Fréttablaðið - 17.05.2003, Side 24
RANNSÓKNIR Í TÖLVUNARFRÆ‹I vi› háskólann í reykjavík
Eitt helsta stolt tölvunarfræðideildar Háskól-
ans í Reykjavík er Netsetur HR. Markmið seturs-
ins er að stunda netrannsóknir á heimsmæli-
kvarða og taka virkan þátt í stefnumörkun
stjórnvalda og atvinnulífsins á sviði fjarskipta og
hátækni á Íslandi.
Síðustu tvö ár hafa starfsmenn Netsetursins
unnið að rannsóknum á netkerfum og netþjón-
ustu með það að markmiði að bæta notagildi.
Að leysa hnúta
Fjarskiptanet samanstanda af nethnútum
(routers/switches) og línum sem tengja þá sam-
an. Verkefni Netsetursins snýr að því að búa til
forritanlega nethnúta, sem þar með bjóða með-
al annars upp á þann möguleika að skipta um
hugbúnað á hnútunum og gera þá nýtilegri en þá
gömlu, sem gegna aðeins einu ákveðnu hlut-
verki „Í stað staðfastra hnúta sem ekkert er
hægt að gera með nema einn ákveðinn hlut ætl-
um við að breyta Netinu, eðli þess og þjónustu,
með forritanlegum vefhnútum.“ segir Heimir Þór
Sverrisson, lektor við Háskólann í Reykjavík og
starfsmaður Netsetursins. Með því að breyta
hnútunum verður meðal annars hægt að bjóða
upp á svokallað margvarp.
Margvarp
Sem dæmi um notkunarmöguleika
margvarpsins er streymandi (streaming) útvarp
eða sjónvarp á Netinu.
Þegar hljóð eða mynd er nú sótt á Netið, til
dæmis á vef Ríkisútvarpsins, opnar hver not-
andi nýja leið inn í hnútinn sem sendir út efnið
og notar um leið nokkra tugi kílóbita af band-
breidd miðlarans. Ef margir sækja sama efni, á
sama tíma, opnar hver og einn nýja leið að
hnútnum og eykst þá bandbreiddarnotkunin
með hverjum notanda. Sé verið að senda út vin-
sælt efni er hætta á að álagið á netþjóninn verði
of mikið og hann hætti að starfa.
Margvarp Netseturs HR er hins vegar útfært
þannig að virkir nethnútar þess grípa inn í sendi-
beiðnir notendanna á leiðinni þannig að þegar
margir notendur sækja sama efni samnýta þeir
gagnastrauma og álag á miðlara netsins verður
hverfandi í samanburði við þær aðferðir sem
notaðar eru í dag.
Nútímalegri kennsluhættir
Margvarpið má nýta á fleiri vegu, til dæmis
til fjarkennslu. Fjarkennslukerfi, eins og þau
eru í dag, eru takmörkuð að mörgu leyti. Til
dæmis er fjöldi fyrirlestra takmarkaður og mið-
stýra þarf aðgangi að fjar fundakerfum. Fjar-
fundabrýr, sem sjá um að miðla efninu, eru
flöskuhálsar því þær geta aðeins sent út einn
fund/fyrirlestur í einu. Óhugsandi er að nem-
endur geti sjálfir sett á fund eða hópvinnusetu
í slíku kerfi.
Með margvarpinu opnast aftur á móti fyrir
eins marga fundi/fyrirlestra og hver vill, með
eins mörgum þátttakendum og þörf er á og
mun fleiri notendur. Þetta getur gjörbreytt eðli
fjarkennslu. Hingað til hefur verið ómögulegt að
stunda hópvinnu í fjarkennslu, meðal annars
vegna þessara tæknilegu takmarkana. Að auki
er kostnaður við fjarkennslu með margvarpi
mun minni og gæðin geta verið margfalt meiri
með ódýrum stöðluðum tölvubúnaði.
Samstarf við erlendar stofnanir
Eins og áður segir hefur Netsetur HR unnið
að margvarpsverkefninu í á annað ár. Setrið hef-
ur átt í samstarfi við erlenda háskóla og rann-
sóknarstofnanir, þar á meðal University College
Cork á Írlandi, KTH í Stokkhólmi og AT&T Shann-
on Laboratories í Bandaríkjunum.
