Fréttablaðið - 17.05.2003, Page 6
6 17. maí 2003 LAUGARDAGUR
■ Erlent
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73.12 -0,04%
Sterlingspund 118.56 0,14%
Dönsk króna 11.27 -0,27%
Evra 83.65 -0,27%
Gengisvístala krónu 118,92 0,25%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 264
Velta 6.388 milljónir
ICEX-15 1.421 0,41%
Mestu viðskipti
Íslenskir aðalverktakar hf. 3.473.866.209
Pharmaco hf. 245.613.730
Eimskipafélag Íslands hf. 234.840.413
Mesta hækkun
Skýrr hf. 3,33%
Pharmaco hf. 2,91%
Tryggingamiðstöðin hf. 2,88%
Mesta lækkun
Samherji hf. -1,73%
Búnaðarbanki Íslands hf. -0,95%
Landsbanki Íslands hf. -0,25%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ: 8692,4 -0,2%
Nasdaq: 1542,8 -0,6%
FTSE: 4049,0 0,9%
DAX: 2987,1 -0,1%
NIKKEI: 8117,3 -0,1%
S&P: 942,8 -0,4%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Hver gaf Ólaf Ragnar Grímsson, for-seta Íslands, og Dorrit Moussaieff
saman?
2Yfirvöld í Afríkuríki hafa óskað eftiralþjóðlegri aðstoð vegna blóðugra
ættbálkaerja sem geysa í landinu. Hvert
er landið?
3Í gær frumsýndi Regnboginn heimild-armynd um karlmann sem vann fyrir
sér sem strippari hér á landi í níu ár.
Hvað heitir myndin?
Svörin eru á bls. 39
SJÁVARÚTVEGUR Íslenskar fiski-
mjölsverksmiðjur hafa greitt
hærra verð fyrir kolmunna til fær-
eyskra fiskiskipa en íslenskra. Að
sögn Árna Bjarnasonar, formanns
Farmanna- og fiskimannasam-
bands Íslands, munar talsverðu á
verðinu. „Íslendingarnir eru að fá
6500 krónur fyrir tonnið á meðan
Færeyingarnir fá 7300-7400 krón-
ur,“ segir hann. Verkfall stendur
nú yfir í Færeyjum og hafa fær-
eysku fiskiskipin gripið til þess
ráðs að landa hér á landi.
Að sögn Árna er mikil óánægja
meðal sjómanna vegna málsins.
Telja þeir að verðið sem greitt er
fyrir hráefni til skipanna sé of
hátt miðað við það hversu mikið
fæst fyrir afurðirnar. „Það má
spyrja sig þeirrar spurningar
hvort ekki sé hægt að borga Ís-
lendingunum hærra verð heldur
en þeir eru að gera,“ segir Árni.
„Fyrst þeir treysta sér til að
borga Færeyingunum svona hátt
verð.“
Að sögn Árna hefur Farmanna-
og fiskimannasambandið vísað
málinu til Verðlagsstofu skipta-
verðs sem kannar nú verðlagning-
una.
Gísli Jónatansson, fram-
kvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar,
segir að færeyskum fiskiskipum
hafi verið greitt eitthvað hærra
verð en íslenskum. Þó muni ekki
miklu. „Íslensku skipin eru í föst-
um viðskiptum við verksmiðjur,“
segir Gísli aðspurður um ástæður
þess. Öðru máli gegni um fær-
eysku fiskiskipin, sem séu í sam-
keppni á alþjóðlegum markaði. ■
Lækningaforstjóri :
Lýtalækn-
ingar færðar
HEILBRIGÐISMÁL „Það er rétt, lýta-
lækningadeildin hefur alla tíð liðið
fyrir aðstöðuleysi,“ segir Jóhannes
Gunnarsson lækningaforstjóri
Landspítalans.
Haft var eftir Jens Kjartanssyni
yfirlækni deildarinnar að deildin
hefði ekki fylgt þróun á atvinnu-
háttum þjóðarinnar og því væri hún
ekki í stakk búin til að veita þá
þjónustu sem henni væri ætlað.
Jóhannes segir breytinga að
vænta. Deildinni hafi verið fundinn
nýr staður. „Ætlunin er að henni
verði komið fyrir í álmu spítalans í
Fossvogi. Ég reikna með að um
næstu áramót geti hafist vinna við
endurnýjun þar,“ segir Jóhannes. ■
ATKVÆÐI Það var enginn vafi í hug-
um landskjörstjórnarmanna um
að hafna bæri beiðni Frjálslynda
flokksins um að fresta úthlutun
þingsæta. Það vildi Frjálslyndi
flokkurinn að yrði gert svo tóm
gæfist til að telja atkvæði aftur,
eða yfirfara í það minnsta vafaat-
kvæði og utankjörfundaratkvæði.
