Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Bíó 28
Íþróttir 14
Sjónvarp 30
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
ÁMINNING
Móðgun við
kjósendur
VIÐSKIPTI
Bjartsýnn
fyrir ykkar
hönd
LAUGARDAGUR
17. maí 2003 – 112. tölublað – 3. árgangur
bls. 4bls. 10
MYNDLIST
Vill mála
sig út í horn
bls. 16
AFMÆLISHÁTÍÐ Afmælishátíð Safa-
mýrarskóla verður haldin milli
klukkan 14 og 16. Fyrst verður
skemmtidagskrá en þar á eftir veg-
leg afmælisveisla. Núverandi og
fyrrverandi nemendur og foreldrar
þeirra eru hvattir til að koma svo
og starfsfólk, auk allra velunnara
skólans.
20 ára
FÓTBOLTI Fyrsti leikur Íslandsmótsins
í knattspyrnu 2003 fer fram í dag.
Breiðablik tekur á móti sameigin-
legu liði Þórs/KA/KS. Leikurinn
hefst klukkan 17 og fer fram á
Kópavogsvelli. KR vann mótið í
fyrra, nú er Vali spáð sigri.
Íslandsmótið hefst
TÓNLEIKAR Unglingakór Akureyrar-
kirkju heldur vortónleika sína í
kirkjunni. Stjórnandi er Eyþór Ingi
Jónsson. Á efnisskránni eru íslensk
lög og erlend, andleg og veraldleg,
auk þjóðlaga frá ýmsum löndum.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17.
Unglingar syngja
KVÖLDVAKA Guðmundur Páll Ólafs-
son, náttúrufræðingur og rithöf-
undur, kynnir hugmyndir sínar að
þjóðgarði fugla og fiska á kvöld-
vöku sem samtökin Landvernd
halda í Hótel Brattholti við Gull-
foss. Kvöldvakan hefst klukkan 21
og allir eru velkomnir.
Fugl og fiskur
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
REYKJAVÍK Hæg breytileg
átt, þykknar upp og fer að
rigna undir kvöld.
Hiti 5 til 13 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 3-8 Skýjað 10
Akureyri 3-8 Skýjað 12
Egilsstaðir 5-10 Skýjað 7
Vestmannaeyjar 3-5 Rigning 7
➜
➜
➜
➜
+
+
ÞÓRIR STEINGRÍMSSON RANNSÓKNARLÖGREGLUMAÐUR
Þórir ræðir við lögreglukonu fyrir framan Sparisjóð Kópavogs þar sem ránið var framið.
Lögregla leitar
bankaræningja
Ungur maður sem rændi Sparisjóð Kópavogs gekk laus þegar blaðið fór
í prentun. Hann huldi ekki andlit sitt. Lögreglan vinnur að rannsókn en
gefur ekki upp hversu hárri fjárhæð ræningi náði.
BANKARÁN Maður um tvítugt rudd-
ist inn í Sparisjóð Kópavogs við
Hlíðarsmára vopnaður hnífi
skömmu eftir opnun í gærmorg-
un. Hann svipti sér inn í mann-
lausa gjaldkerastúku og hrifsaði
peninga úr skúffu. Að því loknu
hljóp hann út. Vitni sáu til ræn-
ingjans hlaupa til suðurs þegar
hann kom út úr sparisjóðnum.
Bankaræninginn gekk enn laus
þegar blaðið fór í prentun.
Hvorki lögreglan né sparisjóð-
urinn vilja gefa upp hversu miklu
fé bankaræninginn náði. Öryggis-
myndavélar náðu myndum af
manninum sem ekki huldi andlit
sitt. „Mér sýnast þetta vera sæmi-
legar myndir þegar búið er að
skýra þær og skerpa. Við erum
ekki búnir að bera kennsl á mann-
inn og getur það reynst erfitt
þrátt fyrir myndirnar. Ekki er víst
að lögreglan þekki andlitið á
kauða og við leitum til fjölmiðla til
að birta mynd af honum,“ segir
Friðrik Smári Björgvinsson yfir-
lögregluþjónn í Kópavogi.
Hann segir rannsókn vera í ful-
lum gangi og að leit standi yfir.
