Fréttablaðið - 20.09.2003, Síða 35
LAUGARDAGUR 20. september 2003 35
Gunnar
Tónn Gu
nnarsson
Kt.: 021
070-000
9
FÉLAG
SSKÍRT
EINI ST
ARFSÁ
RIÐ 20
03-200
4
og sérstök vildarkjör!
Ný félagsskírteini
Félagsmenn í Vinafélagi Íslensku óperunnar fá
• 10% afslátt af miðum á óperusýningar
Íslensku óperunnar
• 15% afslátt af miðum á óperutónleika og
minni uppfærslur Íslensku óperunnar
• 25% afslátt af miðum á hádegistónleika
Íslensku óperunnar
• 10% afslátt af þátttökugjaldi á óperu-
námskeiðum Vinafélagsins og
Endurmenntunar HÍ
• áskrift að Óperublaðinu
• 15% afslátt af vörum (geisladiskum,
dvd-diskum og myndböndum) í 12 Tónum,
Skólavörðustíg 15
• 15% afslátt af klassískri tónlist (á geisla-
diskum, dvd-diskum og myndböndum)
í Skífunni, Laugavegi 26
gegn framvísun félagsskírteinis
Skuldlausir félagsmenn fá nýju skírteinin
send fyrir 10. október.
Skráning nýrra félaga stendur yfir.
Sími: 511 6400
Netfang: vinafelag@opera.is
Upplýsingar um fjölbreytta dagskrá
Óperunnar er að finna á Óperuvefnum:
www.opera.is
Það er búið að byggja heljarinnarkofa hérna uppi á þaki,“ segir
Erling T.V. Klingenberg, annar sýn-
ingarstjóra Grasrótar 2003 í Ný-
listasafninu. „Magnús Árnason er
þar með óhugnanlega skepnu sem
mér skilst að hafi fyrst sést í Vínar-
borg. Hún fylgdi honum svo hingað
til lands.“
Magnús er einn þrettán ungra
myndlistarmanna sem sýna verk
sín á Grasrót 2003. Þetta er í fjórða
sýningin á jafnmörgum árum sem
ber þetta heiti.
Grasrótarsýningar Nýlistasafns-
ins hafa orðið einn helsti vettvangur
ungra myndlistarmanna til þess að
koma verkum sínum á framfæri.
Meðal sýnenda er einnig Birgir
Örn Thoroddsen, öðru nafni Bibbi
Curver, sem mætir með fiðlufjöl-
skylduna sína.
„Þetta verk hans er tónverk og
fjölskylduportrett í senn,“ segir Er-
ling.
Bibbi fékk fjölskyldu sína til
þess að spila á hljóðfæri. Hver fjöl-
skyldumeðlimur fékk hljóðfæri við
hæfi, en öll hljóðfærin eru úr fiðlu-
fjölskyldunni. Þannig fékk pabbinn
kontrabassa, mamman selló og síð-
an eru börnin þrjú með lágfiðlu,
fiðlu og sópranfiðlu,
„Það er svolítið gaman að sjá
hvernig valdastrúktúrinn í fjöl-
skyldunni kemur í ljós í gegnum
gerð þessa myndverks,“ segir Er-
ling. ■
Yfirlitssýning á verkum Júlíönu
Sveinsdóttur (1889 - 1966) stendur yfir
í Listasafni Íslands. Á sýningunni eru
yfir 100 verk, málverk og vefnaður, sem
varpa ljósi á feril þessa merka brautryðj-
enda íslenskrar myndlistar. Sýningin
stendur til 26. október.
María Guðnadóttir er með mynd-
listarsýningu á Kaffi Expresso í Spöng-
inni Grafarvogi. Sýningin stendur frá til 7.
október.
Bubbi, Guðbjörn Gunnarsson, skúlp-
túristi og Jóhann G. Jóhannsson, mynd-
listar- og tónlistarmaður eru með sam-
sýningu í Húsi málaranna, Eiðistorgi.
Sýningin stendur yfir til 28. september
og er opin fimmtudaga til sunnudags kl.
14-18.
Þrjár einkasýningar eru nú í Lista-
safni Kópavogs-Gerðarsafni. Helgi
Hjaltalín Eyjólfsson er í Austursal með
sýninguna Skraut/Kjöraðstæður þar
sem hann sýnir skúlptur- og ljósmynda-
verk. Sýning Katrínar Þorvaldsdóttur í
vestursal heitir Borðhald/Ef ég segi þér
hver ég er þá gleymir þú hver ég var.
Á neðri hæð safnsins opnar Olga Berg-
mann í samstarfi við stofnun Dr. B sýn-
inguna Náttúrugripasafn. Sýningarnar
standa til 5. október. Safnið er opið alla
daga frá kl. 11.00-17.00 nema mánu-
daga.
Mæja, myndlistarkona, sýnir málverk
sín í Hitaveitu Suðurnesja í Hafnarfirði
en sýningin ber heitið Losti & Þrá. Sýn-
ingin er opin alla virka daga kl. 8-16.
Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Þórey
Rut Jóhannesdóttir sýna á Kjarvals-
stöðum í tengslum við listahátíðina List
án landamæra.
Safn, samtímalistasafn á Laugavegi
37, er opið miðvikudaga til föstudaga frá
kl 14-18 en til 17 laugardaga og sunnu-
daga.
Sýning á verkum myndhöggvarans
Sæmundar Valdimarssonar stendur yfir
á Kjarvalsstöðum.
Sýning Ingu Jónsdóttur stendur yfir í
Ásmundarsal og Gryfju Listasafns ASÍ
við Freyjugötu. Sýninguna nefnir hún
Ryk. Í Arinstofu stendyr yfir sýning á
verkum Kristins Péturssonar og nefnist
hún Töfratákn.
Teikningar sjö til sextán ára barna í
Hafnarfirði og hugmyndir þeirra um
vinabæjarsamstarf Hafnarfjarðar og
Cuxhaven eru sýndar í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar. Sýningin stendur til 6. október.
■ ■ FÉLAGSLÍF
13.00 Samtök iðnaðarins og Félag
blikksmiðjueigenda fyrir Degi iðnaðar-
ins í blikksmiðjum. Opið hús verður til
klukkan 16 í 9 blikksmiðjum á sex
stöðum á landinu. Blikksmiðja Austur-
bæjar ehf. Súðarvogi 6, Reykjavík; Ísloft
blikk- og stálsmiðja ehf. Bíldshöfða 12,
Reykjavík; Funi Blikkás ehf. Dalvegi 28,
Kópavogi; Stjörnublikk ehf. Smiðjuvegi
2, Kópavogi; Blikksmiðja Einars ehf.
Smiðjuvegi 4B, Kópavogi; Blikksmiðja
Guðmundar J.H. Akursbraut 11, Akra-
nesi; Blikk- og tækniþjónustan ehf. Kald-
baksgötu 2, Akureyri; Þ.H. blikk ehf.
Gangheiði 37, Selfossi; Eyjablikk ehf.
Flötum 27, Vestmannaeyjum.
Skrímsli á þakinu
■ MYNDLIST
UNG OG UPPRENNANDI
Grasrót íslenskra myndlistarmanna sýnir verk sín í Nýlistasafninu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
LD
A
LÓ
A