Fréttablaðið - 17.05.2003, Síða 33
LAUGARDAGUR 17. maí 2003 27
Tilboðið gildir meðan birgðir endast.
Ótrúlegt verð á
290 kr/kg
frosnum kjúklingum
og annars árs í textíl og fatahönnun við
Listaháskóla Íslands verða sýnd á Vor-
hátíð skólans.
■ ■ MESSUR
11.00 Norræn þjóðlagamessa
verður í Hafnarfjarðarkirkju. Örn Arnar-
son og hljómsveit hans leika og syngja
en prestur er séra Þórhallur Heimisson
sem jafnframt hefur þýtt messuna og
altarisgöngusálma sem Per Harling
samdi í þjóðlagatakti.
11.00 Herra Sigurbjörn Einarsson
biskup predikar í hátíðarmessu í Akur-
eyrarkirkju á lokadegi kirkjulistaviku.
Málmblásarakvartett leikur, Kór Akureyr-
arkirkju syngur og einsöngvarar verða
Sólbjörg Björnsdóttir og Sigríður Aðal-
steinsdóttir.
20.30 Síðasti liður Kirkjulistaviku
Akureyrarkirkju er æðruleysismessa.
Prestar eru séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir
og séra Svavar A. Jónsson. Tónlist er í
höndum Örnu Valsdóttur, Óskars Pét-
urssonar, Eiríks Bóassonar, Snorra
Guðvarðssonar og Stefáns Ingólfsson-
ar.
■ ■ BÍLASÝNING
13.00 Nýi bíllinn Lexus RX 300
verður sýndur í Lexus umboðinu við
Nýbýlaveg í Kópavogi til klukkan 16.
■ ■ TÓNLIST
14.00 Dagur hljóðfærisins verður
haldinn í sjötta sinn í Menningarmið-
stöðinni Gerðubergi. Að þessu sinni er
hann helgaður tvíblaða hljóðfærunum
óbó og fagott.
15.00 Drengjakór Neskirkju held-
ur vortónleika í Neskirkju. Á efnisskránni
er meðal annars frumflutningur á verk-
um eftir Szymon Kuran og Hildigunni
Rúnarsdóttur.
17.00 Af tilefni hálfrar aldar starf-
semi Tónmenntaskóla Reykjavíkur
efnir skólinn til hátíðartónleika í Saln-
um, Kópavogi. Flytjendur eru svo til allir
fyrrverandi nemendur gamla Barnamús-
íkskólans og Tónmenntaskólans, allt
þekktir tónlistarmenn á borð við Gunn-
ar Kvaran sellóleikara, Sigrúnu Eð-
valdsdóttur og Sigurbjörn Bernharðs-
son fiðluleikara.
20.30 Kammertónleikar verða í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, á
Vorhátíð Listaháskóla Íslands. Nem-
endur úr tónlistardeild flytja tríó fyrir pí-
anó, fiðlu og selló eftir Franz Shubert og
píanókvintett eftir Dmitri Shostakovitch.
■ ■ DANSLIST
20.00 Afmælissýning Íslenska
dansflokksins verður í Borgarleik-
húsinu í þriðja og síðasta sinn. Sýnd
verða brot úr nokkrum eftirminnileg-
um verkum sem flokkurinn hefur
sýnt, meðal annars söngatriði með
Agli Ólafssyni og Jóhönnu Linnet.
Einnig er sýnt nýtt verk eftir Láru Stef-
ánsdóttur danshöfund.
■ ■ LEIKLIST
13.00 Leikrit Svövu Jakobsdóttur
Hvað er í blýhólknum? verður leiklesið
í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Leiklesturinn er hluti af vorhátíð Lista-
háskóla Íslands og flytjendur eru nem-
endur Leiklistardeildar skólans.
14.00 Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir
barnaleikritið Gaggalagú eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
20.00 Nemendaleikhús Listahá-
skólans sýnir í Smiðjunni, Sölvhólsgötu
13, Tvö hús, leikgerð þar sem tveimur
leikritum eftir Lorca er steypt saman í
eina sýningu.
20.00 Farsinn Allir á Svið eftir
Michael Frayn er sýndur á Stóra sviði
Þjóðleikhússins, þýddur og leikstýrður
af Gísla Rúnari Jónssyni.
20.00 Veislan eftir Thomas Vinter-
berg og Mogens Rukov á Smíðaverk-
stæði Þjóðleikhússins. Sýningum fer
fækkandi.
Frumflytur eigin lög
Kristján Helgason baritónsöngv-ari ætlar að frumflytja tvö lög
eftir sjálfan sig á einsöngstónleik-
um sínum í Hafnarborg í dag. Jafn-
framt eru þetta fyrstu einsöngstón-
leikar hans frá því hann lauk námi
frá kennaradeild Söngskólans í
Reykjavík vorið 1997.
„Ég hef verið að bíða eftir
því að verða nógu góður til
þess að halda tónleika,“ segir
Kristján. „En svo ákvað ég að
skipta um aðferð og halda
frekar tónleika til þess að
verða betri. En þá þarf
maður líka að standa
sig.“
Kristján segir
að það hafi lengi
verið draumur
sinn að setja saman sönglög. „Ég
hef verið að fikta við þetta
lengi, en þetta er í
fyrsta skipti sem ég geri alvöru úr
því. En þetta er svona eitt af mörgu
sem mann langar til að gera.“
Yfirskrift tónleikanna er
„Dauðinn - Ástin“. Á efnis-
skránni eru bæði íslensk og
erlend sönglög sem tengjast
þessum tveimur eilífðar-
viðfangsefnum allra lista-
manna. ■
■ TÓNLIST
KRISTJÁN HELGASON
OG ANTONIA HEVESI
Tónleikar þeirra í Hafnar-
borg hefjast klukkan hálf-
fimm síðdegis.