Fréttablaðið - 11.10.2003, Síða 17
LAUGARDAGUR 11. október 2003
taktu
eftir...
debenhams
S M Á R A L I N D
fiú verslar fyrir
10.000 kr. í
dömudeild
og fær›
2.500 kr.
inneign
sem gildir í
herradeild
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
24
95
10
/2
00
3
er þá ótalinn Steingrímur J. sem
státar af prófi í uppeldis- og
kennslufræði. En þetta þýðir, ef
allt væri eðlilegt, að 47.481 at-
vinnubær Íslendingur ætti að hafa
starfað einhvern tíma við kennslu.
Félagar í Kennarasambandi Ís-
lands eru hins vegar ekki nema um
8000.
Sjómenn og bændur
Undirstöðuatvinnuvegurinn má
nokkuð vel við una. Ellefu þing-
menn hafa komið nálægt sjávarút-
vegi. eða 17,5% þingmanna. Hér
eru reyndar taldir með Össur
Skarphéðinsson, Magnús Þór Haf-
steinsson og Árni Mathiesen sem
eru allir með próf í fiskifræðum.
Jóhann Ársælsson er skipasmiður,
Lúðvík Bergvinsson er með skip-
stjórnarréttindi og Margrét Frí-
mannsdóttir var rösk frysti-
húsastelpa á árum áður. Þá fær
Halldór Blöndal að fljóta með en
hann mundaði lensuna í Hvalnum í
gamla daga. Þessir reiknast þó ekki
nema hálfir hver. Einar K. Guð-
finnsson, Einar Oddur Kristjáns-
son, Guðmundur Hallvarðsson og
Gunnar Örn Örlygsson teljast
hæfilega saltstorknir. Samkvæmt
þessu ættu 29.155 manns að starfa
við sjávarútveg á Íslandi með ein-
um eða öðrum hætti. Hér kemst Al-
þingi líklega næst því að endur-
spegla þjóðfélagið. Samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofu Íslands
voru ársverk í sjávarútvegi 27.428
árið 1997.
Þrátt fyrir kjördæmafyrir-
komulagið koma færri úr bænda-
geiranum en þeir eru samt nokkrir:
Drífa Hjartardóttir og Valgerður
Sverrisdóttir teljast bændur, Guðni
Ágústsson er fyrrum mjólkureftir-
litsmaður með próf frá búnaðar-
skóla sem og Jón Bjarnason og
Magnús Þór Hafsteinsson (sem
víða kemur við sögu). Þetta eru
fimm manns, sem er um 8% pró-
sent þingmanna. Samkvæmt því
ættu 13.328 landsmenn að vinna við
landbúnað. Bændasamtökin segja
að bændur landsins séu um 2.400
þannig að þeir mega vel við una.
Og þeir kunna að eiga fleiri hauka í
horni því auk þessara eru einir
fimm sem eru með Samvinnuskóla-
próf, frá því áður en skólanum var
breytt, og Steingrímur J. Sigfússon
hefur þar að auki lýst því yfir að
hugur hans standi mjög til bú-
starfa.
Menntun og fleira
Menn með Samvinnuskólapróf
eru sem sagt fimm og við nánari
skoðun kemur í ljós að MR-ingar á
þingi eru 16! Ef þingheimur ætti
að vera í einhverju samræmi við
þjóðfélagið jafngildir það því að á
Íslandi væru 42.316 atvinnubærra
manna með próf frá MR, eða 25,4
prósent. Og það að sex séu með
stúdentspróf frá MA er einnig á
skjön við allt sem eðlilegt getur
talist í því samhengi sem hér er
lagt til grundvallar, á meðan
Flensborgarar eru aðeins þrír. Og
á þingi sitja 12 sem ekki eru með
stúdentspróf eða sambærilegt
nám að baki. Gera má ráð fyrir
því að þeir sem ekki hafa lokið
stúdentsprófi séu nokkuð fleiri en
31.654 og ættu því að gera kröfu
til þess að eiga fleiri slíka á þingi.
Í raun er hægt að fara miklu
dýpra í saumana á þessu. Ýmsar
stéttir geta með engu móti spegl-
að sig í þingheimi. Þannig eru
engir smiðir á þingi, reyndar
sárafáir iðnaðarmenn, engin skúr-
ingakona, engin húsmóðir og þan-
nig má lengi telja.
Örfáar stéttir utan þeirra sem
hér hafa verið nefndar eiga
reyndar fulltrúa: Tvær fyrrum
flugfreyjur sitja á þingi eða þær
Jóhanna Sigurðardóttir og Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, Stein-
grímur J. er fyrrverandi vörubíl-
stjóri, Dagný Jónsdóttir starfaði
sem au pair, Katrín Júlíusdóttir
starfaði hjá hugbúnaðarhúsi, Kol-
brún Halldórsdóttir er leikstjóri,
Siv Friðleifsdóttir sjúkraþjálfari
og einstaka fleiri sem heita mega
úr „óvæntri“ átt. En niðurstaða
þessarar rannsóknar er sú að
þingheimur sé fremur einsleitur
og ekki í nokkru samhengi við það
hvernig þjóðin er samansett. Með
það að vegaljósi geta ýmsar stétt-
ir heimtað breytingar líkt og
femínistar. Og vilji menn á þing
er best að vera lögfræðimenntað-
ur og hafa starfað sem kennari og
blaðamaður ekki er verra að koma
við í sveitastjórnarmálum.
jakob@frettabladid.is
ALÞINGI ÍSLENDINGA
Ljóst er að Alþingi endurspeglar ekki þjóðina nema síður sé hvað varðar menntun og starfsreynslu. Ef svo væri, byggjum við í þjóðfélagi
með 29 þúsund lögfræðingum, 47 þúsund kennurum og 58 þúsund fjölmiðlamönnum. Athygli vekur, á þessari mynd,
hvað margir þingmenn eru fjarverandi. Auðir stólar endurspegla þó vonandi ekki þjóðina á nokkurn hátt.
Fróðleikur um
Alþingismenn:
25 hafa unnið í opinbera geiranum
22 á fjölmiðlum
18 hafa fengist við kennslu
16 eru MR-ingar
12 eru ekki með stúdentspróf
11 eru lögfræðimenntaðir
11 hafa komið við í sjávarútvegi
5 tengjast landbúnaði
5 eru með Samvinnuskólapróf
3 koma beint af flokksskrifstofunum
2 voru flugfreyjur
1 leikstjóri
1 au pair
Í raun er hægt að
fara miklu dýpra í
saumana á þessu. Ýmsar
stéttir geta með engu móti
speglað sig í þingheimi.
Þannig eru engir smiðir á
þingi, reyndar sárafáir iðn-
aðarmenn, engin skúringa-
kona, engin húsmóðir og
þannig má lengi telja.
,,