„Það er vissulega áhyggjuefni
hversu stutt er síðan annað vopn-
að bankarán var framið. Ég held
að það sé full ástæða fyrir bank-
ana að skoða sín mál. Það gæti til
dæmis verið gott að loka gjald-
kerastúkunum betur svo ekki sé
svona auðvelt að komast inn í
þær,“ segir Friðrik.
„Vopnað rán í banka virðist
alltaf vekja meiri athygli en vopn-
að rán í sjoppu. Er líf sautján ára
stelpu í sjoppu minna virði, af
því hún er með lægri fjárhæð
við höndina?“ segir Carl H. Er-
lingsson, sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Kópavogs. Hann segir að
upphæðin sem ræningi náði
verði ekki gefin upp, hvorki nú
né síðar. Aðrir afbrotamenn
megi helst ekki vita hver upp-
hæðin var. Carl segir að ræning-
inn hafi komið beint að stúkunni
þar sem hann hrifsaði til sín þá
peninga sem hann gat náð til í
fljótu bragði.
„Prestur veitti starfsfólki
áfallahjálp. Það hjálpar fólki að
sjá hlutina frá sjónarhorni sem
það sá ekki áður. Stundum ásak-
ar fólk sjálft sig fyrir að hafa
gert eitthvað vitlaust, þetta lýt-
ur að því að veita fólki þann
stuðning sem það þarf.“
„Við jöfnum okkur um helgina
og opnum aftur á mánudaginn,“
segir Carl. Hann segir starfsfólk
hafa orðið fyrir geðshræringu og
að það hafi þurft að jafna sig. „Ég
hugsa að lögreglan verði fljót að
finna út hver ræninginn er, en
kannski reynist erfiðara að hafa
uppi á honum.“ Carl vildi ekki tjá
sig um hvort maðurinn hefði verið
í annarlegu ástandi eða ekki.
Hann segir starfsfólkið hafa stað-
ið sig vel og að allar öryggisreglur
sparisjóðsins hafi gengið eftir.
Hann vildi ekki fara út í hverjar
öryggisreglurnar væru en ljóst
væri að þeim væri meira annt um
fólkið sitt en peningana.
hrs@frettabladid.is
15. - 25. maí
RÆNINGINN
Lögreglan leitar hans. Ekki er gefið upp hversu hárri fjárhæð hann náði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Harður árekstur:
Fjórir á
slysadeild
SLYS Harður árekstur varð á
gatnamótum Glerárgötu og
Tryggvabrautar á Akureyri á
fimmta tímanum í gær.
Þrír voru í öðrum bílnum auk
ökumanns og tveir í hinum. Fjór-
ir þeirra voru fluttir á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akur-
eyri. Meiðsli þeirra voru þó ekki
talin alvarleg. Senda þurfti dælu-
bíl á vettvang til að þrífa upp
vökva sem seytlaði úr bílunum. ■
GÖTUR NAPOLÍ
Óþefurinn var slíkur að fólk kveikti
í draslinu.
Sorpmál Napolí í ólestri:
Mafían
enn á kreiki
ÍTALÍA, AP Í Napolí hefur fólk gengið
um með grímur að undanförnu,
ekki vegna hættunar af HABL
veikinni, heldur vegna fýlunnar.
„Ólyktin var hræðileg, flugur út
um allt og mýs líka,“ sagði Max
Cossolino, ávaxtakaupmaður í
borginni. „Lyktin var slík að fólk
kveikti í rusli til að losna við hana.“
Ólyktin var tilkomin vegna þess
að sorpstöðvar Napolí réðu ekki
við það magn sem safnaðist saman
og því voru ruslatunnur og gámar
yfirfullir um allar götur. Mafían í
Napolí, sem stjórnar sorpstöðvum
í nágrenni borgarinnar, vill fá bet-
ur greitt fyrir að taka aukalega
rusl frá Napolí. Margir hafa gert
því skóna að menn á hennar vegum
hafi kveikt í ruslinu.
Ruslið hefur nú verið fjarlægt
eftir að samningur náðist við þrjú
önnur sveitarfélög að hjálpa til og
eru borgarstarfsmenn í óða önn að
skúra og skrúbba helstu stræti og
torg. Skaðinn er hins vegar skeður
gagnvart ferðafólki og ólíklegt að
mælt verði með Napolí sem næsta
áfangastað. ■
AP
/M
YN
D