Fréttablaðið - 20.09.2003, Qupperneq 12
Ég ætla að taka upp kartöflursem eru feikilega vel
sprottnar eftir sumarið,“ segir
Finnbogi Hermannsson, frétta-
maður Útvarps á Ísafirði.
Finnbogi segir að auk kart-
öfluupptökunnar ætli hann að
reyna að mála húskofann sinn
eins og hann nefnir hann. „Ég
hef reynt að halda mér að verki
en haft lítinn tíma. Hér á Ísa-
firði hefur verið svo mikið að
gerast að lítill tími hefur gefist
til að ljúka því verki. Tvær síð-
ustu helgar í ágúst var ég á eft-
ir Hrefnu Konna um allan sjó,
allt norður í Húnaflóa. Fréttir af
fjórðungsþingi í Reykjanesi
þurfti að færa landsmönnum að
ógleymdum fundinum um línu-
ívilnun. Þannig að af þessu geta
menn séð að nóg er um að vera á
Vestfjörðum,“ segir Finnbogi.
Í Ísafirði hefur verið ein-
munablíða í allt sumar. Allt hef-
ur sprottið þar sem sprottið get-
ur og ferðamenn verið fleiri en
nokkru sinni fyrr. Finnbogi seg-
ir veturinn leggjast vel í fólk,
síðustu átta ár hafi menn ekki
fundið fyrir vetri svo neinu
nemi. „Eftir svona sumar er
maður líka sáttari við veturinn,“
segir hann.
Finnbogi hefur að undan-
förnu unnið að bók um Steinólf
Lárusson í Fagradal á Skarð-
strönd sem mörgum er kunnur.
„Ég er orðinn hálfgerður Stein-
ólfur,“ segir hann sposkur og
bætir við að hann hafi kynnst
Steinólfi fyrir þrettán árum
þegar hann tók við hann út-
varpsviðtal. „Einn góðan veður-
dag löngu síðar bað hann mig að
skrifa ævisögu sína en sagan er
miklu meira en það, hún er
menningarsaga og atvinnusaga
Skarðstrandarinnar. Einræður
Steinólfs bónda heitir hún og ég
ætla að reyna að fara yfir hana á
laugardag og fínpússa lítillega á
milli þess sem ég mála og tek
upp kartöflurnar. Ætli konan
slái ekki í pönnukökur og bjóði
upp á kaffi en hún er mikil af-
mæliskona og man alla afmælis-
daga,“ segir Finnbogi Her-
mannsson, sem smakkar fátt
gómsætara en pönnukökur. ■
Ég fer alltaf á barinn á laugar-dagskvöldum og hitti vinina.
Bar 11 er minn Staupasteinn. Þar
læt ég 100 kall í glymskrattann,
fæ mér bjór og skot og svo er
aldrei að vita hvað gerist,“ segir
rokkarinn Krummi í Mínus.
„Barmenningin hér á landi er
að skána að mínu mati. Fyrir
nokkrum árum var bara hægt að
fara á staði sem spiluðu house en
nú eru komnir nokkrir rokk og ról
barir í anda mótorhjólapöbbanna í
Bandaríkjunum. Það er mjög gott
fyrir minn vinahóp.“
Krummi hefur alltaf verið upp
á sitt besta á laugardagskvöldum.
