Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 38
38 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR SKELLA Neamat Badawy frá Egyptalandi skellir hér boltanum á vörn Suður-Kóreu á meðan landa hennar Dina Youssef fylgist spennt með. Suður-Kórea vann leikinn. Blak FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson verður að öllum líkindum í byrj- unarliði Charlton sem fær Fulham í heimsókn í tólftu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Íslenski landsliðsmaðurinn hefur leikið vel frá því hann steig upp úr meiðslum og skoraði meðal ann- ars fyrsta mark sitt fyrir Charlton fyrir skömmu. „Þetta er búið að rúlla ágæt- lega hjá okkur. Fjórir sigrar í síð- ustu fimm leikjum,“ sagði Her- mann í samtali við Fréttablaðið. „Við höfum spilað flesta leikina vel og það hefur verið stígandi hjá okkur. Með fleiri stigum kemur meira sjálfstraust og þá njóta menn sín betur.“ Charlton hefur komið talsvert á óvart í vetur þó margir leik- manna liðsins hafi átt við meiðsli að stríða. Hermann býst við að Ítalinn Paolo Di Canio komi aftur inn í byrjunarlið Charlton. Charlton er í sjöunda sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Fulham og Manchester City en verri markatölu. Mikil spenna er fyrir Lundúna- slag Arsenal og Tottenham. Sol Campbell mætir sínum gömlu fé- lögum úr Tottenham en Patrick Vieira verður sem fyrr frá vegna meiðsla. Arsenal er á toppi deild- arinnar og er eina liðið sem hefur ekki tapað viðureign. Mikil vonbrigði eru í herbúð- um Tottenham þar sem gengið hefur ekki verið sem skyldi. Liðið er í tólfta sæti deildarinnar með tólf stig. Freddie Kanoute er frá vegna meiðsla og sömu sögu er að segja af þýska varnarmanninum Christ- ian Ziege. Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar í Úlfunum mæta spút- nikliði Birmingham á heimavelli. Trúlegt þykir að Jóhannes Karl verði í byrjunarliðinu eins og í síðasta leik en þó nokkrir leik- menn Úlfanna eru meiddir. Þar á meðal eru Colin Cameron, Nathan Blake, Hassan Kachloul og Isaac Okoronkwo. Alex Rae kemur þó aftur inn í liðið. Sterkur varnarleikur hefur verið aðalsmerki Birmingham en liðið hefur aðeins fengið á sig sjö mörk í ellefu leikjum. Liðið hefur þó átt í erfiðleikum með að skora mörk og hefur aðeins komið bolt- anum tíu sinnum í netið í ellefu leikjum. Úlfarnir eru hins vegar það lið sem hefur fengið flest mörk á sig, 23 talsins. ■ Framkvæmdastjóri FA: Afþakkaði boð United FÓTBOLTI Mark Palios, fram- kvæmdastjóri enska knattspyrnu- sambandsins, FA, afþakkaði boð Manchester United um að vera heiðursgestur á leik félagsins. Knattspyrnusambandið og United greinir á um margt þessa dagana og er mál Rio Ferdinand þar fyrirferðarmest. Talið er að Palios vilji með þessu sýna hver hafi hús- bóndavaldið í enska boltanum. Ummæli sir Alex Ferguson um að Arsenal hafi samið við knattspyrnusambandið um agamál hafa ekki bætt andrúmsloftið milli FA og United. Talið er ólíklegt að Ferguson sleppi við refsingu vegna ummælanna enda gæti það gefið öðrum röng skilaboð. ■ LEIKIR DAGSINS: Wolves - Birmingham Arsenal - Tottenham Aston Villa - Middlesbrough Bolton - Southampton Charlton - Fulham Portsmouth - Leeds United STAÐAN: L U J T Mörk Stig Arsenal 11 8 3 0 23-9 27 Chelsea 11 8 2 1 21-9 26 Man. Utd. 11 8 1 2 21-6 25 Birmingh. 11 5 4 2 10-7 19 Man City 11 5 3 3 22-12 18 Fulham 11 5 3 3 21-15 18 Charlton 11 5 3 3 16-14 18 Liverpool 11 5 2 4 17-12 17 Newcastle 11 4 4 3 16-13 16 South. 11 4 4 3 10-7 16 Portsm. 11 3 3 5 11-15 12 Tottenham 11 3 3 5 10-14 12 Aston Villa 11 2 5 4 9-13 11 Middlesbro 11 3 2 6 9-15 11 Bolton 11 2 5 4 9-19 11 Everton 11 2 4 5 12-15 10 Wolves 11 2 3 6 7-23 9 Leicester 11 2 2 7 16-21 8 Hermann Hreiðarsson segir aukið sjálfstraust ríkja í herbúðum Charlton. Liðið hefur leikið vel í síðustu leikjum og mætir Fulham í dag. Stígandi hjá Charlton FÖGNUÐUR Hermanni Hreiðarssyni var vel fagnað þeg- ar hann skoraði fyrsta mark sitt fyrir Charlton á leiktíðinni fyrir skömmu. ARSENAL Arsenal getur náð fjögurra stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni í dag með sigri á Totten- ham. Manchester United og Chelsea leika á morgun. HANDBOLTI „Þetta er bara hörkulið, virkilega gott sænskt hand- boltalið,“ sagði Árni Stefánsson, þjálfari HK um Drott, sem HK leikur gegn í Evrópukeppni bikar- hafa í dag. Leikurinn verður í Gautaborg og hefst klukkan 15 að íslenskum tíma. „Þeir spila dæmigerðan hraðan og teknískan sænskan handbolta. Magnus Andersson þjálfar þá en hann var einhver skemmtilegasti handboltamaður í heimi á sínum tíma. Hann leggur greinilega upp með að þeir spili eitthvað svipað og hann gerði.“ Drott er í fimmta sæti deildar- innar eftir átta umferðir. „Þeir hafa ekki alveg náð sér á strik í deildinni en hafa verið að bæta sig,“ sagði Árni. „Þeir hafa verið að spila skemmtilegan bolta og þetta er talið eitt af þremur, fjór- um skemmtilegustu liðunum í Sví- þjóð.“ „Ég tel að með toppleik getum við alveg strítt þeim,“ sagði Árni. „Þá á ég við að við náum sama varnarleik og markvörslu og gegn Rússunum í síðustu umferð. Ég vil fara í þennan leik af full- um krafti og ná góðum úrslitum og svo getum við hugsanlega unnið þá heima og farið áfram. Þetta er það sem ég vil. Mér finnst þetta búa í mínu liði. Við erum með hörkugott lið og þegar við smellum og náum að sýna okkar sterkustu hliðar erum við í góðum málum.“ ■ Evrópukeppni bikarhafa: Við getum alveg strítt þeim HK „Við erum með hörkugott lið,“ segir Árni Stefánsson, þjálfari HK, sem mætir Drott í Evrópukeppni bikarhafa í dag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.