Fréttablaðið - 19.10.2003, Síða 12
12 19. október 2003 SUNNUDAGUR
■ Tilkynningar
■ Andlát
■ Afmæli
Þann 19. október árið 1989 voru„fjórmenningarnir frá Guild-
ford“ sýknaðir af öllum sökum eftir
að hafa setið nærri fimmtán ár í
fangelsi.
Rúmlega fimmtán árum fyrr,
þann 5. október árið 1974, sprakk
sprengja á knæpu í bænum Guild-
ford á Englandi. Fjórir fórust. Önn-
ur sprengja sprakk sama dag í
knæpu í bænum Woolwich. Breskir
hermenn höfðu stundað þessar
knæpur.
Írski lýðveldisherinn, IRA, lýsti
yfir ábyrgð á sprengjuárásunum.
Fljótlega bárust böndin að
tveimur norður-írskum smá-
krimmum, þeim Gerry Conlon og
Paul Hill, ásamt flestöllum vinum
þeirra og ættingjum, sem lögregl-
an taldi þátttakendur í allsherjar-
samsæri.
Mennirnir voru beittir miklum
þrýstingi í fangelsi. Á endanum
undirrituðu þeir játningar og árið
eftir voru þeir Conlon og Hill
dæmdir í ævilangt fangelsi ásamt
Paddy Armstrong og Carole Rich-
ardson. Sjö ættingjar þeirra og vin-
ir voru jafnframt dæmdir til styttri
fangelsisvistar.
Sönnunargögn í málinu þóttu þó
veik og árið 1989 komst áfrýjunar-
dómstóll að þeirri niðurstöðu að
ekkert hefði verið hæft í ásökunum
lögreglunnar á hendur þessu fólki.
Fjórmenningarnir voru lýstir
sýknir af öllum sökum og sam-
stundis var þeim hleypt úr fang-
elsi. ■
PING OG PONG
Þessar tvær ungu smápöndur, sem hlutu
nöfnin Ping og Pong, eru helsta aðdráttar-
aflið í dýragarði í bænum Eichberg í Sviss.
Foreldrarnir Ding og Dong eru einnig í
sama dýragarði.
Guðrún Ögmundsdóttir alþingismaður,
53 ára.
Jón Kjell Seljeseth hljómlistarmaður, 49
ára.
Gunnar Jóhann Birgisson lögmaður, 43
ára.
Dúi Landmark kvikmyndagerðarmaður,
38 ára.
Hanna Kristín Didriksen snyrtifræðing-
ur, 35 ára.
Fyrsti maðurinn hringdi klukkanhálfátta um morguninn og ég
var búinn að selja bílinn hálftíma
síðar,“ segir Þorsteinn Pálmason,
sem auglýsti bílinn sinn til sölu í
Fréttablaðinu í vikunni.
Hann pantaði tvær birtingar en
hringdi fyrir hádegi og afpantaði
þá síðari því hann hafði ekki frið
fyrir símanum. „Hann hélt áfram
að hringja langt fram eftir kvöldi
og mér var nóg boðið daginn eftir
þegar hann þagnaði ekki. Fólk
hringdi hvaðanæva af landinu og
það sýnir að blaðið fer um allt
land,“ segir Þorsteinn.
Bíllinn sem Þorsteinn auglýsti
og seldi svona skjótt er Toyota Hi-
Lux árgerð 1993. Hann segir að
bílarnir séu vinsælir og hann hafi
átt von á að selja hann en bjóst
ekki við þessum ósköpum. „Ég
setti á hann 350 þúsund staðgreitt
og fékk það. Þeir mættu tveir á
sama tíma og það voru heillangar
umræður um hvor þeirra ætti að
taka bílinn. Vafalaust hefði ég get-
að sett meira á hann en það hefði
þá kostað meiri vinnu. Þrátt fyrir
það fékk ég mun meira en umboð-
ið vildi greiða mér fyrir hann.“ ■
Tímamót
ÞORSTEINN PÁLMASON
■ seldi bílinn sinn á hálftíma og var
orðin þreyttur á endalausum
hringingum í marga daga.
