Fréttablaðið - 17.05.2003, Page 36
17. maí 2003 LAUGARDAGUR
Ættjarðarást er skrýtið fyrirbæriog trúlega missterk meðal
þjóða. Að minnsta kosti upplifði ég
það búsett í útlöndum að þýskir vinir
mínir dauðöfunduðu mig af ættjarð-
arrembingnum, sem var þó á stund-
um gjörsamlega óþolandi. Þeir höfðu
alist upp í óljósri skömm vegna síðari
heimsstyrjaldarinnar og fóru aldrei á
flug þegar Þýskaland bar á góma.
Það þótti mér mikil synd, því ekki
báru þeir neina sök.
Sjónvarpið sýndi á miðvikudags-
kvöldið athyglisverða heimildar-
mynd um skólastjóra frá Afganistan
sem flúði til Noregs fyrir rúmum
tuttugu árum. Honum tókst aldrei að
festa rætur þó hann ætti þar þokka-
legt líf, heldur þjáðist af stöðugri
heimþrá. Þegar kom að því að hann
gæti snúið heim héldu honum engin
bönd. Hann kvaddi eiginkonu, börn
og barnabörn, sem töldu sig ekki eiga
erindi til þessa fjarlæga, hrjáða
lands, og bjóst jafnvel við að koma
aldrei aftur. Ég sé ekki hvað er svona
heillandi við Afganistan, en skil ætt-
jarðarást skólastjórans vel.
Nú hafa Íslendingar eignast nýja
forsetafrú sem ekki á rætur á Ís-
landi. Veri hún hjartanlega velkomin
og vonandi að hún eigi eftir að una
sér vel í þessu skrýtna landi. Á hinn
bóginn er ég ógurlega svekkt út í for-
setann að gera ekki þjóðina að þátt-
takanda í þessum stórviðburði. Ég
hefði viljað sjá veglegt kirkjubrúð-
kaup, fánavætt fólk meðfram vegum
og hjónakornin veifandi til mann-
fjöldans eins og tíðkast í útlenskum
brúðkaupum þjóðhöfðinga. Ríkis-
sjónvarpið hefði svo sent út beint frá
öllu saman og í lokin hefði þjóðin get-
að haldið upp á brúðkaupið með
partýjum um allan bæ. Já, ég verð að
segja það, ég er pínulítið spæld út í
forsetann út af þessu. ■
Sjónvarp
EDDA JÓHANNSDÓTTIR
■ skildi Afganann vel sem
þráði heimalandið eftir rúm
tuttugu ár í útlegð.
Ættjarðarást - og létt spæling
20.00 Billy Graham
21.00 Praise the Lord
23.00 Robert Schuller
0.00 Miðnæturhróp C. Parker
Thomas
0.30 Nætursjónvarp – blönduð inn-
lend og erlend dagskrá
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
9.30 NBA (Úrslitakeppni NBA)
12.00 4-4-2
13.00 Enski boltinn Bein útsending
frá úrslitaleik Arsenal og Southampton í
bikarkeppninni.
16.20 Landsbankadeildin 2003 Ítarleg
umfjöllun um keppni í Landsbankadeild-
inni 2003. Hvaða lið falla úrdeildinni og
hverjir verða Íslandsmeistarar? Ómissan-
di þáttur fyrirknattspyrnuáhugamenn á
öllum aldri.
17.20 Toppleikir
19.15 Lottó
19.25 Spænski boltinn Bein útsend-
ing.
21.30 If...Dog...Rabbit (Á glapstigum)
Glæpamynd. Johnnie Cooper sat inni fyr-
ir vopnað rán en faðir hans og bróðir
tóku þátt í glæpnum. Johnnie er nú frjáls
maður en á erfitt með að ná fótfestu
þrátt fyrir ágætan vilja. Bróðir hans er
hins vegar ennþá á hálum ís og vill ólm-
ur fá Johnnie til að taka upp fyrri iðju.
Aðalhlutverk: Matthew Modine, John
Hurt og Kevin J. O’Connor. 1999. Strang-
lega bönnuð börnum.
23.15 Jirov/Toney/Tarver/Griffin Út-
sending frá hnefaleikakeppni í Connect-
icut í Bandaríkjunum. Á meðal þeirrasem
mætast eru Vassiliy Jirov og James Toney.
1.15 Thrills (Nautnaseggir) Erótísk
kvikmynd.Stranglega bönnuð börnum.
