Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.10.2003, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 25.10.2003, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 25. október 2003 ■ ■ LEIKIR  14.00 ÍR keppir við Grindavík í Seljaskóla í 1. deild kvenna í körfubolta.  16.00 KR fær Njarðvík í heimsókn í DHL-Höllina í 1. deild kvenna í körfu- bolta.  16.00 ÍR leikur við ÍBV í Austur- bergi í suðurriðli RE/MAX-deildar karla í handbolta.  16.30 Fram mætir KA í Framhús- inu í norðurriðli RE/MAX-deildar karla í handbolta.  16.30 Þór keppir við Aftureldingu í Höllinni Akureyri í norðurriðli RE/MAX- deildar karla í handbolta.  17.15 Keflavík og ÍS keppa í Kefla- vík í 1. deild kvenna í körfubolta. ■ ■ SJÓNVARP  11.15 Enski boltinn á Sýn. Bein út- sending frá leik Bolton Wanderers og Birmingham City.  13.20 Football Week UK (Vikan í enska boltanum) á Stöð 2.  13.25 Þýski fótboltinn á RÚV. Bein útsending frá leik Bayern München og Kaiserslautern.  13.30 Alltaf í boltanum á Sýn.  13.45 Enski boltinn á Stöð 2. Bein útsending frá leik Chelsea og Manchest- er City.  14.00 Trans World Sport (Íþróttir um allan heim) á Sýn.  15.00 Fastrax 2002 (Vélasport) á Sýn. Hraðskreiður þáttur þar sem öku- tæki af öllum stærðum og gerðum koma við sögu.  15.30 Gillette-sportpakkinn á Sýn.  15.30 Handboltakvöld á RÚV.  15.50 Íslandsmótið í handbolta RÚV. Bein útsending frá leik Fram og KA í RE/MAX-deild karla.  16.00 Spænsku mörkin á Sýn.  17.00 Enski boltinn á Sýn. Útsend- ing frá leik Chelsea og Manchester City.  19.00 Þáttur um þýska golfleikar- ann Bernard Langer á Sýn.  19.25 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Deportivo La Coruna og Valencia.  21.35 Hnefaleikar á Sýn. Útsend- ing frá keppni í Berlín þar sem mættust Hector Velasco og Bert Schenk FÓTBOLTI „Leikurinn leggst vel í mig. Ég reikna með að vera í byrj- unarliðinu,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson, leikmaður Úlfanna, sem mætir Leicester í botnslag ensku úrvalsdeildinnar í dag. „Við höfum verið að spila ágætlega að undanförnu en verðum að vinna til að komast á flug. Ef við vinnum erum við í góðum málum.“ Úlfunum gekk erfiðlega til að byrja með en eru taplausir í síð- ustu fjórum viðureignum. Liðið er sem stendur í næst neðsta sæti úr- valsdeildarinnar með sex stig, einu stigi meira en botnlið Leiceister. „Það byrjaði brösulega hjá okkur og við vissum af erfiðum leikjum eins og gegn Chelsea. En okkur hefur gengið vel undanfar- ið og verðum að fylgja því eftir,“ segir Jóhannes Karl. Ívar Ingimarsson var seldur frá Úlfunum til Reading í fyrra- dag og segist Jóhannes Karl eiga eftir að sakna hans. „Ég á eftir að sakna hans sárt. En það var gott fyrir Ívar að kom- ast burt frá Úlfunum því hann var búinn að gefa þeim góðan tíma. Reading er toppklúbbur og Ívari finnst ábyggilega gott að vera kominn aftur til London. Ég óska honum alls hins besta,“ segir Jó- hannes Karl. Eiður Smári Guðjohnsen fær trúlega tækifæri í byrjunarliði Chelsea gegn Manchester City eftir frammistöðu liðsins gegn Lazio í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag. Sparkspekingar eru sammála um að það hafi verið besti leikur Chelsea á leiktíðinni en þá lék íslenski landsliðsfyrir- liðinn í framlínunni ásamt Adrian Mutu. Hernan Crespo lék ekki með vegna meiðsla. Niclas Anelka, franski fram- herjinn í liði City, hefur farið mik- inn á leiktíðinni og er með marka- hæstu mönnum deildarinnar. Heldur er farið að hitna undir Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóra Liverpool. Liðinu hefur ekki gengið sem skyldi á leiktíð- inni og er í ellefta sæti. Harry Kewell verður í sviðsljósinu á An- field þegar Liverpool fær Leeds í heimsókn. Kewell var seldur frá Leeds til Liverpool fyrir þessa leiktíð. ■ Verðum að vinna til að komast á flug Átta leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Jóhannes Karl reiknar með að vera í byrjunarliði Úlfanna. Manchester United mætir Fulham. Eiður Smári trúlega í byrjunarliði Chelsea. LEIKIR DAGSINS: Bolton - Birmingham Liverpool - Leeds United Aston Villa - Everton Chelsea - Man City Man. Utd. - Fulham Newcastle - Portsmouth Southampton - Blackburn Wolves - Leicester City JÓHANNES KARL GUÐJÓNSSON Reiknar með að vera í byrjunarliði Úlfanna í dag þegar liðið mætir Leiceister á heimavelli. hvað?hvar?hvenær? 22 23 24 25 26 27 28 OKTÓBER Laugardagur LYFJAMÁL „Þetta er barátta, en við höfum ekki tapað henni,“ sagði Michelle Verroken hjá UK Sport við fréttavef BBC. „Þeir eru alltaf leita leiða svo ekki komist upp um þá. Ég hef fengið póstkort frá fólki sem segir að ég muni aldrei ná þeim. Margir halda að þeir hafi sigrað og snúið á kerfið en þeir hafa svikið sig sjálfa.“ UK Sport, sem ber ábyrgð á stefnumótun fyr- ir afreksíþróttir á Bretlandi, hefur bæði sérstakt símanúmer og net- fang fyrir þá sem vilja koma á framfæri ábendingum um lyfja- misnotkun. „Það er mjög erfitt að ná for- skoti á svindlarana,“ sagði John Brewer hjá ensku íþróttamiðstöð- inni í Lilleshall. „Íþróttamenn og vafasamir lyfjaráðgjafar þeirra reyna alltaf að halda forskotinu. Íþróttamenn græða á svindlinu með því að ná árangri og lyfjafyr- irtækin græða á því að selja vör- una.“ Alþjóða lyfjaeftirlistsnefnd- in (WADA) reynir að halda í við íþróttamennina með samvinnu við lyfjafyrirtækin. „Við fáum upplýs- ingar um efni áður en þau eru sett á markað og ég trúi því að við get- um sigrað,“ sagði dr. Oliver Rabin hjá WADA. ■ Lyfjamisnotkun: Baráttan er ekki töpuð SIGRI FAGNAÐ Regina Jacobs fagnar sigri í 1.500 metra hlaupi á bandaríska meistaramótinu í sumar. Washington Post segir að hún sé ein þeirra sem hafi neytt steralyfsins THG. TVE IR MÁNUÐ IR Á VERÐ I E INS EKKERT S TOFNGJALD Allir þeir sem gerast áskrifendur að SKJÁTVEIMUR fyrir 1. nóvember fá myndlykil og 2 mánuði í áskrift fyrir aðeins 2.995 kr. eða 2.495 kr. með áskriftarpökkum Símans. www.skjar2.is Tryggðu þér áskrift í síma 800 7474 eða í verslunum Símans.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.