Fréttablaðið - 20.09.2003, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
EIRÍKS JÓNSSONAR
Eineygður
á báðum
www.IKEA.is
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
TUNHEM glerskápur 97x40/H211sm 24.500,-
PJÄTTERYD mynd, Ljúfir draumar 118x78 sm 6.900,-
IKEA PS GULLHOLMEN ruggustóll 3.900,-
SAMTID gólf-/leslampi 2.990,-
ALFHILD FÅGEL púði 50x60 sm 1.990,-
Finndu fimm villur...
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
22
01
4
09
.2
00
3
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
3
Skrýtið hvað litlir hlutir getabreytt miklu. Mætti henni í dyr-
unum og hún sveiflaði göngustafnum
eins og bandarísk klappstýra í stuði.
Með hinni kastaði hún gleraugunum
í loft upp og greip aftur eins og örn
unga á haffleti. Hrópaði upp yfir sig
að aldrei hefði neitt betra hent hana
í lífinu sem þó taldi tæpa átta tugi.
Hún hafði fengið linsur hjá sjón-
tæknifræðingnum í Kringlunni.
VISSI á gott og ég fór inn í hennar
stað. Gleraugun höfðu verið að angra
mig, annað hvort skökk, týnd eða
skítug. Vildi reyna annan kost. Fékk
að vita að 75 prósent af seldum lins-
um í heiminum væru bláar. Sérstak-
lega í spænskumælandi löndum þar
sem flestir eru brúneygir en vilja
vera bláeygir. Skipti mig litlu enda
fáir með blárri augu en ég.
BJÓST svo sem ekki við miklu. Með
mismunandi sjón á augunum og
þurfti því sitt hvorn styrkleikann af
linsum. Sjónfræðingur smeygði lins-
unum undir augnlokin og viti menn.
Hókus pókus! Hægra augað var orð-
ið að smásjá og það vinstra að kíki.
Sá rykkorn svífa úr lofti og lenda á
geitungi á flugi. Stökk fram á gang
og sá þá eftir endilangri Kringlunni.
Þekkti meira að segja verslunar-
stjórann í Herragarðinum í 200
metra fjarlægð. Sá hann kyngja
munnvatni.
ALDREI séð annað eins. Og það
gleraugnalaus. Nú þurfti höfuðið ekki
lengur að fylgja gleraugunum heldur
veruleikanum sjálfum í frjálsu falli.
Veitti mér þann munað að fara koll-
hnís í marmaraslegnu Kringlugólfinu,
tók síðan tvö flikk-flökk og hljóp á
höndum eftir ganginum. Allt án þess
að þurfa að hugsa um gleraugun sem
löngu væru fokin út í veður og vind
við þessar aðstæður og mölbrotin að
auki. Ég gat um frjálst höfuð strokið.
Hreyft mig að vild.
ÞETTA eru svona daglinsur. Á að
setja þær í mig á morgnana og taka
úr á kvöldin. Gerði það fyrsta kvöld-
ið og er enn að reyna að setja þær í
mig aftur. Þegar þetta er skrifað er
ég búinn að vera að reyna í þrjár
klukkustundir og fimmtán mínútur
og ekkert gengur. Finn ekki einu
sinni gleraugun enda sé ég ekki
handa minna skil. Verð líklega að
láta sjúkrabíl keyra mig upp í
Kringlu og láta kalla sjóntæknifræð-
inginn upp. ■