Fréttablaðið - 19.10.2003, Qupperneq 31
31SUNNUDAGUR 19. október 2003
HANDBOLTI Stefán Arnarsson, þjálf-
ari A-landsliðs kvenna, hefur valið
sextán manna hóp sem tekur þátt í
Silesia Cup í Póllandi um aðra
helgi. Fimm leikmenn hópsins
koma frá danska félaginu Tvis-
Holstebro og fjórir frá Val.
Íslendingar leika við Tékka,
Slóvaka, Pólverja og Túnisbúa á
mótinu í Póllandi. „Tékkar eru
með mjög sterkt lið sem varð í
áttunda sæti á síðast Evrópumóti,“
sagði Stefán. „Slóvakar eru með
mjög sterkt lið en komust ekki í
lokakeppnina. Þeir töpuðu fyrir
Slóvenum sem er eitt allra sterk-
asta landsliðið núorðið. Haukar
léku við Túnisbúa fyrir tveimur
árum, þegar Haukarnir voru upp á
sitt besta, og töpuðu með fjórum
mörkum.“
Tékkar og Túnisar eru að
undirbúa sig fyrir Heims-
meistaramótið sem fer fram í
Króatíu í desember en mótið í
Póllandi er liður í undirbúningi
Íslendinga fyrir undankeppni
Evrópumótsins í nóvember.
Íslendingar leika í riðli með
Makedóníumönnum, Portúgölum
og Ítölum og verður keppt í
Siracusa á Ítalíu.
Þrjú lið komast áfram úr
riðlinum og telur Stefán Íslendin-
ga eiga ágæta möguleika á að
komast í umspil á næsta ári. ■
Enska 1. deildin:
Forest án
Brynjars
FÓTBOLTI Brynjar Björn Gunnars-
son var ekki í leikmannahópi
Nottingham Forest sem burstaði
Wimbledon 6-0 í ensku 1. deild-
inni í gær. Marlon Harewood
skoraði tvö af mörkum Forest en
hann er markahæstur í deildinni
með ellefu mörk. Andy Reid,
Gareth Taylor, Michael Dawson
og Wes Morgan skoruðu hin
mörkin.
Nottingham Forest er í níunda
sæti með tuttugu stig eftir sigur-
inn en Wimbledon er langneðst
með fjögur stig. Forest leikur við
West Ham á útivelli á miðviku-
dag. ■
Enska 1. deildin:
WBA og
Watford
unnu
FÓTBOLTI Íslendingaliðin Watford
og West Bromwich Albion unnu
leiki sína í ensku 1. deildinni í
gær. Heiðar Helguson og Lárus
Orri Sigurðsson voru sem fyrr
fjarri baráttunni vegna meiðsla.
Watford vann Bradford City
1-0 á heimavelli og skoraði Scott
Fitzgerald markið þegar hálftími
var til leiksloka. Watford byrjaði
leiktíðina illa en er komið í 21.
sæti eftir tvo sigra og tvö jafntefli
í síðustu fjórum leikjum.
WBA vann Norwich 1-0 á
heimavelli með marki frá Jason
Koumas á 35. mínútu. WBA er í
öðru sæti deildarinnar með 28 stig
og er einu stig á eftir toppliði Wig-
an.
Watford leikur við Coventry á
þriðjudag en WBA fær botnlið
Wimbledon í heimsókn. ■
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON
Barnsley er komið í áttunda sæti
2. deildar.
Enska 2. deildin:
Barnsley
vann sigur
á Wycombe
FÓTBOLTI Barnsley vann Wycombe
Wanderers 2-1 á útivelli í ensku
2. deildinni í gær. Isaiah Rankin
skoraði bæði mörk Barnsley í
fyrri hálfleik en Andy Thomson
skoraði mark heimaliðsins í
seinni hálfleik.
Rankin skoraði bæði mörkin
úr frákasti eftir markskot Steve
Carsons. Í fyrra skiptið náði
markvörðurinn ekki að halda
skoti Carsons og boltinn hrökk út
til Rankins en í seinna skiptið
skaut Carson í stöng af um 30
metra færi og datt boltinn fyrir
fætur Rankins.
Barnsley er komið í áttunda
sæti deildarinnar eftir tvo sigra í
röð. Félagið hefur 22 stig en
Brighton er efst með 27 stig.
Barnsley leikur við Peterborough
á þriðjudag en mótherjarnir eru í
fimmta neðsta sæti deildarinnar.
Sigur í þeim leik er mikilvægur
ætli liðið sér að vera í baráttunni
um sex efstu sætin. ■
A-LANDSLIÐ ÍSLANDS
Harpa Melsted úr Haukum er einn leik-
manna liðsins sem keppir á Silesia Cup í
Póllandi.
Búið er að velja 16 manna landsliðshóp kvenna:
Fimm leikmenn
frá Tvis-Holstebro
ÍSLENSKI HÓPURINN:
Markmenn:
Helga Torfadóttir Tvis-Holstebro
Berlind Íris Hansdóttir Valur
Útileikmenn:
Jóna Margrét Ragnarsdóttir Stjarnan
Guðbjörg Guðmarsdóttir ÍBV
Kristín Guðmundsdóttir Tvis-Holstebro
Hrafnhildur Skúladóttir Tvis-Holstebro
Hanna Stefánsdóttir Tvis-Holstebro
Inga Fríða Tryggvadóttir Tvis-Holstebro
Brynja Steinssen Valur
Drífa Skúladóttir Valur
Hafrún Kristjánsdóttir Valur
Hafdís Hinriksdóttir Valur
Harpa Melsted Haukar
Dröfn Sæmundsdóttir FH
Dagný Skúladóttir Lutzellinde
Harpa Vífilsdóttur Ydun
Leikir Íslands á mótinu í Póllandi
24. okt. Ísland - Tékkland
25. okt. Ísland - Slóvakía
25. okt. Ísland - Pólland
26. okt. Ísland - Túnis