Fréttablaðið - 25.10.2003, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 25.10.2003, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar EIRÍKS JÓNSSONAR Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IK E 22 60 5 10 .2 00 3 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 3 395,- Jólin þín byrja í IKEA VÄNTAN skrautkúlur 6 sm /8 stk. 395,- SAMLAS jólakúlur 6 sm /12 stk. 295,- SAMLAS jólakúlur 6 sm /12 stk. 295,- TIARA skrautkúlur 8 sm/2 stk. í pakka. VÄNTAN skrautkúlur 6 sm /8 stk. SAMLAS jólakúlur 2 sm/12 stk. 195,- SAMLAS jólakúlur 6 sm/12 stk. SAMLAS jólakúlur 6 sm /12 stk. 295,- VÄNTAN skrautkúlur 6 sm /8 stk. MINNAS glerkúlur 4 stk. 495,- 395,- 395,- SA LAS jólakúlur 6 sm /12 stk. 295,- SAMLAS jólakúlur 6 sm /12 stk. 295,- 295,- Frægðin www.IKEA.is Sá fólk í menningarþættinumMósaík í sjónvarpinu tala um frægðina. Sálfræðingar og menn- ingarfræðingar voru þarna en áttu það sammerkt að vita ekkert um frægðina. Bara bull. Svipað og hjá Beggu vinkonu minni sem dreymir um að verða fræg. Hún veit ekki frekar en Mósaíkfólkið hvað það í raun þýðir. EINU SINNI var ég ofboðslega frægur. Þegar ég keyrði börnin mín lítil í Vesturbæjarskólann hópuðust nemendurnir um bílinn og við komumst vart leiðar okkur. Eins og Beckham og Victoria með Brooklyn og Rómeó á Rovernum. Mörgum árum seinna sögðu börnin mín mér að þau hefðu haldið að svona væru allir foreldrar. ALGENGT VAR að táningar hlypu á eftir manni á götum úti og hróp- uðu nafn manns líkt og börn í sveit á eftir veghefli. Vart hægt að fara út í sjoppu án þess að heyra undr- unarstunur úr hornum. Eftirsóttur í samkvæmi fína fólksins. Konur rifu yfirleitt af sér fötin í stað þess að heilsa með handabandi. EN ÞETTA hafði líka sína kosti. Til dæmis var óþarfi að greiða reikninga á veitingastöðum. Þótti nánast dónaskapur að reyna það. Föt í tískuverslunum voru ókeypis. Frímiðar til útlanda sjálfsagt mál svona fjórum sinnum á ári. Hótel- og dagpeningar innifaldir. Og mað- ur gerði dýrustu hárgreiðslumeist- urum landsins greiða með því að leyfa þeim að klippa sig. SUMUM KANN að finnast þetta smart en það var af og frá. Með tímanum tærast menn upp í sýnd- arveruleika frægðarinnar þar sem skjallið ferðast með hraða hljóðsins og orð eins og heiður, æra, sómi og vinátta klingja sem kínverska í eyr- um. Óhófið algert við undirleik við- hlæjenda sem standa með bros á vör og rýting í hendi og bíða þess eins að stinga í toppinn til að kom- ast þangað sjálfir. HINS VEGAR má til sanns vegar færa að þeir sem ekki enn hafa baðað sig í frægðarsólinni eigi ým- islegt eftir. Það getur orðið tak- mark í sjálfu sér. En fjári er gott að vera búinn að þessu og geta hégómalaust um frjálst höfuð strokið í lífsins leik sem snýst um allt annað. Að öllu samanlögðu: frægðin er fötlun. ■ *** 590 KR. *** Ný spóla og pakki af Orville poppi á 590 kr. Vídeó Miðjan Hlíðasmára 8, Kópavogi, s:564 3930

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.