Fréttablaðið - 08.11.2003, Page 4

Fréttablaðið - 08.11.2003, Page 4
4 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR Verður bandarískur her á Íslandi eftir tíu ár? Spurning dagsins í dag: Er framkoma Varnarliðsins eðlileg gagn- vart íslenskum starfsmönnum sem sagt hefur verið upp störfum eða kjörum? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 60,6% 39,4% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is RÚV Afnotagjöld ríkisfjölmiðlanna hækka um 5% frá næstu áramót- um, verða 2.528 kr. á mánuði en eru nú 2.408. Tillaga þess efnis var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinn- ar í gærmorgun. Gjald til ríkisfjölmiðlanna er ákveðið með lögum en mennta- málaráðherra leggur fram tillögur um breytingar á gjaldinu og hefur til hliðsjónar tillögur útvarps- stjóra. Að þessu sinni fór útvarpsstjóri fram á að afnotagjöldin yrðu hækkuð um 22,5% við næstu ára- mót; yrðu 2.950. Í rökstuðningi út- varpsstjóra til ráðherra kom fram að með þessari tillögu ætti að leið- rétta viðvarandi hallarekstur á Rúv auk þess sem hækkunin hefði gert stofnuninni kleift að mæta líf- eyrisskuldbindingum sínum. Afnotagjöldin voru hækkuð um 7% síðustu áramót en þá kom til framkvæmda hækkun sem slegið hafði verið á frest þegar baráttan við „rauðu strikin“ stóð sem hæst. ■ Litu á VG sem sameiginilega ógn STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri hreyfingar- innar - græns framboðs, rifjaði upp kosningabaráttuna síðasta vor í setningarræðu sinni á lands- fundi flokksins í Hveragerði í gær. Steingrímur kvaðst ánægður með þátt VG í baráttunni og sagði flokkinn hafa háð málefnalega baráttu. „Við vorum sjálfum okk- ur samkvæm í því að vilja heyja málefnalega og ábyrga kosninga- baráttu,“ sagði hann. „Við fórum ekki á loforðafyllerí.“ Hann sagðist telja að VG hafi goldið þess að hafa í skoðanakönn- unum mælst með hátt fylgi því sökum þess hefðu aðrir flokkar byrjað að líta á flokkinn sem sam- eiginlega ógn. Steingrímur gagnrýndi kosn- ingabráttu framsóknarmanna. „Framsóknarflokkurinn lagðist að mínu mati flatur í ömurlegri aug- lýsingamennsku, froðu og lág- kúrupólitík. Flokkurinn auglýsti sem hann væri félagshyggju- flokkur í stjórnarandstöðu, réðist jafnvel á eigin verk og auglýsti fyrir þjóðinni ófremdarástand til dæmis í húsnæðismálum, mála- flokki sem Framsókn hafði þá sjálf farið með í ríkisstjórn í átta ár.“ Formaður VG sagði að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi ekki haft erindi sem erfiði þrátt fyrir „stór- karlaleg loforð“ og um Samfylk- inguna sagði hann að það hefði haft úrslitaáhrif í kosningabarátt- unni þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hafi neitað að skil- greina víglínu kosninganna sem val á milli stjórnar og stjórnar- andstöðu. Steingrímur telur að línur í pólitíkinni hafi skýrst enn frekar eftir kosningar og harmaði stefnu Samfylkingar í heilbrigðismálum eins og hún kom fram á lands- fundi flokksins fyrir viku. Sökum áherslna Samfylkingar segir Steingrímur að víglínur íslenskra stjórnmála hafi skýrst. Vinstri- hreyfingin - grænt framboð sé með miklu skýrari hætti en fyrr eini valkostur vinstri manna í landinu. Steingrímur gagnrýnir for- sendur umræðna um kostnað við heilbrigðisþjónustu og bendir á að vegalengdir og fámenni geri það að verkum að sumir þættir heil- brigðisþjónustunnar séu dýrari hér en annars staðar. Hann vill að aukin áhersla verði lögð á for- varnir og fyrirbyggjandi aðgerðir í heilbrigðiskerfinu; þannig megi draga úr kostnaði. thkjart@frettabladid.is Pósthúsum lokað: Ótti við miltisbrand WASHINGTON, AP Póstmiðstöð í Was- hington sem flokkar stjórnarráðs- póst var lokað á meðan yfirvöld rannsökuðu hvítt duft sem fannst við reglubundið eftirlit. Grunur lék á að um miltisbrand væri að ræða. Ellefu pósthúsum var lokað. Póstmiðstöðin tekur meðal ann- ars á móti pósti til Hvíta hússins. Nokkur sýni voru send til rann- sóknar en ekki liggur fyrir hvort um miltisbrand var að ræða. Nokkrum starfsmönnum var gefið mótefni. Litlar líkur eru taldar á því að þeir hafi skaðast þar sem pósturinn sem fer í gegnum mið- stöðina er dauðhreinsaður. ■ GÓÐIR FÉLAGAR Vel fór á með Vladimir Pútín og Silvio Berlusconi í vikunni. Ummæli Berlusconis: Varði Pútín EVRÓPUSAMBANDIÐ Framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins hefur neitað að taka undir ummæli