Fréttablaðið - 20.09.2003, Blaðsíða 13
13LAUGARDAGUR 20. september 2003
Við setningu Menntaskólans áAkureyri hvatti nýr skóla-
meistari, Jón Már Héðinsson, til
að kennurum yrðu greidd hærri
grunnlaun. Hann sagði yfir-
vinnu of stóran hluta launa og
því þyrfti að breyta.
„Ég er ekki sammála þeim
sem halda því fram að besta
starfsfólkið hafi horfið úr starfi
vegna launanna. Þeir sem eru
áfram í starfi eru það vegna
brennandi áhuga á starfinu fyrst
og fremst en vilja að sjálfsögðu
fá þokkalega greitt fyrir starfið.
Ég álít að það eigi að hækka
grunnlaun í skólum þannig að
yfirvinna verði ekki svo stór
hluti launa sem raun ber vitni.
Jafnframt á að gera miklar kröf-
ur til starfsfólks skólanna,“ seg-
ir hann.
Jón bendir á að vissulega hafi
laun kennara hækkað á undan-
förnum árum, sem sýni þá
áherslu sem stjórnvöld setja á
menntun og breytt viðhorf sam-
félagsins til kennara.
Jón Már er Vestfirðingur,
fæddur og uppalinn á Patreks-
firði. Hann hugðist leggja fyrir
sig sjómennsku og var staðráð-
inn í að verða skipstjóri en hafði
mikinn áhuga á íslensku og
sögu. Eftir stúdentspróf frá MA
lagði hann stund á þau fög en
bætti við sig uppeldis-og
kennslufræði. „Það gerði ég til
að hafa eitthvað út úr því námi
sem ég hafði lagt fyrir mig mér
til skemmtunar. Það varð aldrei
af því að ég færi í Stýrimanna-
skólann en bræður mínir bættu
fyrir það og lögðu fyrir sig sjó-
mennskuna.“
Jón Már hefur starfað við
Menntaskólann á Akureyri í lið-
lega tuttugu ár bæði sem kenn-
ari og síðustu ár sem aðstoðar-
skólameistari. Fyrir ári síðan
lauk hann MBA-námi frá NPU-
háskólanum í Chicago og hefur
þannig bætt við sig námi í
rekstri og stjórnun.
„Nemendur hafa tekið mér
ákaflega vel, ég get ekki annað
en verið ánægður, en við skóla-
setningu mættu um það bil 600
manns. Skólalífið fer ljúflega af
stað, bæði nemendur og kennar-
ar tilbúnir að takast á við nám
og kennslu,“ segir Jón Már Héð-
insson skólameistari. ■
Tímamót
JÓN MÁR HÉÐINSSON
■ Hann er Vestfirðingur og varð staðráð-
inn í að verða skipstjóri en endaði sem
skólameistari við Menntaskólann á Akur-
eyri.
Vestfirðingur sem settist að á Akureyri
??? Hver?
Leikari.
??? Hvar?
Ég er heima hjá mér að passa drenginn
minn.
??? Hvaðan?
Ég er að mestu leyti alinn upp í Lang-
holtshverfinu.
??? Hvað?
Ég var að debútera í mínu fyrsta hlut-
verki sem atvinnuleikari í Þjóðleikhúsinu
í gærkvöldi. Ég leik pabbastrákinn sem
kemur út úr skápnum og veldur eilitlum
usla á heimilinu þar sem hann er einka-
barn og pabbinn á erfitt með að með-
taka þá staðreynd.
??? Hvernig?
Leikritið er eftir Hávar Sigurjónsson og
er nútímafjölskyldudrama þar sem ást
milli fólks spilar stórt hlutverk.
??? Hvers vegna?
Vegna þess að það kom af sjálfu sér að
verða leikari. Svo er það bara svo
skemmtilegt.
??? Hvenær?
Það var frumsýnt í gærkvöldi en önnur
sýning er í kvöld.
■ Persónan
■ Nýjar bækur
Hugvísindastofnun Háskóla Ís-lands hefur gefið út fyrsta
eintak Ritsins í ár sem að þessu
sinni fjallar um
Áróður í gegnum
m a n n k y n s s ö g -
una. Þau Álfrún
Gunnlaugsdóttir,
Ólafur Páll Jóns-
son, Gauti Krist-
mannsson og
Margrét Jóns-
dóttir skrifa í
bókina hvert með sínum hætti. Í
bókinni eru einnig þýddar ritgerð-
ir heimspekinganna Arthur
Danto, George Dickie og Morris
Weitz. Ritið kemur út þrisvar
sinnum á ári og hægt er að gerast
áskrifandi á skrifstofu Hugvís-
indastofnunnar. ■
JÓN MÁR HÉÐINSSON
Hann stundaði sjálfur nám við MA og
þekkti vel innviði skólans þegar hann réðst
þangað sem kennari fyrir tuttugu árum.
ÍVAR ÖRN SVERRISSON
Hnn var að debútera í Þjóðleikhúsinu í
gærkvöldi í nýju leikriti Hávars Sigurjóns-
sonar.