Fréttablaðið - 11.10.2003, Side 19

Fréttablaðið - 11.10.2003, Side 19
100 HEPPNIR KAUPENDUR FÁ BÓKINA ÓKEYPIS! Ef þú ert viðskiptavinur Íslandsbanka geturðu keypt nýjustu Harry Potter bókina í forsölu í hraðbönkum Íslandsbanka. Tveimur til þremur dögum fyrir útgáfudag verður bókin svo send heim til þín. Hundrað heppnir kaupendur gætu hitt á töfrastund og fengið bókina endurgreidda. Þess vegna getur borgað sig fyrir aðdáendur Harry Potters að freista gæfunnar. Penninn–Eymundsson keyrir bækurnar út á eftirfarandi svæðum: Höfuðborgarsvæðið (nema Kjalarnes), innanbæjar á Akureyri, Akranesi, Keflavík, Ísafirði og Vestmannaeyjum. Bókin er send með pósti á aðra staði. Í S LANDSBANKI Hvar sem þú ert Freistaðu gæfunnar í hraðbankanum! Forsala á Harry Potter og Fönixreglunni í hraðbönkum Íslandsbanka F í t o n F I 0 0 7 9 7 7 LAUGARDAGUR 11. október 2003 ■ Bókatíðindi SJÓNVARPSMYND UM BYRON Sjónvarpsmynd sem breska sjón- varpið BBC hefur gert um Byron lávarð hefur fengið góða dóma þar í landi. Höfundur handritsins Nick Dear viðurkennir að áður en hann var beðinn um að taka að sér handritsgerð hafi hann svo til ekkert vitað um Byron. Síðan hefur hann ýmislegt lært. Í myndinni gerir Dear þó lítið úr upplýsingum um áhuga Byrons á drengjum en einbeitir sér að kvennamálum hans og þar er sannarlega af nógu að taka. Í myndinni er dreginn upp mynd af ábyrgðarlausu kvennagulli og manni sem var haldinn ástríðu- fullri þörf til að hneyksla fólk. Í hlutverki Byrons er Johnny Lee Miller, fyrrverandi eiginmaður Angelinu Jolie, sem er sagður standa sig með mikilli prýði. Nú er bara að vona að RÚV standi menningarvaktina og taki mynd- ina til sýninga sem fyrst. AFTAKA ÁRSINS? Þess er ekki langt að bíða að fyrstu jólabækurnar komi á mark- að. Búast má við að einhverjir rit- höfundar kvíði dómum en þeir geta huggað sig við að íslenskir gagnrýnendur eru yfirleitt tiltölulega mildir, allavega þegar tekið er mið af hörðustu kol- legum erlendis. Í Bretlandi eru gagnrýnendur til dæmis frægir fyrir að spara ekki stóru orðin þegar þeir lýsa yfir óánægju sinni. Kannski er harð- asti ritdómur ársins þar í landi dómur Tibor Fischers um Yell- ow Dog, skáldsögu Martin Amis. Gagnrýnendur voru yfirleitt ekki hrifnir af bókinni sem þeir sögðu skammarlega léle- ga og spöruðu ekki stóru orðin í yfirlýsingum sín- um. Enginn þeirra gekk þó jafn langt og Fischer, sem er einn at- hyglisverðasti rithöfundur Breta. Fischer sagði í The Daily Tel- egraph að við lestur bókarinnar liði manni eins og eftirlætis fræn- di manns hefði verið gripinn við að fróa sér á leikvelli barnaskól- ans. Ekki er víst að nokkur bresk- ur gagnrýnandi hefði þorað að nota samlíkingu eins og þessa. Það þurfti skáldsagnahöfund til. ÚTSALA Á ENSKUM BÓKUM Stærsta útsala á erlendum kiljum sem haldin hefur verið hér á landi hófst í gær í Bókabúð Máls og menningar í Síðumúla. Þúsundir titla eru í boði og verðið er frá 195 krónum til 995 króna. Aðdáendur Stephen King geta til dæmis feng- ið kiljur eftir sinn mann á aðeins 195 krónur. Þótt kiljur séu þarna fyrirferðar- mestar er fjöldi innbundinna bóka á markaðnum og má þar nefna æviminningar Fay Weldon, Auto Da Fay, sem kosta 695 krónur og skáldsögur eftir John Irving og Ken Follett má finna á sama verði. Ferðabók um Majorca og bók um James Bond eru á 995 krónur en Bond bókin kostaði áður 7000 krónur. Ævisaga Madonnu er einnig á 995 krónur. Innbundnar klassískar bækur kosta einungis 495 krónur og með- al þeirra eru ljóð Emily Dickin- son, Jane Eyre eftir Charlotte Bronte, Sherlock Holmes, og Æv- intýri Stikilsberja Finns eftir Mark Twain. Útsölunni lýkur næstkomandi laugardag. ■ ■ Sagt og skrifað BYRON LÁVARÐUR Ábyrgðar- laust kvennagull í nýrri mynd BBC. Model IS 26 - 3 sæta sófi og tveir stólar Verð áður kr. 249.000 stgr. Sprengi- tilboð aðeins 179.000 stgr. Einnig fáanlegt: 3ja sæta, 2ja sæta og stóll gæða húsgögn Bæjarhrauni 12, Hf., sími 565-1234 Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-16 Glæsileg ítölsk leðursófasett Sprengitilboð 70.000 kr. afsláttur TIBOR FISCHER Slátraði bók Martin Amis. MARTIN AMIS Gagnrýnendur eru ekki hrifnir.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.