„Yfirkjörstjórn hefur enga
heimild til að verða við beiðn-
inni,“ sagði Þórður Bogason, ritari
landskjörstjórnar, á fundi þar sem
niðurstaðan var kynnt. Engin
heimild sé í lögum um að endur-
telja atkvæði og þar sem fyrir-
varalausar skýrslur um kosninga-
úrslit í öllum kjördæmum liggi
fyrir séu uppfyllt öll skilyrði fyr-
ir því að landskjörstjórn úthluti
þingsætum.
Meðlimir landskjörstjórnar
vildu lítið segja um hvernig Al-
þingi myndi afgreiða málið ef það
verður lagt fyrir það. Reyndar
var að heyra að þeir væru ekki al-
veg á einu máli um hvað Alþingi
væri fært að gera. Ljóst væri að
Alþingi gæti efnt til nýrra kosn-
inga, ekki væri þó öruggt að það
gæti fyrirskipað endurtalningu
atkvæða sem hefðu ekki verið
gerðar sérstakar athugasemdir
við.
„Við tökum þetta örugglega
upp á þingi,“ sagði Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, síðdegis í gær.
„Eftir því sem við höfum kafað
meira ofan í þetta hefur meira
komið í ljós. Það er misræmi milli
kjördæma, misjöfn meðferð á
vafaatkvæðum, misjöfn meðferð
á utankjörfundaratkvæðum.“
Guðjón segir þrjú utankjörfund-
aratkvæði vera á skrifstofu
flokksins. „Tvö þeirra eru ógild
vegna þess að sýslumenn
gleymdu að stimpla umslögin,
kjörseðlarnir sjálfir eru í lagi.“
„Það er dálítið sérstætt að það
sé í verkahring nýkjörins Alþing-
is að taka ákvörðun um þetta,“
sagði Guðjón og var ekki bjart-
sýnn á að Framsóknarmenn væru
spenntir fyrir því að láta endur-
telja í ljósi þess að tólfti maður
þeirra væri í hættu.
„Við munum örugglega koma
með breytingartillögur við lög-
gjöfina,“ bætir Guðjón við.
Hvernig sem niðurstaðan verði í
þessu tilviki hljóti málið að verða
til þess að löggjöfin verði bætt.
brynjolfur@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Guðný Sverrisdótt-
ir, formaður stjórnar Landspítal-
ans, sagði á aðalfundi hans að spít-
alinn hefði verið rekinn með
tveggja prósenta halla árið 2002.
Engu að síður verði ekki litið fram
hjá því að góður árangur hafi
náðst í rekstri og stjórnun eftir
sameiningu sjúkrahúsanna.
Á síðasta ári styttust biðlistar
talsvert. Teknar hafa verið í gagn-
ið nýjar og fullkomnar skurðstof-
ur. Guðný sagði að rökrétt væri að
nýta þær til fulls, gera fleiri að-
gerðir og stytta biðlista verulega.
Guðný vakti athygli á að aug-
ljóst væri að spítalinn gæti ekki
endalaust mætt kröfum um aukna
þjónustu án þess að fá til þess
meira fé á fjárlögum. „Breytingar
á fjárframlögum til spítalans
þýða þess vegna núna óhjákvæmi-
lega breytingar á þjónustu. Því
verður ekki neitað að peningar
ráða mestu um þá þjónustu sem
spítalanum er fært að veita
hverju sinni. Það er hlutverk
stjórnenda hans að reka starfsem-
ina innan ramma fjárlaga sem
getur reynst örðugt ef rekstrarfé
er naumt skammtað.“
Fundurinn var síðasti ársfund-
ur sitjandi stjórnar og þakkaði
stjórnarformaður gott samstarf
og óskaði spítalanum heilla í
framtíðinni. ■
HJAÐNANDI VERÐBÓLGA Verð-
bólga innan ESB hjaðnaði á milli
mánuða, úr 2,4% í mars í 2,1 % í
apríl og var lægri en hagfræðing-
ar höfðu spáð. Þessar upplýsing-
ar munu ýta enn frekar undir
spár þeirra sem segja að Seðla-
banki Evrópu muni skera á vexti
innan sambandsins í þeirri von að
efnahagur landanna taki við sér.
Sjómenn óánægðir:
Hærra verð greitt til
færeyskra fiskiskipa
ÍSLENSKUR SJÓMAÐUR
Sjómenn eru ósáttir við að Færeyingum
sé greitt hærra verð.
Frjálslyndum hafnað
Landskjörstjórn hafnaði beiðni Frjálslynda flokksins um að fresta úthlutun þingsæta.
Við tökum þetta upp í þinginu segir Guðjón A. Kristjánsson.
FRÁ FUNDI LANDSKJÖRSTJÓRNAR
Engar forsendur eru til að verða við beiðni Frjálslynda flokksins, segja kjörstjórnarmenn.
Ársfundur Landspítala:
Erfiður rekstur
í auraleysi
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
Á ársfundinum kom fram að rekstrarkostnaður hækkaði um 2,5% árið 2002.
LANDSPÍTALINN FOSSVOGI
A-álman hefur meira eða minna öll veruð
endurnýjuð en hátt í 40 ár eru síðan spít-
alinn var tekinn í notkun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T