2.35 Dagskrárlok og skjáleikur
6.25 Happy, Texas
8.00 Monkeybone
10.00 Music of the Heart
12.00 I Dreamed of Africa
14.00 Happy, Texas
16.00 Monkeybone
18.00 Music of the Heart
20.00 I Dreamed of Africa
22.00 Primary Suspect
0.00 What Lies Beneath
2.05 Girl, Interrupted
4.10 Primary Suspect
7.00 Meiri músík
12.00 Lúkkið
14.00 X-TV..
15.00 Trailer
16.00 Geim TV
17.00 Pepsí listinn
19.00 XY TV
20.00 Meiri músík
13.00 Listin að lifa (e)
14.00 Jay Leno (e)
15.00 Yes, Dear (e)
15.30 Everybody Loves Raymond (e)
16.00 Djúpa laugin (e)
17.00 Survivor Amazon (e)
18.00 Fólk með Sirrý (e)
19.00 Cybernet (e)
19.30 Life with Bonnie (e) Skemmti-
legur gamanþáttur um spjallþáttastjórn-
andann og skörunginn Bonnie Malloy
sem berst við að halda jafnvæginu milli
erfiðs frama og viðburðaríks fjölskyldu-
lífs! Mennirnir í lífi hennar eiga svo fullt í
fangi með að lifa samveruna og -vinnuna
við hana af! Frábærir þættir sem fróðlegt
verður að fylgjast með.
20.00 MDs
21.00 Leap Years
22.00 Law & Order SVU (e)
22.50 Philly (e)
23.40 Tvöfaldur Jay Leno (e) Enginn
er eyland og því bjóðum við upp á tvö-
faldan skammt af Jay Leno en hann er
einmitt tvíræður, tvöfaldur (í roðinu), tví-
fari (á sér marga) og eldri en tvævetra.
1.10 Dagskrárlok Sjá nánar á
www.s1.is
Stöð 2
21.00
Sjónvarpið
21.55
DAGSKRÁ
LAUGARDAGSINS
17. MAÍ
9.00 Morgunstundin okkar
9.02 Mummi bumba (20:65)
9.08 Stjarnan hennar Láru
9.19 Engilbert (13:26)
9.30 Albertína ballerína (16:26)
9.45 Hæsnakofinn (6:6)
10.03 Babar (9:65)
10.18 Gulla grallari (31:52)
10.50 Viltu læra íslensku?
11.10 Kastljósið
11.50 Formúla 1 Bein útsending frá
tímatöku fyrir kappaksturinn í Austurríki.
13.00 Út og suður (1:12)
13.25 Þýski fótboltinn Bein útsending
15.25 Vélhjólasport
15.45 Íslandsmótið í snóker Bein út-
sending frá úrslitaleiknum.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Í einum grænum (2:8)
18.25 Flugvöllurinn (16:16)
18.54 Lottó
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.40 Laugardagskvöld með Gísla
Marteini
20.25 Lögin í söngvakeppninni
20.40 Indíáninn í skápnum Aðalhlut-
verk: Hal Scardino, Litefoot, Lindsay
Crouse, Richard Jenkins.
22.20 Guðfaðirinn II Aðalhlutverk: Al
Pacino, Robert Duvall, Diane Keaton, Ro-
bert De Niro, John Cazale og Talia Shire.
1.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
30
Hinir, eða The Others, er umtöl-
uð spennumynd frá árinu 2001
með Nicole Kidman í aðalhlut-
verki. Grace Stewart býr með
tveimur börnum sínum í virðu-
legu húsi í New Jersey í Banda-
ríkjunum og bíður eftir að eig-
inmaðurinn komi heim úr
seinna stríðinu. Andrúmsloftið í
húsinu er sérkennilegt og þar
veldur mestu að börnin eru
með sjaldgæfan sjúkdóm. Þau
þola illa sólarljós og þess verð-
ur ávallt að gæta að loka dyrum
og draga gluggatjöldin fyrir. Frú
Stewart ræður til sín þjónustu-
fólk sem verður á að brjóta
þessar reglur með óvæntum af-
leiðingum. Leikstjóri er Alej-
andro Amenábar. Myndin er
bönnuð börnum.
8.00 Barnatími Stöðvar 2
11.50 Bold and the Beautiful
13.30 Enski boltinn Bein útsending frá
úrslitaleik Arsenal og Southampton í bik-
arkeppninni.
16.15 Tónlist
16.40 Diana Krall - Live in Paris
17.40 Oprah Winfrey
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Lottó
19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður
19.30 Corky Romano Glæpamynd á
léttum nótum. Corky er yngsti sonur
mafíósans Pops Romano en sá gamli er í
miklum vandræðum. Alríkislögreglan
rannsaknar meinta glæpastarfsemi Pops
og nú vill pabbinn að sonurinn eyðileggi
fyrir sig sönnunargögn sem gætu komið
honum í steininn. Aðalhlutverk: Chris
Kattan, Vinessa Shaw, Peter Falk, Chris
Penn. Leikstjóri: Rob Pritts. 2001.
