Fréttablaðið - 17.05.2003, Síða 28
Það var létt yfir hestamönnun-um sem höfðu stigið af baki
hestum sínum uppi við Elliða-
vatn, og greinilegt að vorið var
komið í bæði menn og hesta
þrátt fyrir nepjuna. „Þegar
hrossagaukurinn og lóan eru far-
in að syngja fyrir okkur og veiði-
mennirnir farnir að veiða, þá er
nú aldeilis vorið komið,“ segir
Vigfús Magnússon, einn hesta-
mannanna hlæjandi. „Það er svo
aftur annað mál að maður sér
aldrei nokkurn mann fá fisk,“
bætir hann við. „En það vaknar
bara allt á vorin og svo eru nátt-
úrlega sleppitúrarnir fram und-
an, þegar hestamenn ríða með
hesta í haga, og sumir alla leið í
Skaftafellsýslu.“
Vigfús kveðst ætla að leggja í
sleppiferð 11. júní. „Við höfum
stopp í Mýrdalnum og ég reikna
með að við verðum fjóra til
fimm daga á leiðinni þangað.“
„Og ekki gleyma að segja frá
því að við ríðum stórár,“ segir
Pétur.
Þeir félagar segja að sjálf-
sögðu glatt á hjalla í svona ferð-
um. „Það er lítið drukkið,“ segir
Vigfús, og veifar pínulítilli
pyttlu því til sannindamerkis,
„en mikið hlegið og sungið.“ ■
22 17. maí 2003 LAUGARDAGUR
Vorboðarnir í Reykjavík eru víða og ekki bara í líki farfuglanna sem leggja á sig
langt ferðalag til að gleðja landsmenn á vorin. Krakkarnir í unglingavinnunni eru
líka vorboðar, svo og fólkið sem dyttar að í görðum sínum, smábátaeigendur sem
gera klárt fyrir sumarið, og yfirleitt allir þeir sem verða sýnilegir á ný í borginni
eins og til dæmis veiðimenn í nærliggjandi vötnum og gestir á útiveitingastöðum,
sem sötra drykkinn sinn í sólinni. Víst er að allt lifnar við og margir finna fyrir eft-
irvæntingu og gleði með hækkandi sól.
Uppi við Elliða-vatn vakti at-
hygli ljósmyndara
gullfallegur hund-
ur á sundi úti í
vatninu. Eigandi
hans, Steinunn
G u ð j ó n s d ó t t i r,
kynnti blaðamenn
fyrir Sebastian,
sem gaf sér tíma til
að koma örskots-
stund upp úr vatn-
inu og hrista sig
duglega yfir mann-
fólkið áður en hann
lagðist aftur til
sunds. „Þetta er
hluti af þjálfun
hundsins, sem er
Golden Retriever,“
segir Steinunn,
„hann fær svo fallega bringu af
sundinu. En svo er hann líka sjúkur
í vatnið og getur verið á sundi frá
einum klukkutíma upp í tvo. Það er
ég sem þreytist en ekki hann,“ seg-
ir hún.
Sebastian er ótrúlega hraustur
og duglegur hundur og syndir ekki
bara í vötnum á vorin heldur líka í
sjónum á veturna, jafnvel þó úti sé
frost.
„Við förum gjarnan út í Gróttu
þar sem mengunin er minnst. Þar
nýtur hann sín vel og rekur mis-
kunnarlaust á brott aðra hunda sem
koma nálægt hans svæði. Svo hefur
hann synt þar með selum, sem er
alveg ómótstæðilegt,“ segir Stein-
unn. ■
Sólin vekur löngun í ís og oftmyndast langar raðir við ís-
sjoppurnar. Þá finnst Reykvíking-
um að vorið sé örugglega komið.
Að spóka sig í bænum og borða ís
er tvímælalaust eitthvað sem
heyrir vorinu til að mati Önnu
Jónu Dungal og Iðu Þorradóttur,
en Fréttablaðið rakst á þær þar
sem þær stóðu á Ingólfstorgi og
hámuðu í sig ís. „Það er svo gott
veður að maður bara verður að fá
sér ís,“ sögðu þær stöllur, sem
ljúka skólanum í byrjun júní og
stefna glaðbeittar í sumarbústað
og sumarbúðir í sumar. ■
Íslöngunin
eykst með
vorinu
ANNA JÓNA DUNGAL OG IÐA
ÞORRADÓTTIR
Segja tilheyra vorinu að fara í bæinn og fá
sér ís.
EINS OG SELUR Á SUNDI
Sebastian syndir stundum með selum úti
við Gróttu.
Sundið hluti af
þjálfun hundsins
STEINUNN OG SEBASTIAN UPPI VIÐ ELLIÐAVATN
Sebastian reynir stundum á þolrif eiganda síns því hann fæst
helst ekki upp úr vatninu.
ÁÐ VIÐ ELLIÐAVATN
Vigfús Magnússon, Pétur Guðmundarson og Kristín Björnsdóttir voru í besta skapi og farin að hlakka til sleppiferðarinnar í júní.
Vorið komið í hestamenn
Ekkert er
fegurra...
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
I/
VI
LH
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
I/
VI
LH
EL
M