Fréttablaðið - 20.09.2003, Page 11
LAUGARDAGUR 20. september 2003
debenhams
S M Á R A L I N D
n‡tt Merki
um karlmennsku
Herradeild Debenhams - merkilegri en nokkru sinni
fyrr. Me›al vinsælla merkja eru S.Oliver, Mexx og
Esprit. Komdu.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
21
20
09
/2
00
3
Verkalýðsmálin á Kárahnjúka-svæðinu hafa sannað það sem
ég hef skrifað um Framsóknar-
flokkinn. Að hann sé dulbúinn
hræsnari og að mikill meirihluti
þjóðarinnar vilji ekkert með hann
hafa. Það hefur sýnt sig að Sjálf-
stæðisflokkurinn gengur ekki
heill til skógar.
Hann kemst ekkert
án hækju og velur
þá sem hentar best.
Að enn skuli nógu
margir hafa trú á
Framsóknarflokkn-
um til að fleyta
honum á þing, á
ekki að geta gengið
upp. Sætta menn
sig við ósannindi
flokksins um fólk í
fyrirrúmi og að
taka upp hanskann fyrir útlent
stórfyrirtæki gegn starfsfólki
þess? Allir vita að atvinnu- og fé-
lagsmálin eru í höndum Fram-
sóknar, sem lætur sem hún sjái
ekki hvað Impregilo og undir-
verktakar þess aðhafast.
Ég trúi ekki að íslenska þjóðin
líði að Landsvirkjun, Impregilo og
Samtök atvinnulífsins komist upp
með að eyðileggja áratuga baráttu
verkalýðs á Íslandi. Löngu er ljóst
að Samtök atvinnulífsins eru
fjandsamleg verkafólki, en ekki
hvarflaði að mér að þau mundu
reyna að grafa undan samtökum
þess til að lækka útgjöld útlends
gróðafyrirtækis. Þjónkun þessa
hagsmunahóps atvinnurekenda
við Impregilo er í hróplegu ósam-
ræmi við þjóðarhagsmuni. Gráð-
ugar valdablokkir hliðhollar ríkis-
valdinu vilja veikja verkalýðsfé-
lögin sem mest og það er ekki
heiglum hent að verjast slíku of-
urefli. Vitað er að formenn verka-
lýðsfélaga hafa það gott og það
flögrar að mér að margir þeirra
eigi það ekki skilið.
Réttur sóttur í húmi nætur
Það er óþolandi að erlendir
starfsmenn Impregilo þurfi að
læðast um eftir að dimma tekur til
að ræða við fulltrúa verkalýðsfé-
laga um sjálfsagðan rétt sinn. Þeir
hræðast mafíutakta Impregilo sem
minna ónotalega á hvernig mafían
kemur sínum mönnum í lykilstöð-
ur til að kúga og drottna yfir
verkalýðfélögum. Vitað er að und-
irverktakar Impregilo reka þá út-
lendu starfsmenn sína sem skrifa
ekki undir samning um að þeir hafi
260.000 krónur á mánuði í stað
100.000 króna. Orlof og annað slíkt
er ekki greitt. Lygar Impregilo um
laun starfsfólks og öryggis- og
húsnæðismál verja Framsókn og
Landsvirkjun kinnroðalaust.
Bomba tveggja kosninga, fólk í
fyrirrúmi, er nú í venjubundnum
dvala. Landsvirkjun sýnir sitt
rétta andlit á hálendinu með því að
þvo hendur sínar af vondum mál-
um eins og Pontíus Pílatus forðum.
Þar eru hagsmunir starfsfólks og
þjóðar ekki í fyrirrúmi. Það hafa
verið færð rök fyrir þessu og nú
blasa Kárahnjúkasvikamálin við
allra augum.
Verslun með fólk
Verkalýðurinn á ekki margra
kosta völ þarna á hálendinu ef
stjórnvöld eru verktökum hliðholl-
ari. Það er sorglegt að íslenskur
stjórnmálaflokkur skuli draga
taum umhverfis- og verkalýðs-
fjandsamlegs stórfyrirtækis sem
hefur áunnið sér óorð og andúð
margra vanþróaðra landa. Vond
mál fylgja nú þegar í kjölfar
Impregilo, þessa óviðkunnalega
verktaka sem getur undirboðið
önnur fyrirtæki með því að níðast
á starfsfólkinu. Góðir Íslendingar
hugsið, þeir leigja verkafólk af
leigum sem versla með fólk. Verð-
ur ykkur virkilega ekki flökurt?
Afætukostnaðurinn færir starfs-
fólkið á þrælakjör. Að gera út á
fólk með þessum eða öðrum ógeð-
felldum og ómannúðlegum hætti
er engri þjóð samboðið sem kall-
ast vill siðmenntuð. Verslun með
fólk, það minnir á fyrstu aldirnar
þegar fátækt gat leitt til þrælkun-
ar og fólk var tekið upp í skuldir. Í
skjóli stjórnvalda og Landsvirkj-
unar er Impregilo með fólk á
þrælakjörum. Í mínum huga er
engin munur á þrælmennsku, það
er þrælahaldi, og kúgun Impregilo
á erlendu starfsliði sínu. Impreg-
ilo er fyrirlitlegt verktakafyrir-
tæki sem ógnar góðum mannleg-
um samskiptum og traðkar á um-
hverfinu hvar sem færi gefst.
Undarleg ummæli iðnaðar-
ráðherra
Í Fréttablaðinu 13. september
lýsir iðnaðarráðherra því yfir að
ekkert sé óeðlilegt við gang mála
á Kárahnjúkasvæðinu, bara smá-
vægilegir byrjunarörðugleikar.
Það er með ólíkindum að ráðherr-
ann skuli láta hafa annað eins eft-
ir sér, en svo er fleiri ráðherrum
Framsóknar farið. Upplýst er að
verktakar hafa dregið til sín
meirihluta þeirra launa sem þeim
ber að greiða erlenda starfsfólk-
inu. Fyrirtækið hundsar íslensk
lög og virðist ætla að komast upp
með það. Ástæðurnar eru margar
fyrir því hjá Impregilo að ráða
sem fæsta landa vora. Íslendingar
mega aldrei sofna á verðinum
gagnvart gráðugum auðsöfnur-
um. Á hálendinu sýnir Impregilo
að þrælahald er næsti bær við. ■
Umræðan
ALBERT
JENSEN
■
skrifar um starfs-
mannamál á
Kárahnjúkasvæðinu.■
Það er óþolandi
að erlendir
starfsmenn
Impregilo þurfi
að læðast um
eftir að dimma
tekur til að
ræða við full-
trúa verkalýðs-
félaga um sjálf-
sagðan rétt
sinn.
Þrífst Impregilo
á þrælmennsku?