Fréttablaðið - 11.10.2003, Side 10
17. september 2003 MIÐVIKUDAGUR
Ein þeirra óteljandi styrjaldasem háðar hafa verið í heimin-
um hófst þennan dag árið 1899 þar
sem nú er Suður-Afríka. Þar áttust
við Búar og Bretar.
Búar voru afkomendur hol-
lenskra landnema í sunnanverðri
Afríku og bjuggu í nýlendu sem
nefndist Höfðaland. Árið 1806
höfðu Bretar hertekið nýlendu
Búanna, sem fluttu sig um set
nokkru síðar og stofnuðu tvær
aðrar nýlendur, Transvaal og Frí-
ríkið Óraníu.
Bretar og Búar lifðu framan af
í sátt og samlyndi sem nýlendu-
herrar, allt þangað til demantar og
gull fannst í jörðu á nýlendum
Búa.
Stríð braust út árið 1899 og
Bretar tóku við stjórntaumum í
nýlendum Búa strax árið eftir.
Búar héldu þó áfram skæruhern-
aði allt fram til 1902 þegar Bretar
unnu fullnaðarsigur eftir grimmi-
leg átök þar sem Bretar fóru
hreinlega hamförum, brenndu
bæi og söfnuðu konum og börnum
í fangabúðir þar sem tugir þús-
unda týndu lífinu.
Winston Churchill, sem síðar
varð forsætisráðherra Breta, var
stríðsfréttaritari í Búastríðinu.
Annar ungur maður, Mahatma
Gandhi, bar sjúkrabörur fyrir
Breta. ■
VIGDÍS JAKOBSDÓTTIR
FRÆÐSLUDEILD ÞJÓÐLEIKHÚSSINS
Hún hefur safnað upplýsingum um leiklist
og leiklistarsögu á heimasíðu Þjóðleik-
hússins.
??? Hver?
Leikstjóri, leiklistarfræðingur og deildar-
stjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins.
??? Hvar?
Ég er stödd í litlu kompunni minni í
Þjóðleikhúsinu.
??? Hvaðan?
Ég er frá Ísafirði og Höfn í Hornafirði en
alin upp alls staðar annars staðar á
landinu.
??? Hvað?
Við vorum að opna glænýja heimasíðu
sem er heimasíða fræðsludeildar.
??? Hvernig?
Síðan er hugsuð fyrir kennara og nem-
endur á öllum skólastigum og fyrir
áhugasaman almenning.
??? Hvers vegna?
Vegna þess að grundvallarhugsunin á
bak við fræðsludeildina er að leiklistin
fái verðugan sess til jafns við aðrar list-
greinar í þjóðfélaginu.
??? Hvenær?
Síðan var opnuð 7. október. Við hvetjum
alla til að skoða síðuna en slóðin er:
http://fd.leikhusid.is
■ Persónan
Rúm níutíu ár eru síðan Sigurð-ur Demetz Fransson fæddist í
Austurríki en fæðingarstaður
hans sameinaðist Ítalíu eftir 1919.
Liðlega helming þessarar tæplegu
aldar hefur hann búið á Íslandi.
Hann missti konu sína fyrir fjórt-
án árum og hefur búið einn síðan.
„Ég á von á vinum mínum sem
ætla að sjá um afmælisveislu fyr-
ir mig. Ætli það verði ekki 20-30
manns hjá mér og gleðjist með
mér þennan dag,“ segir hann og
reiknar með að hann bjóði upp á
snittur og tertur í tilefni dagsins.
Sigurður Demetz hefur sannar-
lega komið nærri tónlistarlífinu á
Íslandi. Hann hefur ekki tölu á öll-
um þeim sem hann hefur kennt að
syngja en þeir skipta hundruðum.
Enn koma til hans nemendur og
segir hann þá vera fimm sem
komi heim til hans í Skerjafjörð-
inn. Ég verð nú að viðurkenna að
ég er orðinn dálítið gamall en ég
bý einn og það gengur prýðilega.
Matinn fæ ég sendan í hádeginu
og vinir hjálpa mér að sjá um hús-
ið sem er talsvert stórt,“ segir
Sigurður en hann vaknar snemma
á morgnanna og snýr sér gjarnan
upp í horn aftur og lúrir dálítið
lengur. Enda tíminn nægur.