Margvarp minnkar álag á miðlara:
Netrannsóknir
á heimsmælikvarða
Netsetur HR er þekkingarsetur:
Ste fnumörkun í f jar -
sk ip tum og hátækni
Markmið Netseturs HR er að vera þekkingarsetur á sviði net-
kerfa og netþjónustu og taka virkan þátt í stefnumörkun stjórn-
valda og atvinnulífsins á sviði fjarskipta og há-
tækni á Íslandi.
Dr. Gísli Hjálmtýsson er forstöðumaður Net-
setursins. Hann hefur verið með annan fótinn í
Bandaríkjunum, hjá fyrirtækinu AT&T, en var ráð-
inn til Háskólans í Reykjavík fyrir tveimur árum
og þá var Netsetrið stofnað.
Fastir starfsmenn Netsetursins eru fjórir; Dr.
Gísli Hjálmtýsson, Heimir Þór Sverrisson, lektor
við HR, og sérfræðingarnir Björn Brynjúlfsson og
Ólafur Ragnar Helgason.
Nemendur HR stunda einnig verkefnavinnu við
Netsetrið sem hluta af náminu og í sumar verða þrír til fjórir nem-
endur í starfi þar, þar af tveir á styrk frá Nýsköpunarsjóði náms-
manna.
Intel í samstar f við Netsetur HR:
Styrkur f rá er lendu
s tór fyr i r tæki
Stórfyrirtækið Intel hefur veitt Netsetri HR styrk til að útfæra
og gera tilraunir með pakkastöðvar á nýjum örgjörvum sem fyrir-
tækið hefur hannað sérstaklega fyrir netbúnað (network process-
ors). Styrkurinn kemur í kjölfar greinar sem lýsir rannsóknum Net-
setursins á forritanlegum nethnútum og margvarpi, og fyrirlestr-
um Dr. Gísla Hjálmtýssonar á ráðstefnum á síðustu mánuðum.
Intel gaf Netsetrinu tíu þróunarkerfi netörgjörva, samtals að
verðmæti um fimm milljónir króna. Þessi höfðinglega gjöf Intel er
gríðarleg viðurkenning fyrir Háskólann í Reykjavík og þá metnað-
arfullu rannsóknarvinnu sem þar fer fram, og gerir Netsetrinu
færi á að halda áfram að vera í fremstu röð í sviði forritanlegra
nethnúta og netkerfa í heiminum. Jafnframt styrkir þetta stöðu
Netseturs HR í alþjóðlegri samvinnu og samkeppni um rannsak-
endur og nemendur. Fyrst og fremst er þessi styrkur þó hvatning
til starfsmanna Netsetursins og Háskólans í Reykjavík um að
halda áfram á braut metnaðar og afreka.
Dæmi um
rannsóknasv ið
Netse turs
Högun nethnúta
Rannsóknir á högun nethnúta sem stuðla að auðveldari inn-
leiðingu nýrrar netþjónustu í fjarskiptakerfi framtíðarinnar,
hvort sem er í ljósrænum, öðrum þráðrænum eða þráðlaus-
um fjarskiptakerfum.
Nýir prótókollar og netþjónustur
Rannsóknir á nýjum netþjónustum og því hvernig nýjar þjón-
ustukröfur knýja á um breytingar í netkerfum, grunnprótókoll-
um og þjónustulíkönum.
Margvarp og fjarkennsla
Netsetur HR rannsakar margvarp, sér í lagi hagnýtingu þess
til fjarfunda og fjarkennslu. Þessar rannsóknir hafa verið
styrktar af menntamálaráðuneytinu og eru nú styrktar að
hluta af RANNÍS.
Mælingar á afköstum og gæðum
Hermilíkön, biðraðafræði og beinar mælingar eru notaðar til
að sannreyna tilraunir og leggja grunninn að djúpum skilningi
á grundvallareiginleikum flókinna netkerfa, gæðastýringu og
flækjustigi.
Rekstur eigin rannsóknanets og þjónustu
Til að hagnýta nýjungar sem hafa orðið til í Netsetrinu er rek-
ið tilraunanet innan HR. Markmiðið er að þetta net nái fljót-
lega yfir allt landið og út fyrir landsteinana. Hnúta netsins má
uppfæra með nýjum netþjónustum (hugbúnaði) yfir netið
sjálft. Auk þess eru hafnar tilraunasendingar á útvarps- og
sjónvarpsefni með margvarpi yfir Netið.
M
YN
D
/R
Ó
B
ER
TDR. GÍSLI
HJÁLMTÝSSON