Fréttablaðið - 17.05.2003, Page 20
NEMENDUR Í TÖLVUNARFRÆ‹I vi› háskólann í reykjavík
Jón Andri Sigurðarson var í fyrsta ár-
ganginum sem útskrifaðist með BS-
gráðu úr tölvunarfræðideild Háskólans í
Reykjavík árið 2000. Hann er rafeinda-
iðnmenntaður og tók stúdentspróf frá
Tækniskólanum.
„Ég hafði aldrei verið neinn tölvukarl
en áhuginn kviknaði í gegnum vini og
kunningja,“ segir Jón Andri um aðdrag-
anda þess að hann fór í HR. „Mér
fannst Háskólinn í Reykjavík vera nýr og
spennandi kostur. Áherslur skólans
höfðuðu til mín, með miklu verklegu
námi.“
Jón Andri segir námið hafa verið
mjög skemmtilegt en því fylgi mikil
vinna. Hann eyddi ófáum sólarhringum í
skólanum og segir nemendur hafa verið
samheldna. „Enn þann dag í dag höld-
um við hópinn og hittumst reglulega í
hádeginu og fáum okkur að borða,“
segir tölvunar fræðingurinn. „Tengsl
milli nemenda voru góð og mikil. Það er
mikil hjálpsemi manna á milli þótt það
sé líka ákveðin samkeppni – allt innan
hóflegra og góðlegra marka.“
Strax á lokaárinu í HR hóf Jón Andri
að vinna í hlutastarfi hjá hugbúnaðar-
húsinu Hugtaki. Honum gekk vel að
sameina skóla og starf en segir það
hafa krafist mikillar vinnu. „Það er mik-
il vinna í Háskólanum í Reykjavík og fólk
fer ekki þangað til að taka því létt. En
fólk uppsker eftir því og þetta er
þrælgaman.“
Jón Andri gat valið úr stör fum eftir
námið en ákvað að halda áfram hjá
Hugtaki. Hann er nú orðinn verkefna-
stjóri og einn af eigendum fyrir tækis-
ins.
Útskri faðist með fyrsta árganginum í HR:
Gat va l ið úr s tör fum
Á leið í doktorsnám:
Sameinar tón l i s t og forr i tun
Freyr Guðmundsson lauk BS-gráðu í tölvunarfræði
frá Háskólanum í Reykjavík nú í maí. Lokaverkefni
hans er forrit sem greinir verk eftir Johannes Sebast-
ian Bach og býr til ný úr þeim.
„Það er ákveðið safn af verkum hans sem kallast
kóralar. Forritið greinir þau verk og býr til nýja kórala í
sama stíl,“ segir Freyr.
Freyr lauk burtfararprófi í trompetleik frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík fyrir tveimur árum. Þannig kvikn-
aði hugmyndin að lokaverkefninu.
„Ég hef lagt mikla vinnu í tónlistina og fannst snið-
ugt að geta tengt hana við tölvunarfræðina,“ segir
trompetleikarinn.
Margir gætu talið langan veg á milli tónlistar og
tölvunarfræði en að sögn Freys er margt líkt með
þessum greinum. „Það er ákveðið safn af reglum
sem þarf að fylgja og það er ákveðið listamannseðli í
báðum greinum. Forritarar geta skrifað mismunandi
fallegan kóða og hljóðfæraleikarar geta spilað mis-
fallega tónlist.“
Freyr hyggur á fimm ára doktorsnám við Háskólann
í Maryland í Bandaríkjunum. Hann verður þar með
fyrsti nemandinn úr HR sem fer í doktorsnám.
„Ég stefni á að gera rannsóknir í gervigreind. Ég
hef reynt að undirbúa mig aðeins fyrir námið og loka-
verkefnið með Bach er byggt á grunnhugtökum gervi-
greindar,“ segir Freyr.
Guðrún Hulda Jónsdóttir lýkur fyrsta ári í tölvunar-
fræðideild HR nú í maí með glæsibrag og er sem stend-
ur með 9,38 í meðaleinkunn. Árangur Guðrúnar Huldu
er sannarlega glæsilegur, ekki síst í ljósi þess að hún
er einstæð þriggja barna móðir.
„Þetta krefst mikillar skipulagningar og stundum
skipulegg ég heilu vikurnar fram í tímann,“ segir Guð-
rún Hulda aðspurð um hvernig hún fari að. „Þetta getur
verið svolítið erfitt en það er alveg þess virði. Ég hef lít-
inn tíma fyrir annað en börnin og skólann.“
Einkunnir Guðrúnar Huldu urðu til þess að hún komst
inn á svokallaðan forsetalista, en þeir nemendur sem
komast á hann fá skólagjöld næstu annar felld niður.