Sil- vios Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, um Vladimir Pútín Rúss- landsforseta og olíufyrirtækið Yukos. Berlusconi, sem nú gegnir embætti forseta Evrópusam- bandsins, lýsti yfir stuðningi við aðför Pútíns að æðstu yfirmönn- um Yukos og aðgerðir Rússa í Tsjetsjeníu. „Við erum ekki sammála for- sætisráðherranum Berlusconi, hvorki hvað varðar Yukos né stöð- una í Tsjestjeníu“ sagði talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, Reijo Kemppinen. ■ Íslensk fyrirtæki: Álíka afkoma ATHAFNALÍF Forráðamenn rúmlega helmings fyrirtækja innan Sam- taka atvinnulífsins búast við því að afkoma fyrirtækja sinna verði svipuð á næstu mánuðum og hún hefur verið undanfarið samkvæmt könnun samtakanna. Niðurstaðan er nokkurn veginn sú sama og í sambærilegri könnun fyrir ári síð- an. Nú telja 52% afkomuna verða svipaða áfram en 55% voru þeirr- ar skoðunar fyrir ári. Tæpur þriðjungur, eða 30%, tel- ur afkomuna verða betri en nú er og er það litlu meira en í fyrra. 16% telja hins vegar að afkoman verði verri. ■ NÝI RÍKISSTJÓRINN Saksóknari hefur hvatt Arnold til að láta óháða aðila rannsaka ásakanir á hendur honum um kynferðislega áreitni. Arnold Schwarzenegger: Vafasöm fortíð KALIFORNÍA, AP Arnold Schwarzen- egger, nýkjörinn ríkisstjóri Kali- forníu, ætlar að ráða einkaspæj- ara til að fara ofan í saumana á ásökunum um að hann hafi áreitt fjölda kvenna kynferðislega. Þegar kosningabaráttan stóð yfir komu fram sextán konur sem fullyrtu að Schwarzenegger hefði káfað á þeim eða áreitt þær með öðrum hætti á tímabilinu 1975 til 2000. Saksóknari í Kaliforníu hef- ur varað Schwarzenegger við því að þessar ásakanir muni ekki gufa upp og ráðlagt honum að láta óháða aðila rannsaka málið. ■ Áhrif kannabisefna: Lina þján- ingar MS- sjúklinga LUNDÚNIR Umfangsmikil rannsókn á áhrifum kannabisefna bendir ótvírætt til þess að slík efni geti linað þjáningar MS-sjúklinga. Einnig þykir sannað að kannabis- efni geti aukið hreyfigetu. Rannsóknin, sem tók til 657 sjúklinga, birtist í læknatímarit- inu Lancet. Vísindamennirnir sem stóðu að rannsókninni benda á að þessar niðurstöður séu vatn á myllu þeirra sem krefjast þess að notkun kannabisefni í lækninga- skyni verði heimiluð. ■ SVEITARSTJÓRNARMÁL Mörg sveitar- félög standa frammi fyrir því að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfé- laga eru langt frá því sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlunum ársins. Ástæðan er sú að úthlutun- arreglum sjóðsins var breytt þeg- ar komið var fram á fjárlagaárið en engar upplýsingar um slíkt bárust sveitarstjórnum. Skekkir þetta langtímaáætlanir sveitarfé- laganna verulega og er mikil óá- nægja meðal margra sveitar- stjórnarmanna með gang mála. „Þetta kemur afskaplega illa við okkur hér í Sandgerði,“ segir Óskar Gunnarsson, forseti bæjar- stjórnar Sandgerðinga. Við greiðslur á framlögum ársins frá sjóðnum var stuðst við framlög ársins 2002 og er því búið að of- greiða bæjarfélaginu 18 milljónir á árinu. „Þetta þyngir allan róður fyrir okkur og setur stórt strik í áætl- anir fram í tímann. Það má nánast segja að okkar áætlanir til næstu ára séu í raun ónýtar vegna þessa.“ Óskar segir að beðið sé við- bragða frá starfsfólki Jöfnunar- sjóðs en tvær vikur eru síðan er- indi Sandgerðinga barst inn á borð þeirra. „Við settum allt í bið- stöðu um leið og þetta var ljóst og á meðan það liggur ekki fyrir hvert framhaldið er þá leggjum við ekki í neinar framkvæmdir.“ ■ Afnotagjöld hækka um 5%: Útvarpsstjóri vildi 22,5% hækkun TÓMAS INGI OLRICH Lagði til 5% hækkun á afnotagjöldum. Út- varpsstjóri vildi að hún yrði 22,5% Breyttir útreikningar Jöfnunarsjóðs: Þyngir róður sveitarfélaga FRÁ SANDGERÐI Áætlanir bæjarfélagsins eru í uppnámi eftir að útreikningum Jöfnunarsjóðs var breytt án viðvörunar. Landsfundur Vinstri grænna var settur í gær. Í setningarræðu gagn- rýndi Steingrímur J. Sigfússon stjórnarflokkana og Samfylkinguna harðlega. Hann segir að VG sé eini valkostur vinstri manna á Íslandi. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Formaður Vinstri grænna segir að sökum áherslna Samfylkingar hafi víglínur íslenskra stjórnmála skýrst. Vinstri grænir séu með miklu skýrari hætti en fyrr eini valkostur vinstri manna í landinu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P AL D ÍS FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.