Fréttablaðið - 20.09.2003, Page 23
LAUGARDAGUR 20. september 2003 23
■ Bókatíðindi
■ Sagt og skrifað
Í ár eru liðin 21 ár síðan hinn ást-sæli leikari og rithöfundur Flosi
Ólafsson lét síðast að sér kveða á
vettvangi íslenskra bókmennta. Þá
kom út bókin Í Kvosinni sem mörg-
um er enn í fersku minni. Á árun-
um þar á undan, á áttunda áratug
síðustu aldar, komu út eftir Flosa
metsölubækurnar Slett úr klaufun-
um (1973), Hneggjað á bókfell
(1974) og Leikið lausum hala
(1975).
Síðustu ár hefur Flosi dvalið á
sveitasetri sínu í Borgarfirði og
fengist við margt, meðal annars við
skriftir og samantekt ritverksins
Ósköpin öll – Sannleikskorn úr sam-
búð sem væntanlegt er í bókaversl-
anir nú fyrir jól. Bókin er glefsur
úr hálfrar aldar sambúðarsögu
heiðurshjónanna Flosa og Lilju á of-
anverðri 20. öld, eins og Flosi man
best, og eru textarnir í ritinu
byggðir á miklu magni heimilda um
þetta athyglisverða lífshlaup frá
því sambúðin hófst og fram á þenn-
an dag. Þetta eru dagbókar-
brot,sneplar, uppköst, minnismiðar
og jafnvel slitur úr prentuðu máli
og allt skrifað í hálfkæringi eins og
höfundar er von og vísa.
Útgefandi er bókaútgáfan
Skrudda. Annar útgefenda, Ívar
Gissurarson, segir bókina eiga
brýnt erindi. „Bókin á brýnt erindi
til allra þeirra sem hyggja á sam-
búð,“ segir hann, „ekki síður en
þeirra sem þegar hafa stofnað til
sambúðar og eru í sambúð, að ekki
sé nú talað um þá fjölmörgu sem
eru að gefast upp og slíta sambúð.
Hjá öllu þessu góða fólki þyrfti
bókin helst að eiga sér samastað á
náttborðinu, í kompaníi við spora-
bækur, guðsorð og annað lesmál
sem stuðlað getur að lífshamingju
almennt.“
Höfundur vill láta þess getið að
hans heitasta ósk er sú að þetta rit
stuðli að því að sem flestir hokri
sem lengst saman – í góðu. ■
NIEMI OG MYNDAVÉLIN
Einn þeirra rithöfunda sem
unnu hug og hjörtu landans á
nýliðinni bókmenntahátíð var
Mikael Niemi, höfundur met-
sölubókarinnar Rokkað í
Vittula. Danska sjónvarpið
sendi sitt fólk til Íslands til þess
meðal annars að taka viðtal við
Mikael Niemi fyrir vinsælan
þátt, Bestseller. Eftir viðtalið,
sem meðal annars var tekið upp
á þakinu á Laugavegi 18, settu
sjónvarpsmenn hljóðnema á
Mikael Niemi og létu hann
ganga um í búðinni, en stóðu
sjálfir með myndavélina uppi á
efri hæð búðarinnar. Þá bar að
tvo sænska ferðamenn sem
svifu á hann og spurðu hvort
hann væri virkilega Mikael
Niemi. Hann játti því fyrst og
spjallaði við fólkið, en benti
þeim svo á myndavélina og
sagði: „Þið hafið lent í þættinum
Falin myndavél.“
GÓÐ SALA Á BÓKMENNTAHÁTÍÐ
Vel heppnaðri bókmenntahátíð
lauk um síðustu helgi. Áhugi á
hátíðinni var mikill og endur-
speglast greinilega á metsölu-
listum bókabúða Máls og menn-
ingar og Eymundssonar. Á lista
Eymundssonar eru allar tíu
söluhæstu bækurnar eftir rit-
höfunda sem voru gestir á bók-
menntahátíð og níu bækur eftir
þá eru á lista yfir tíu mest
seldu bækurnar í Máli og menn-
ingu.
Barist um
Booker-
verðlaunin
Booker-verðlaunin, virtustubókmenntaverðlaun Breta,
verða afhent um miðjan október.