21.00 The Others (Hinir)
22.45 Perfect Storm (Banvænn storm-
ur) Háspennumynd um raunir áhafnar
fiskibátsins Andreu Gail. Í október 1991
hóaði skipstjórinn Billy Tyne í undirmenn
sína og lagði af stað til sverðfiskveiða á
Atlantshafi. Fyrstu dagana var lítið að
hafa en skipstjórinn þráaðist við og
skeytti engu um varhugaverða veðurspá.
Þegar hann loksins sá að sér var skollið á
óveður og nær ógjörningur að komast
aftur til hafnar. Byggt á sannsögulegum
atburðum. Aðalhlutverk: George Clooney,
Mark Wahlberg, Diane Lane, Karen Allen.
Leikstjóri: Wolfgang Petersen. 2000.
Bönnuð börnum.
0.55 Plunkett & MacLeane. Aðalhlut-
verk: Robert Carlyle, Johnny Lee Miller,
Liv Tyler. Leikstjóri: Jake Scott. 1998.
Stranglega bönnuð börnum.
2.35 The Long Riders (Útlagar) Aðal-
hlutverk: David Keith, Robert Carradine,
Stacy Keach, James Keach. Leikstjóri:
Walter Hill. 1980. Stranglega bönnuð
börnum.
4.10 Tónlistarmyndbönd frá Popp
TíVí
Hinir Í kvöld verður sýnd önnur bíó-
myndin í þríleik Francis Ford
Coppola um Guðföðurinn. Hún
er frá 1974 og er byggð á sögu
eftir Mario Puzo. Hér er sagt frá
uppvexti Vitos Corleone á Sikiley
og fyrstu skrefum hans á glæpa-
brautinni og tilraunum Michaels
sonar hans til að færa út veldi
fjölskyldunnar til Las Vegas,
Hollywood og Kúbu upp úr
1950. Aðalhlutverk leika Al
Pacino, Robert Duvall, Diane
Keaton, Robert De Niro, John
Cazale og Talia Shire. Síðasta
myndin verður sýnd á sunnu-
dagskvöld.
Guðfaðirinn
SJÓNVARP Sjónvarpskonan fræga Bar-
bara Walters hefur tryggt sér einka-
viðtal við þingkonuna og fyrrum for-
setafrúna Hillary Clinton. Tilefnið er
væntanleg bók hennar um líf sitt í
Hvíta húsinu. Bókin heitir „Living
History“ og skilar sér í bókabúðir á
mánudaginn. Þetta þykja tíðindi í
sjónvarpsheiminum í Bandaríkjun-
um þar sem viðtöl Barböru eru þekkt
fyrir að vera afar persónuleg. Sjón-
varpskonan setur það sem skilyrði að
viðmælendur svari öllum spurning-
um sem hún kann að leggja fram.
Það var víst barist um einkaviðtöl
við Hillary og hafði sjónvarpskonan
betur en keppinautar hennar, sem
eru m.a. fréttaskýringaþættirnir „60
Minutes“ og „Dateline“.
Viðtali Barböru við Hillary Clint-
on verður sjónvarpað á sunnudaginn
í Bandaríkjunum. ■
HILLARY CLINTON
Hefur líklegast frá mörgu að segja frá tíma sínum undir þaki Hvíta hússins.
Barbara Walters:
Fær einkaviðtal við
Hillary Clinton
Hótel á miklu athafnasvæði færi!
Af sérstökum ástæðum býðst
rótgróið hótel nánast í túnfæti
álversframkvæmda á Austurlandi.
Álversframkvæmdum fylgja mikil
umsvif sem kalla á mikla þörf fyrir
gistiaðstöðu, veitingastað og bar.
Þetta er til staðar hér.
Um er að ræða 7 ágætlega búin
tveggja manna herbergi, veitingasal
og bar.
Hótelið er til afhendingar strax.
Seljandi skoðar ýmis skipti og
greiðslukjör.
Fjöldi mynda á heimasíðunni
www.fyrirtaekjasala.is
Ásett verð er 15 millj
og áhvílandi eru 8 millj.
Skoðaðu alla söluskrána á heimasíðunni
www.fyirtaekjasala.is
Síðumúla 15 Sími: 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
Löggiltur fasteigna-
og fyrirtækjasali.
R-275. Þessi glæsivagn, Mercury Monarch, árg. ‘76, er til sölu.
Bílinn er sem nýr úr kassanum, fjögurra dyra, átta cyl.,
sjálfskiptur, grænsanseraður, ekinn 70 þús.
Bíllinn er til sýnis hjá Ingvari Helgasyni, Sævarhöfða 2.
Nánari upplýsingar í síma 864 3470. Verð kr. 390.000
Glæsivagn