Fréttablaðið - 17.05.2003, Síða 2
2 17. maí 2003 LAUGARDAGUR
„Allt fyrir lýðræðið. Það lifi.“
Frjálslyndi flokkurinn hefur farið fram á að
talið verði upp á nýtt í nýgengnum Alþingis-
kosningum. Margrét Sverrisdóttir er fram-
kvæmdastjóri flokksins.
Spurningdagsins
Margrét, myndir þú nenna
að telja þetta allt aftur?
VERSLUN „Þetta verður svo fallegt
þegar því verður lokið,“ segir
Sævar Karl Ólason, verslunar-
maður við Bankastræti. Klárað
verður að malbika í næstu viku og
í raun batnar aðgengið að búð
Sævars Karls með hverjum deg-
inum sem líður. „Þetta er allt á
uppleið,“ segir Sævar Karl.
Búið verður að helluleggja fyr-
ir framan búðina 17. júní og líst
Sævari mjög vel á. „Þetta verður
líkt og Skólavörðustígurinn,“ seg-
ir Sævar. „Það hefur tekist mjög
vel og kaupmenn eru ánægðir.“
Sævar er því mjög sáttur við
framkvæmdirnar þrátt fyrir
ýmis óþægindi sem þær hafa
valdið. Hann bendir á að þær hafi
tekið stuttan tíma og verði senn
lokið. ■
VIÐSKIPTI Stærstu hluthafar í Baugi
hafa stofnað nýtt eignarhaldsfélag
um hlut sinn í fyrirtækinu og
stefna að því að yfirtaka félagið.
Eignarhaldsfélagið Mundur á nú
61,16% hlutabréfa í félaginu og
mun gera öðrum hluthöfum tilboð í
hluti þeirra á næstu vikum.
Hluthafarnir sem standa að
baki nýja félaginu eru Fjárfest-
ingafélagið Gaumur í eigu Bón-
usfeðgina og tengdir aðilar,
Kaupþing banki, eignarhaldsfé-
lögin Vor og ISP og Ingibjörg
Pálmadóttir.
Þessi stóri eignarhluti skapar
nýja félaginu yfirtökuskyldu
gagnvart öðrum hluthöfum. Þeim
verður gert kauptilboð á genginu
10,85.
Kristín Jóhannesdóttir, stjórn-
arformaður Munds og stjórnar-
maður í Baugi, segir aðstæður
hafa breyst mikið síðan Baugur
fór á markað og viðskipti með
bréf í félaginu lítil. Nú sé komið
að því að stíga næstu skref í þró-
un fyrirtækisins. „Við teljum að
það sé best gert með fáum stór-
um fjárfestum.“
Eigendur Munds stefna að því
að skrá Baug úr Kauphöll Ís-
lands. ■
STJÓRNARMYNDUN „Það hafa engar
stórar hindranir komið í ljós hing-
að til,“ sagði áhrifamaður innan
Framsóknarflokksins um gengi
stjórnarmyndunarviðræðnanna.
„En það getur auðvitað allt gerst.“
Málefnavinna flokkanna hélt
áfram í gær. Viðmælendur blaðs-
ins voru á því að ró hvíldi yfir um-
ræðunum. Menn væru ekki að
flýta sér. „Við ætlum að vanda
okkur,“ sagði annar framsóknar-
maður. „Þetta verður enginn
flumbrugangur eins og þegar Við-
eyjarstjórnin var mynduð.“
Formenn stjórnarflokkanna
hafa lýst því yfir að niðurstaðna
úr viðræðunum sé að vænta um
miðja næstu viku. Rætt er um að
formennirnir deili forsætisráð-
herraembættinu á kjörtímabilinu,
eins og Fréttablaðið greindi frá í
gær. Heimildir blaðsins herma að
ekki sé útséð um að Davíð sitji í
tvö ár og Halldór í tvö. Líkur eru
á að Halldór taki við fyrr, jafnvel
strax í febrúar á næsta ári, á 100
ára afmæli heimastjórnarinnar.
Gagnavinnsla og útreikningar
halda áfram innan flokkanna. Sem
fyrr er það í skattamálunum sem
mest ber á milli. „Ætli við mæt-
umst ekki einhvers staðar á miðri
leið,“ sagði þingmaður í Fram-
sóknarflokknum. „Þetta er spurn-
ing um skattalækkun annars veg-
ar og velferðarkerfið hins vegar.
Hér þarf að gæta jafnvægis.“
Annað sem er uppi á borðum er
möguleg uppstokkun á ráðuneyt-
unum. Lengi hefur verið rætt um
að spyrða saman landbúnaðar-
ráðuneyti, sjávarútvegsráðuneyti
og iðnaðarráðuneyti í eitt atvinnu-
málaráðuneyti. „Skipting atvinnu-
málaráðuneytanna í þrjú ráðu-
neyti er úrelt,“ sagði stjórnar-
þingmaður. „Nýir atvinnuvegir
eins og tölvugeirinn, ferðamanna-
iðnaðurinn og afþreyingariðnað-
urinn eru hálf heimilislausir eins
og er. Ef stofnað yrði eitt atvinnu-
málaráðuneyti myndu þessir at-
vinnuvegir falla þar undir. Núna
er ferðamannaiðnaðurinn til
dæmis undir samgönguráðuneyt-
inu, sem er undarlegt.“ Þessi við-
mælandi vildi þó ekkert um það
segja hvort eitthvað yrði af slík-
um uppstokkunum nú. Ekki er
víst að vilji verði til þess að fækka
ráðuneytunum og þar með ráð-
herrastólum.
gs@frettabladid.is
VILLEPIN
Vill skýringar á andófi gegn Frökkum
í Washington.