Guðrún Hulda útskrifaðist af eðlisfræðibraut Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði. Að loknu stúdentsprófi fór
hún í viðskiptafræði við Háskóla Íslands. „Mér fannst
ekki nógu fjölskylduvænt að vera þar. Það er allt miklu
heimilislegra hér í Háskólanum í Reykjavík. Það eru all-
ir svo góðir og almennilegir og tilbúnir að hjálpa,“ segir
Guðrún Hulda. „Það er alveg ótrúlega skemmtilegt að
vera í skólanum og ég flýti mér ekki heim þegar
kennsludegi lýkur nema bara til þess að taka á móti
börnunum. Þetta er rosalega skemmtilegt nám en því
fylgir mikil vinna.“
Guðrún Hulda hyggur á meistaranám í tölvunarfræði
þegar hún hefur lokið BS-gráðunni frá HR og hver veit
nema hún ljúki gráðunni þaðan. Aðspurð hvað hún ætli
að gera í sumar sagði Guðrún Hulda: „Ég ætla að vera
með börnunum mínum, þau eiga það inni hjá mér.“
Framúrskarandi árangur:
E ins tæð móðir
með 9,38
BS-nám
í tö lvunar f ræði
Kennsluaðferðir
Kennsla í tölvunarfræðideild byggir á fyrirlestrum og
dæmatímum. Fyrirlestrar eru sameiginlegir fyrir allan ár-
ganginn en dæmatímar eru haldnir í 25-30 nemenda hóp-
um. Í náminu er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér
viðurkenndar og nútímalegar aðferðir við hugbúnaðarþró-
un.
Séreinkenni námsins eru verkefni, bæði hóp- og einstak-
lingsverkefni, og skipulagt verklag við úrvinnslu þeirra. Á
hverri önn taka nemendur fimm námskeið sem skiptast í
fjögur 12 vikna bókleg námskeið og eitt þriggja vikna verk-
legt námskeið eða þriggja vikna sérhæft námskeið.
BS í tölvunarfræði
BS-nám í tölvunarfræðideild er þriggja ára nám (90 eining-
ar). Hægt er að velja á milli tveggja kjörsviða: kerfishug-
búnaðar og notendahugbúnaðar. Að auki er hægt að út-
skrifast með viðskiptafræðival eða val í tæknigreinum eða
raunvísindum. Eftir tveggja ára nám býðst nemendum að
útskrifast sem kerfisfræðingar-HR (60 einingar).
BS í tölvunarfræði – kjörsvið:
notendahugbúnaður
Á þessu kjörsviði er lögð áhersla á að nemendur læri hag-
nýtar og viðurkenndar aðferðir við gerð notendahugbúnað-
ar. Nemendur taka stærðfræðinámskeið á seinni önnum
námsins. Á þessu kjörsviði er hægt að útskrifast með við-
skiptaval og að auki er hægt að sækja um að útskrifast
með val í tæknigreinum eða raunvísindum.
BS í tölvunarfræði – kjörsvið:
kerfishugbúnaður
Á þessu kjörsviði er lögð áhersla á gerð hugbúnaðar fyrir
tölvukerfi eins og stýrikerfi, netkerfi, dreifð kerfi og gagna-
grunnskerfi. Nemendur taka stærðfræðinámskeið fyrr í
náminu en á kjörsviði notendahugbúnaðar og jafnframt er
um fleiri skyldunámskeið í stærðfræði að ræða. Hægt er
að sækja um að útskrifast með val í tæknigreinum eða
raunvísindum með þetta kjörsvið.
Viðskiptafræðival
Til að útskrifast með viðskiptafræðival þarf nemandi að
ljúka 72-75 einingum úr tölvunarfræðideild og 15-18 ein-
ingum úr viðskiptadeild. Valnámskeið úr viðskiptadeild
geta nemendur tekið á 4. til 6. önn.
Val í tæknigreinum eða raunvísindum
Nemendur geta sótt um að fá metið 15 eininga val vegna
háskólanáms í verkfræði, tæknifræði, stærðfræði eða
raunvísindum. Ljúka þarf 72-75 einingum úr tölvunar-
fræðideild. Þessi möguleiki hentar að sjálfsögðu þeim
sem hafa þegar lokið háskólaprófi í viðkomandi fræði-
greinum.
Kerfisfræði
Nemandi getur valið að útskrifast sem kerfisfræðingur-HR
eftir 4 annir. Útskrifaðir kerfisfræðingar geta sótt um að
hefja nám að nýju á 3. ári í þeim tilgangi að ljúka BS-prófi.
M
YN
D
/R
Ó
B
ER
T
M
YN
D
/RÓ
B
ERT