Í fyrra sumar fór hann til Ítal-
íu og heimsótti æskuslóðirnar og
dvaldi í þrjá mánuði. Hann segir
það hafa verið í síðasta sinn. „Nei,
ég fer ekki aftur úr þessu. Það
gekk eigi að síður vel, fékk hjóla-
stól í flughöfnunum og bróðir
minn tók á móti mér og ók okkur
heim.“
Sigurður Demetz söng sjálfur á
sínum tíma en hefur helgað sig
kennslunni. Hann hefur orð á að
hann hafi ekki almennilega lært
að tala íslensku og þyki það leitt.
„Ég hef kunnað vel við mig hér og
þykir vænt um landið,“ segir Sig-
urður sem leikur á alls oddi þrátt
fyrir að vera á tíræðisaldri. ■
Afmæli
SIGURÐUR DEMETZ FRANSSON
■ Hann er kominn á tíræðisaldur en er
enn nokkuð ern og hress. Hann viður-
kennir þó að hann sé að verða dálítið
gamall.
■ Þetta gerðist
1923 Þrír Bandaríkjamenn reyndu að
ræna járnbrautarlest í Oregon.
Sprengiefnið sem þeir notuðu var
hins vegar svo öflugt að póstvagn
lestarinnar sprakk í tætlur, svo
engin verðmæti voru eftir til þess
að ræna. Þeir náðust skömmu
síðar.
1986 Ronald Reagan og Mikhaíl Gor-
batsjev hittust í Reykjavík til fram-
haldsviðræðna um skammdræg
flugskeyti í Evrópu. Viðræðurnar
fóru út um þúfur, en þóttu engu
að síður mikilvægur áfangi í áttina
að betri samskiptum Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna.
ÞRJÁR KYNSLÓÐIR BÚA
Stríð milli Breta og hollenskra Búa í Afríku
braust út árið 1899.
Grimmileg styrjöld
BÚASTRÍÐIÐ
■ Bretar fóru hamförum í Búastríðinu
1899-1902, brenndu bæi og settu fólk í
einangrunarbúðir þar sem tugir þúsunda
týndu lífinu.
11. október
1899
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA,
ÞJÓNUSTA
OG RÁÐGJÖF
- OPIÐ HÚS
VÍÐSVEGAR
Í BÆNUM
Kynningarrit dagsins fylgdi Fréttablaðinu
í gær, föstudag, inn á um 70 þúsund heimili
á höfuðborgarsvæðinu. Einnig eru nánari
upplýsingar á vefnum Meistarinn.is.
LJÚFFENGT
KAFFI Á
KÖNNUNNI
OG EITTHVAÐ
ÍSLENSKT OG
GOTT FYRIR
BÖRNIN
Á Degi byggingariðnaðarins í Hafnarfirði
í dag, laugardaginn 11. október:
Sýning, kynningar
og opið hús víðsvegar
í bænum!
MÓTTAKA
GESTA
OG SÝNING
Í SAMKOMUSAL
HAUKA AÐ
ÁSVÖLLUM
OPIÐ HÚS
Á VÖLLUM
Verið velkomin
■ Jarðarfarir
14.00 Baldur Einarsson Steinholti, Eski-
firði, verður jarðsunginn frá Eski-
fjarðarkirkju.
14.00 Sigríður Stefánsdóttir, frá Geit-
hálsi í Vestmannaeyjum, verður
jarðsunginn frá Landakirkju.
14.00 Björg Ólöf Helgadóttir Mýrargötu
18, Neskaupstað, verður jarðsung-
in frá Norðfjarðarkirkju.
14.00 Þ. Ragnar Jónasson Hlíðarvegi
27, Siglufirði, verður jarðsunginn
frá Siglufjarðarkirkju.
14.00 Hallfríður Jónsdóttir frá Undra-
landi, verður jarðsungin frá Kolla-
fjarðarneskirkju.
■ Afmæli
Björn Teitsson, fyrrum skólameistari
Menntaskólans á Ísafirði, 62 ára.
Birgir Rafn Jónsson framkvæmdastjóri,
60 ára.
Leifur Hauksson útvarpsmaður, 52 ára.
SIGURÐUR DEMETZ
Þeir skipta hundruðu nemendur hans í
gegnum árin og enn er hann að.
Er orðinn
dálítið gamall
JOAN CUSACK
Þessi bandaríska leikkona er 41 árs.
■ Erlent afmælisbarn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Ferðadiskótek Sigvalda Búa
finnur réttan tón fyrir teitið þitt.
898 6070