Seldi bílinn á hálftíma
Ég var fertug í fyrra og hélt þáupp á afmælið mitt með mikl-
um bravúr. Tók Iðnó á leigu og
bauð hundrað og fimmtíu manns,“
segir Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir,
sem í dag hefur bætt við sig einu
árinu til.
Jóhanna Vigdís segir veisluna í
fyrra hafa verið mjög skemmti-
lega og hún lifi á henni enn um
sinn. „Það kom ekkert annað til
greina en að hafa afmælisveisluna
í Iðnó við Reykjavíkurtjörn. Ég er
algjört miðborgarbarn og ég bauð
öllum vinum og vinnufélögum og
auðvitað ættingjum,“ segir hún og
bætir við að yngsta barnið hennar
hafi orðið tveggja ára í vikunni og
allt eins geti verið að hún geri eitt-
hvað fyrir það. „Eigi að síður von-
ast ég til að mér verði boðið út að
borða um kvöldið. Ég legg það eig-
inlega til,“ segir Jóhanna Vigdís og
hlær. Bætir svo við að skemmtileg-
ast af öllu finnist henni að elda
matinn sjálf en af og til sé eigi að
síður notalegt að fara og sjá hvað
veitingahúsin bjóði upp á og láta
stjana ögn við sig.
Jóhanna er mikil matkráka og
hefur yndi af að elda og stússast í
eldhúsinu. Hún á þrjú börn en það
elsta er 20 ára stúlka sem er að
hefja nám í lögfræði og var lengi
vel eina barnið. Hún var fimmtán
ára þegar Jóhanna Vigdís eignað-
ist dreng og annan þremur árum
síðar en í gamni segja þau gjarn-
an að Knold og Tot hafi þá bankað
upp á. „Mínar notalegustu stundir
eru að elda eitthvað gott með alla
fjölskylduna nærri og horfa frétt-
ir í sjónvarpi. Verst finnst mér að
hafa fréttatímana á sjónvarps-
stöðvunum á sama tíma það er svo
erfitt að flækjast á milli stöðva og
reyna að ná öllu sem maður hefur
áhuga á,“ segir hún.
Fjölskyldan skiptir Jóhönnu
Vigdísi miklu máli og áhugamálin
tengjast henni fyrst og fremst.
„Ég les, fer á skíði og þjálfa lík-
ama og sál. Góður göngutúr á
Ægisíðunni er á við vítamíns-
sprautu,“ segir Jóhanna Vigdís,
sem vaknar fyrir allar aldir til að
koma börnunum í leikskólann og
líta yfir fréttir dagsins. ■
Afmæli
JÓHANNA VIGDÍS HJALTADÓTTIR
■ Hún er fjörutíu og eins árs í dag og
hélt svo fína veislu í fyrra að það er allt
eins víst að hún haldi bara upp á afmæli
yngsta barnsins síns á afmælisdaginn.
JOHN LE CARRÉ
Spennusagnahöfundurinn er 72 ára.
19. október
■ Þetta gerðist
1943 Kínverjar og Súlúkar á Norður-
Borneó gera uppreisn gegn jap-
anska hernámsliðinu.
1950 Hersveitir sem berjast undir
merkjum Sameinuðu þjóðanna
komast inn í Pjongjang, höfuð-
borg Norður-Kóreu.
1951 Truman Bandaríkjaforseti undir-
ritar lög sem formlega binda
enda á stríð Bandaríkjanna við
Þýskaland.
1960 Bandaríkin leggja bann á flestöll
vöruviðskipti við Kúbu.
1987 Verðbréfahrun verður í Banda-
ríkjunum þegar Dow Jones-vísi-
talan hrapar um 22,6 prósent,
sem er meira en nokkru sinni.
1989 Öldungadeild Bandaríkjaþings
hafnar stjórnarskrárbreytingu, sem
hefði bannað hvers kyns vanhelg-
un bandaríska þjóðfánans.
LOKSINS LAUS
■ Fjórir Bretar voru látnir lausir úr fang-
elsi eftir að hafa setið inni í nær fimmtán
ár saklausir af ákærum um sprengjuárás-
ir á knæpur árið 1974.
19. október
1989
Svo bönkuðu
Knold og Tot upp á
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför minnar elskulegu eiginkonu, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
Ásdísar Ragnarsdóttur,
Furugrund 17,
Akranesi.
