1,8% D +2,0% F +1,9% S -1,5% FÉLAGSVÍSINDASTOFNUN D +2,4% S -2,5% FRÉTTABLAÐIÐ F +1,5% S +1,6% GALLUP D +2,1% Kannanir Gallup og Fréttablaðsins voru næstar úrslitunum: Spár afar nærri niðurstöðunum MESTU FRÁVIK Á FYLGI EINSTAKRA FLOKKA DAVÍÐ GENGUR Í SALINN Gífurleg fagnaðarlæti brutust út á Hótel Nordica þegar formaður Sjálfstæðisflokksins mætti á kosningavöku sinna manna. SPÁÐ Í STÖÐUNA Davíð Oddsson, Kjartan Gunnarsson og Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður Davíðs, spá í spilin rétt áður en formaðurinn yfirgaf kosningahátíðina. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FRÁ KOSNINGAVÖKU FRAMSÓKNARFLOKKSINS Fylgi Framsóknarflokksins í Norðausturkjör- dæmi jókst um 1,3 prósentustig í Norð- austurkjördæmi frá síðustu kosningum og fékk 32,77% fylgi. Fjórir þingmenn Fram- sóknarflokksins voru kjörnir þau Valgerður Sverrisdóttir, Jón Kristjánsson, Dagný Jóns- dóttir og Birkir J. Jónsson. Mikil gleði greip um sig á kosningavöku Framsóknarflokks- ins á Akureyri á laugardag þegar fyrstu töl- ur birtust. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AU KU R H AU KS SO N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.