„Þegar ég var lítill gekk allt út á
að fá að vera úti sem lengst og þá
var verið að njósna og gera prakk-
arastrik en á unglingsárunum var
bara farið í partí. Þar var drukk-
inn landi og reynt við stelpur og
síðan stálumst við alltaf í nætur-
sund á Seltjarnarnesi.“
Krummi gefur ekki mikið út á
rólegheit um helgar: „Það kemur
stundum fyrir að ég sleppi úr
helgi. Þá hangi ég heima og horfi
á sjónvarpið eða fer í stúdíó til að
taka upp tónlist eða æfa. Einhvern
tíma í framtíðinni mun ég kannski
vera heima með kærustunni að
horfa á vídeó um helgar og þá get-
um við pantað pitsu. En það verð-
ur líklega ekki fyrr en maður er
búinn að taka út allan djammkvót-
ann.“
Aðspurður um áformin um
helgina segir Krummi: „Mínus
spilaði á Grand Rokk í gærkvöldi
og það var mikið stuð. Í kvöld
ætla ég að kíkja á barinn og fara á
útgáfutónleikana hans Barða í
Bang Gang í Hafnarhúsinu.“
Það er greinilegt að Krummi
lætur sér ekki leiðast á laugar-
dagskvöldum: „Ég elska partí og
hef alltaf verið þannig. Það er
mikill gleðskapur sem er í kring-
um það að vera í rokkhljómsveit.
Það er líka voðalega lítið annað
hægt að gera á Íslandi en að kíkja
út og detta í það.“
thora@frettabladid.is
12 20. september 2003 LAUGARDAGUR
■ Afmæli
■ Andlát
■ Jarðarfarir
Þennan dag árið 1946 hófstfyrsta kvikmyndahátíðin í
borginni Cannes í Frakklandi, sem
upphaflega átti reyndar að hefjast
í september árið 1939. Seinni
heimsstyrjöldin frestaði þeim
áformum um sjö ár.
Fyrsta árlega kvikmyndahátíð-
in fór af stað í Feneyjum á Ítalíu
árið 1932. Þegar leið að lokum
fjórða áratugarins var hún orðin
að áróðurshátíð fyrir Hitler og
Mussolini, og þess vegna ákváðu
Frakkar að skipuleggja sína eigin
kvikmyndahátíð til mótvægis við
Feneyjaáróðurinn.
Í ágúst árið 1939 var búið að
velja myndir á hátíðina og stjörn-
urnar voru farnar að streyma til
Cannes. Meðal annars átti að sýna
bandarísku myndina Galdrakarl-
inn í Oz.
Daginn sem herlegheitin áttu
að hefjast, þann 1. september, réð-
ust Þjóðverjar inn í Pólland. Há-
tíðinni var aflýst, en þó var búið
að sýna eina mynd, Kroppinbak-
inn í Notre Dame, sem William
Dieterle leikstýrði.
Þegar heimsstyrjöldinni lauk
var fljótlega farið að hefjast
handa við að taka þráðinn upp að
nýju. Á fyrstu Cannes-hátíðinni
voru sýndar myndir á borð við
Opna borg Ítalans Roberto
Rossellini og The Lost Weekend
eftir Billy Wilder. ■
11.00 Sigurður Þórðarson, Víðihlíð,
Grindavík, verður jarðsunginn frá
Grindavíkurkirkju.
13.30 Margrét Elíasdóttir frá Haugi,
Gaulverjahreppi, verður jarðsung-
in frá Gaulverjabæjarkirkju.
13.30 Guðjón Baldur Valdimarsson,
Hjarðarholti 15, Selfossi, verður
jarðsunginn frá Selfosskirkju.
14.00 Elsa Árnadóttir verður jarðsungin
frá Sauðárkrókskirkju.
14.00 Þórarinn Sveinbjörnsson, Birki-
hlíð, Stokkseyri, verður jarðsungin
frá Eyrarbakkakirkju.
14.00 Aðalbjörg Jóhanna Bergmunds-
dóttir frá Borgarhól, Vestmanna-
eyjum, verður jarðsungin frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum.
Axel A. Kristjánsson, Álagranda 8, lést
mánudaginn 8. september. Útförin fór
fram í kyrrþey.
Sigurberg Þórarinsson, Langagerði 106,
lést fimmtudaginn 18. september.
Jóhanna Stefánsdóttir, Vallargötu 17,
Keflavík, lést miðvikudaginn 17. septem-
ber.
Málfríður Ólína Þorsteinsdóttir, Fram-
nesvegi 17, Keflavík, lést miðvikudaginn
17. september.
