Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar EIRÍKS JÓNSSONAR Faðir & sonur Jólabæklingur IKEA - aðeins á Netinu! www.IKEA.is Mikið mál að eiga son. Sérstak-lega ef maður á bara einn. Margt að kenna og enn meira að læra hjá þeim litla sem vex eins og grasið. Hægt og hljótt. Í sjálfu sér þarf ekki að hafa mörg orð um blómin og býflugurnar á meðan sjónvarpið er í gangi með tilheyr- andi kossaflensi og ástríðum sem engan enda ætla að taka. Meira að segja hjá hommum og lesbíum á kjörtíma. ÁSTALÍFIÐ kemur af sjálfu sér eins og annað í dýrafræðinni. Helst að maður reyni að benda á að lítið sé varið í að kyssa stelpu nema mann langi virkilega mikið til þess. Hitt er mikilvægara að senda son- inn ekki út í lífið án þess að kunna að ferðast. Að lifa er að ferðast. Finna andardrátt heimsins með lykt og lit og hafa vit á því að komast á milli staða án þess að geggjast. ÞVÍ lögðum við feðgar í langferð. Alla leið til Old Trafford undir því yfirskyni að sjá Manchester United baka Portsmouth. Sem þeir reyndar gerðu 3-0. Þar stóð minni útgáfan af sjálfum mér rétt við hliðarlínuna á þessum frægasta knattspyrnuvelli Evrópu og komst í augnsamband við Nistelrooy, Keane, Giggs og Forlan. Sjaldan hafa jafn ung augu orðið jafnstór og þarna í hauststill- unni í Manchester. SJÁLFUM fannst mér leikurinn eins og viðureign Vals og Fram á Laugardalsvelli sumarið ‘75. En var einn um þá skoðun á vellinum þar sem 70 þúsund manns hrópuðu ákaft og nær látlaust í 2x45 mínútur. Og sonurinn gaf sig allan í leikinn. Í eft- irvæntingunni og sigurvímunni fyr- ir og eftir leik reyndi ég af varfærni að kenna syninum undirstöðuatriði ferðamennskunnar. AÐ pakka rétt í tösku. Passa upp á sitt. Spyrja til vegar. Nota götukort. Kaupa lestarmiða. Læra á neðan- jarðarkerfið. Og síðast en ekki síst: Njóta þess að vera þar sem enginn þekkir mann og stöðugt að sjá eitt- hvað nýtt. Taka á sig krók til þess eins að fara götu sem ekki hefur verið farin áður. Með þeim orðum að aldrei sé að vita hvað bíði hand- an hornsins. Þar gæti tækifæri lífs- ins leynst. HANN var fljótur að læra. Kom til baka ferðbúinn - fyrir lífið. Næst getur hann farið einn. ■ Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IK E 22 74 1 11 .2 00 3 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 3 STRÅLA aðventuljós SAMLAS kerti 195,- MINNAS kerti 12 sm 225,- SAMLAS kerti 5 stk. 495,- SAMLAS sprittkertastjakar 195,- STRÅLA ljós 995,- STRÅLA aðventuljós 2.690,- 3.900,- Kveikjum ljós... www. .is Taktu þátt í spjallinu á ...

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.