Sex bækur berjast um verðlaunin.
Þær eru Brick Lane eftir Monica
Ali, Oryx and Crake eftir Margar-
et Atwood, The Good Doctor eftir
Damon Galgut, Notes on a
Scandal eftir Zoe Heller, Aston-
ishing Splashes of Colour eftir
Clare Morrall og Vernon God
Little eftir DBC Pierre. Verðlaun-
in eru 50.000 pund, auk þess sem
aukin sala og umfjöllun um verð-
launabókina er gulltryggð. ■
FLOSI OG LILJA
Flosi hefur síðustu ár dvalið að Bergi í Borg-
arfirði ásamt konu sinni Lilju Margeirsdóttur.
Ný bók hans inniheldur glefsur úr hálfrar
aldar sambúðarsögu þeirra hjóna.
Ný bók eftir
Flosa Ólafsson
Ný skáldsaga
Arnaldar
Arnaldur Indriðason er umþessar mundir að leggja
lokahönd á sína sjöundu skáld-
sögu og kemur hún út fyrir jólin
hjá Vöku-
H e l g a f e l l i .
A r n a l d u r
hefur tvö
undanfar in
ár fengið
Glerlykilinn,
N o r r æ n u
glæpasagna-
verðlaunin,
fyrir Grafar-
þögn og Mýr-
ina. Samið
hefur verið
um útgáfu á
verkum hans
í ýmsum Evrópulöndum og hef-
ur Mýrin meðal annars selst í
yfir 100.000 eintökum í Þýska-
landi.
Það kemur aðdáendum Arn-
aldar að líkindum í opna skjöldu
að aðalsöguhetjan úr fyrri verk-
um hans, Erlendur Sveinsson
rannsóknarlögreglumaður, kem-
ur ekki við sögu í nýju bókinni.
Að sögn útgefanda Arnaldar seg-
ir bókin frá ungum lögmanni,
sem situr í gæsluvarðhaldi og
rifjar upp afdrifarík kynni sín af
konu að nafni Bettý. Hún birtist
einn daginn í aðskornum kjól
með litla gullkeðju um ökklann.
Og þegar hún brosti ... ■
ARNALDUR IND-
RIÐASON.
Erlendur lögga er víðs-
fjarri í nýrri bók hans.
Réttindastofa Eddu hefur geng-ið frá samningi um sölu á
Mávahlátri eftir Kristínu Marju
Baldursdóttur til forlagsins
Signature í Hollandi. Áður hefur
útgáfurétturinn verið seldur til
Danmerkur og Þýskalands þar
sem bókin fékk góðar viðtökur.
Meðal annars var sagan sögð
„stórkostleg“, „bráðskemmtileg“
og „heillandi“. Signature í
Hollandi leggur ekki síst áherslu
á að gefa út vandaðar skáldsögur
frá Norðurlöndunum og má þar
nefna verk höfunda á borð við
Jostein Gaarder, höfund Veraldar
Soffíu. Mávahlátur kom upphaf-
lega út hjá Máli og menningu árið
1995.
Barnabækur til Taílands
Réttindastofa Eddu hefur
einnig gengið frá samningum
um útgáfu á þremur íslenskum
barnabókum í Taílandi og komu
þær nýverið þar á markað. Þetta
eru Sagan af bláa hnettinum eft-
ir Andra Snæ Magnason, Peð á
plánetunni jörð eftir Olgu Guð-
rúnu Árnadóttur og Leikur á
borði eftir Ragnheiði Gestsdótt-
ur. Bækurnar komu út hjá Image
Publishing í samstarfi við
Dhamrongchaitaham Founda-
tion. Eru bækurnar til sölu á al-
mennum markaði en fleiri þús-
undum gjafaeintaka hefur að
auki verið dreift í taílenska
skóla. ■
ANDRI SNÆR MAGNASON
Sagan af bláa hnettinum er komin
út á taílensku.
Íslensk skáldverk til Hollands og Taílands
KRISTÍN MARJA BALDURSDÓTTIR
Mávahlátur kemur út í Hollandi. Hún er þegar komin út í Þýskalandi og Danmörku og
hefur hlotið góðar viðtökur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
R
A