Jón Kári Jóhannsson, Norðurgötu 60,
Akureyri, lést sunnudaginn 7. september.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Afmæli
FINNBOGI HERMANNSSON
■ ætlar að taka upp kartöflur og mála
húsið sitt. Hann vonar að konan baki
afmælispönnukökur og gleymist ekki við
útiverkin.
Er orðinn hálfgerður Steinólfur
Laugardagskvöld
KRUMMI BJÖRGVINS
■ Hefur alltaf elskað partí og á enn nóg
eftir af djammkvótanum.
SOPHIA LOREN
Ítalska þokkagyðjan Sophia Loren á eftir
eitt ár í sjötugt. Hún verður 69 ára í dag.
Síðast lék hún í ítölsku myndinni Cuori
estranei, eða Milli ókunnugra, sem var
frumsýnd í fyrra.
20. september
■ Þetta gerðist
1519 hélt portúgalski landkönnuður-
inn Magellan af stað í reisu sína
frá Spáni til Indónesíu.
1565 kom til bardaga í fyrsta sinn inn-
byrðis milli Evrópumanna í Vest-
urheimi þegar spænskt herlið
hertók byggð franskra húgenotta
í Fort Caroline, sem stóð þar
sem nú er Flórída.
1870 náðu ítalskar hersveitir valdi yfir
páfaríkjunum, sem leiddi til sam-
einingar Ítalíu í eitt ríki.
1925 var vinsælasta bíómynd Harolds
Lloyds, The Freshman, frumsýnd.
1963 lagði John F. Kennedy Banda-
ríkjaforseti til í ræðu sem hann
flutti á allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna að Rússar og
Bandaríkjamenn ynnu saman að
því að koma mönnuðu geimfari
til tunglsins.
Frestað vegna heimsstyrjaldar
CANNES
■ Kvikmyndahátíðin í Cannes var haldin
í fyrsta sinn árið 1946.
20. september
1946
Læt alltaf 100 kall í
glymskrattann um helgar
KRUMMI
Hlustar á rokk í glymskrattanum á bar 11 um helgar.
FINNBOGI HERMANNSSON
FRÉTTAMAÐUR
Hann er sextíu og eins árs í dag en á milli
þess sem hann málar og tekur upp kartöfl-
ur ætlar hann að fínpússa Steinólf bónda
frá Fagradal.
Vilhjálmur Hjálmarsson, Brekku, fyrrv.
menntamálaráðherra, er 89 ára.
Edda Borg Ólafsdóttir tónlistarkennari
er 37 ára.
Halldóra Björk Friðjónsdóttir leiklistar-
gagnrýnandi er 29 ára.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
■ Tilkynningar
Fréttablaðið býður lesendum aðsenda inn tilkynningar um
dánarfregnir, jarðarfarir, afmæli
eða aðra stórviðburði. Tekið er á
móti tilkynningum á tölvupóst-
fangið:
tilkynningar@frettabladid.is.
Athugið að upplýsingar þurfa að
vera ítarlegar og helst tæmandi.
Ljósafoss-
laug opnuð
Starfsmenn Byrgisins hafa unn-ið að því í sumar að gera upp
Ljósafosslaug. Nú er því verki lok-
ið og af því tilefni býður Byrgið
öllum íbúum Grímsnes- og Grafn-
ingshrepps ásamt öðrum velunn-
urum að vera viðstaddir opnun
Ljósafosslaugar í dag klukkan 14.
Eftir athöfnina við laugina verður
gestum boðið að kynna sér starf-
semi Byrgisins á Ljósafossi og
mun Guðmundur Jónsson, for-
stöðumaður Byrgisins, kynna þau
meðferðarúrræði sem notuð eru í
Byrginu. Að lokinni kynningu
ávarpar sveitarstjórinn Margrét
Sigurðardóttir gesti og að lokum
klukkan 17 verður gestum boðið
til kvöldverðarhlaðborðs að hætti
kokka Byrgisins. ■