Hjalti Samúelsson
Bjarni Þór Hjaltason Sigrún Gísladóttir
Sveinbjörn Reyr Hjaltason Guðný Ósk Stefánsdóttir
Hildur Hjaltadóttir Kristján Þór Guðmundsson
og barnabörn.
Sakleysi sannað
ÚR BÍÓMYNDINNI
Pete Postlethwaite og Daniel Day-Lewis í
hlutverkum sínum í bíómyndinni Í nafni
föðurins, sem gerð var um fjórmenningana
frá Guildford.
JÓHANNA VIGDÍS HJALTADÓTTIR
Hún segir það á við vítamínsprautu að ganga Ægisíðuna.
Fréttablaðið býður lesendumað senda inn tilkynningar um
dánarfregnir, jarðarfarir, afmæli
eða aðra stórviðburði. Tekið er á
móti tilkynningum á tövupóst-
fangið tilkynningar@fretta-
bladid.is. Ef óskað er eftir
jarðarfarar- eða andlátsauglýs-
ingu má senda texta í slíkar
auglýsingar á auglysingar-
@frettabladid.is.
AUGLÝSING ÞORSTEINS
Bað um að auglýsingin yrði birt tvisvar en
hringdi klukkan tíu fyrir hádegi og bað um
þeirri seinni yrði kippt út.
Agnes Sigurðardóttir frá Mánaskál and-
aðist miðvikudaginn 15. október.
Björgvin Kristinn Guðjónsson frá Þor-
lákshöfn lést fimmtudaginn 16. október.
Erlendur Magnússon, Austurbrún 2,
lést fimmtudaginn 9. október.
Halldór Alfreðsson, Rauðagerði 35,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 15. októ-
ber.
Hannes G. Tómasson, stýrimaður, dval-
arheimilinu Grund, lést þriðjudaginn 14.
október.
Hannes Þorbergsson, Háeyrarvöllum
48, Eyrarbakka, lést miðvikudaginn 15.
október.
Júlíus Eiríksson, Uppsalavegi 1, Sand-
gerði, lést fimmtudaginn 16. október.
Kristrún Kirrý Halldórsdóttir, ættuð frá
Böðmóðsstöðum í Laugardal, andaðist í
Svíþjóð sunnudaginn 12. október.
Margrét Júlíusdóttir frá Hjöllum í Reyk-
hólasveit lést sunnudaginn 5. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
ÞÓRARINN TYRFINGSSON LÆKNIR
Hann segir að aðalástæða þess að ungt
fólk þurfi að leita sér aðstoðar á Vogi sé
kannabisneysla.
??? Hver?
Þórarinn Tyrfingsson, brennivíns- og
vímuefnaefnalæknirinn.
??? Hvar?
Ég er staddur á Vogi.
??? Hvaðan?
Er alinn upp í Kleppsholtinu í Reykjavík.
??? Hvað?
Margrét Frímannsdóttir alþingismaður
hefur óskað eftir því á Alþingi að rætt
verði hvort leyfa eigi kannabis í lækn-
ingaskyni á Íslandi.
??? Hvernig?
Kannabis, eða maríjúana og hass, sem
talað er um að leyfa hér í lækninga-
skyni, getur aldrei verið lyf. Það skortir
hreinleika því í því finnast yfir þrjú þús-
und efni og efnasamsetningar. Ómögu-
legt er að hafa stjórn á skömmtunum,
það vantar sjúkdóm til að lækna.
Þannig að læknisfræðilega gæti það
aldrei komið í stað lyfja.
??? Hvers vegna?
Pólitískt séð horfir þetta öðru vísi við en
læknisfræðilega. Þetta snýst um það að
fólki sem líður illa vill vera í vímu. Því er
hægt að spyrja hvað mæli gegn þessu.
Ástæðan er sú að þó að við séum full-
orðin og komin með króníska sjúkdóma
ber okkur skylda til að hugsa um börnin
okkar. Aðalástæða þess að ungt fólk
þarf að leita sér aðstoðar á Vogi er
kannabisneysla. Það fer ekki alltaf sam-
an að ræða póltík og læknisfræði í ein-
um hrærigraut.
■ Persónan
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M