Frakkar ósáttir:
Krefjast
skýringa
PARÍS, AP Frakkar vilja fá skýring-
ar á ástæðum þess að bandarísk
stjórnvöld ýttu undir að birtar
yrðu fréttir sem eru óhagstæðar
Frökkum.
Bandaríkjamenn hafa neitað
öllum slíkum ásökunum.
„Við viljum fá útskýringar frá
amerískum vinum okkar,“ sagði
Dominique de Villepin, utanríkis-
ráðherra Frakklands og vitnaði
meðal annars í greinar um ólög-
lega vopnasölu Frakka til Íraka. ■
Hafnarfjörður:
Saklaus af
nauðgun
DÓMSMÁL Tæplega fimmtugur
maður hefur verið sýknaður af
ákæru um að hafa nauðgað jafn-
öldru sinni á heimili hennar í
Hafnarfirði.
Fólkið ók saman í leigubíl að
heimili konunnar um nótt í nóv-
ember í fyrra. Þau höfðu kynnst
um kvöldið. Sextán mínútum eftir
að þau yfirgáfu leigubílinn
hringdi konan í Neyðarlínuna og
sagði manninn vera að nauðga sér.
Maðurinn sagði þau hafa notið
ásta á eðlilegan hátt. Fjölskipaður
dómur í Héraðsdómi Reykjaness
hlustaði á upptöku af símtali kon-
unnar við Neyðarlínuna áður
sýknudómurinn var kveðinn upp. ■
OG VODAFONE
Keppinauti Landssímans er ófrjálst að nota
orðið frelsi í auglýsingum sínum og starf-
semi. Landssíminn hefur fengið einkarétt á
notkun orðsins.
Lögbann á Og Vodafone:
Mega
ekki nota
orðið frelsi
FJARSKIPTI Sýslumaðurinn í
Reykjavík lagði í gær lögbann
við því að Og Vodafone noti vöru-
merkið „frelsi“ eitt og sér í
tengslum við fjarskiptaþjónustu,
þar sem Landsíminn hefur fengið
einkarétt á notkun þess. Og Voda-
fone er ósammála úrskurðinum
og hyggst fá lögbanninu hnekkt.
„Frelsi er eitt mest notaða orð
íslenskrar tungu,“ segir Pétur
Pétursson, forstöðumaður upp-
lýsinga- og kynningamála Og
Vodafone. „Við teljum ekki að
lagt verði lögbann við notkun
þess orðs, ekki einu sinni á ein-
stökum sviðum.“ Hann bendir á
að eitt af markmiðum nýrra fjar-
skiptalaga sé að gera fjarskipti
frjáls eftir aldarlanga einokun.
Það kann að vera erfitt að fjalla
um það frelsi ef Landsíminn fær
einkarétt á notkun orðsins.
Og Vodafone mun bjóða upp á
nýja þjónustu í stað „Frelsis“,
sem er fyrirfram greidd síma-
þjónusta fyrirtækisins. Mun sú
þjónusta heita „Málfrelsi“. Og
Vodafone hyggst þó krefjast af-
skráningar vörumerkisins fyrir
dómstólum. ■
Bankastræti:
Batnar með hverjum
deginum sem líður
BANKASTRÆTI
Verður glæsilegt þegar búið verður að
helluleggja 17. júní. Talsvert rask hefur fylgt
framkvæmdunum en mikil bót er að því
að gangandi vegfarendur eiga betur með
að komast ferða sinna nú en áður. Það
verður síðan á þjóðarhátíðardaginn eftir
réttan mánuð sem framkvæmdum lýkur.
Flýta sér hægt
Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram. Ró hvíldi yfir umræðunum
í gær. Meðal annars er rætt um skattamál og uppstokkun ráðuneyta.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Líkur eru á að hann taki við forsætisráðherraembættinu strax á 100 ára afmæli
heimastjórnarinnar við upphaf næsta árs.
Nýtt eignarhaldsfélag stofnað um meirihluta hlutabréfa:
Stefnt að afskráningu Baugs
BAUGUR
Gangi minni hluthafar að yfirtökutilboðinu
verður félagið skráð úr Kauphöllinni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Netsalan
Garðatorgi 3, 210 Garðabær Símar: 565 6241/ 544 4210 Fax: 544 4211
Netfang: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan www.itn.is/netsalan
Opið í dag, laugardag, frá kl. 11 - 17
og sunnudag frá kl. 11 - 16
SÓLAR-
RAFHLÖÐUR
Fyrir hjólhýsi - fellihýsi
- báta og sumarhúsið
Aðeins
kr 49,000