Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Klukkan er farin að ganga eitteftir miðnætti á kosninganótt.
Það hefur orðið spennufall. Sama
aftur, takk, drafar í þjóðinni. Og þó?
Davíð hefur misst 10 kíló og 7% af
fylginu og er fagnað eins og hann
hafi jafnhattað 7 tonn og aukið fylg-
ið um 10%. Össur er gráti nær,
bæði klökkur og hrærður og segist
ætla að kyssa Ingibjörgu Sólrúnu.
„Við,“ segir Bogi Ágústsson á RÚV í
hita leiksins, en áttar sig á því hvar
hann er staddur og segir: „Sjálf-
stæðisflokkurinn.“ Þetta er
skemmtilegasta mismæli kvöldsins.
Næstskemmtilegast var þegar
fréttakonan á Stöð 2 talaði um
„útstrýkingar“.
STJÓRNARMEIRIHLUTINN
lafir á þremur þingmönnum. Og all-
ir brosa og eru því óánægðari sem
brosið er breiðara. Stjórnarandstað-
an náði ekki að fella stjórnina. Sam-
fylkingin náði ekki að sigra Sjálf-
stæðisflokkinn. Frjálslyndir náðu
ekki átta og hálfu prósenti. Nýtt afl
náði ekki manni á þing. Vinstri
grænir náðu ekki að vinna á. Það
eru helst Framsóknarmenn sem
virðast vera lukkulegir með að
sleppa undan þeim álögum sem
sögð eru hvíla á samstarfsflokkum
Sjálfstæðisflokksins að visna upp
og jafnvel deyja. Samfylkingar-
menn dansa kringum Sólrúnu. Hvað
hefðu þeir gert ef hún hefði sigrað?
Ég er farinn að sofa.
KLUKKAN er orðin tíu að morgni
dags. Það voru kosningar í gær.
Stjórnin hefur fimm þingsæta
meirihluta. Sama aftur, takk, sagði
þjóðin. Og þó? Kosningar eru nefni-
lega aðeins forleikur hinnar póli-
tísku óperu. Eða er kannski betra að
líkja þessu við það að spila á spil?
Þjóðin hefur gefið úr spilastokknum
og nú setja stjórnmálaforingjarnir
upp pókerfésið, halda spilunum þétt
upp að sér og gjóta augunum ábúð-
arfullir undan þungum brúnum.
Þetta verður spennandi spila-
mennska. Það er þó ekki slemma í
spilunum. Í mesta lagi þrjú grönd.
ÞAÐ ER FALLEGUR DAGUR.
Nú geta áhugasamir safnarar keypt
sér mannhæðarháar myndir af
Davíð, Ingibjörgu, Halldóri, Stein-
grími, Guðjóni og Guðmundi á út-
söluverði. Framtíðin er aftur komin
í hendur stjórnmálamannanna – al-
veg eins og fyrir kosningar. Og al-
veg jafnóviss. ■
Spennufall
Alhliða útgáfuþjónusta
Sími 565 9320
pjaxi@pjaxi.is
www.pjaxi.is
Hagkvæmari
prentun