Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 16
16 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR Ég hef haft áhuga á náttúr-unni og dýrum frá því ég var barn og minnist þess í raun ekki að ég hafi nokkurn tíma ekki haft áhuga á þessu enda held ég að öll börn heillist af þessum hlutum“, segir Sir David Atten- borough sem hefur um áratuga skeið fært sjónvarpsáhorfend- um magnaða náttúru og fjöl- skrúðugt dýralíf heim í stofu með vinsælum sjónvarpsþáttum sínum. „Ég valdi mér þennan starfs- vettvang vegna þess hversu ánægjulegur hann er. Það er fátt skemmtilegra en að fylgjast með náttúrunni.“ Attenborough hefur ferðast um hnöttinn þver- an og endilangan og kynnt sér lifnaðarhætti flestra dýrateg- unda en treystir sér þó ekki til að nefna neitt eitt, sérstakt upp- áhaldsdýr. „Ég hef þó mikinn áhuga á fuglum og hef fylgst með fuglum frá því að ég var barn.“ Kjörið sjónvarpsefni Bók Attenboroughs, Heimur spendýranna, kom út hjá Iðunni á dögunum og af því tilefni sótti hann Ísland heim og hélt meðal annars fyrirlestur um þá marg- víslegu myndatökutækni sem beitt er við gerð þátta sinna og hvernig þróun myndavélanna hefur leitt til nýrra uppgötvana. Attenborough segir aðspurður að sjónvarpið sé miðill sem henti efni af því tagi sem hann fram- leiðir ákaflega vel: „Kvikmynda- iðnaðurinn hefur nær algerlega vanrækt náttúru- og dýralífs- myndir og ég held að það liggi í augum uppi að ástæðan sé fyrst og fremst sú að þegar þú ferð í kvikmyndahús viltu sjá eitthvað sem stendur yfir í tvær til þrjár klukkustundir svo það taki því nú að eyða kvöldinu í bíóferð. Það er auðvitað ákaflega erfitt að halda athygli áhorfandans í þennan tíma án þess að hafa söguþráð og að því leyti lúta náttúrulífsmynd- ir öðrum lögmálum og framvind- an og „söguþráðurinn“ er allt öðruvísi. Sjónvarpið þrífst, aftur á móti, á þáttum sem eru á bilinu hálf til ein klukkustund að lengd og er því alveg kjörið til þess að dreifa náttúrulífsmyndum.“ Attenborough segist ekki gera þætti sína með neinn sérstakan markhóp í huga. „Það er nú það skemmtilega við náttúrulífsþætt- ina að þeir geta höfðað til allra. Mér er til dæmis minnistætt að eftir einn þáttinn fékk ég bréf frá sjö ára barni sem var alveg heillað en þessi sami þáttur gaf einnig prófessor nokkrum ástæðu til að skrifa mér og lýsa yfir ánægju sinni með þáttinn. Þannið að ég held að þessir þættir höfði til allra frá átta ára aldri til 88 ára, auk þess sem allar manngerðir á öllum menntunarstigum virðast finna eitthvað við sitt hæfi í náttúrunni.“ Fallegir fuglar og óvæntar uppákomur Attenborough er heimilisvin- ur Breta og með þekktari nöfn- um í fjölmiðlabransanum þar í landi. Hann á ekki síður traustan hóp aðdáenda á Íslandi eins og sást best á aðsókninni á fyrir- lestri hans í Salnum. Aðgangur var ókeypis á meðan húsrúm leyfði og hundruðir þurftu frá að hverfa þannig að það hefði sjálf- sagt verið hægur vandi að selja inn á fyrirlesturinn og fylla stóra salinn í Háskólabíói. Þeir sem voru svo heppnir að fá sæti í Salnum segja þó að það hefði dregið nokkuð úr áhrifunum þar sem það sé einstök tilfinning að hlusta á Attenborough í návígi. Þessi mikli áhugi Íslendinga koma Attenborough í opna skjöl- du þó hann segi land og þjóð, að vísu, aldrei hætta að koma sér á óvart. „Það er svo margt við Ísland sem kemur á óvart. Ég er til að mynda alveg gáttaður á því hver- su mörg útgáfufyrirtæki starfa á þessu fámenna landi. Ég hef ekki borið þetta nákvæmlega saman við Bretland en það er alveg ljóst að við höfum ekki nærri því jafn mikið af virkum útgefendum á Bretlandi þegar miðað er við mannfjölda og framboðið á ís- lenskum þýðingum erlendra verka er með ólíkindum. Ég hef komið hingað fimm eða sex sinn- um áður og hef ferðast þó nokk- uð um landið. Ég kom hingað þegar Surtsey birtist fyrst og svo fór ég þangað þegar hún var um það bil 10 ára gömul og svo kom ég líka til Íslands síðast þegar Hekla gaus. Hún er enn þá að gjósa er það ekki? Ég hef líka komið hingað sérstaklega til að filma fugla og í tilefni af útgáf- um fleiri bóka eftir mig.“ Attenborough hefur rannsak- að dýr út um allan heim og því mætti ætla að honum þætti ís- lenskt dýralíf frekar fábrotið þar sem sauðkindin stenst varla sam- anburð við þær skepnur sem spóka sig til dæmis á sléttum Afríku. „Þið eigið mikið af mjög áhugaverðum og fallegum fugl- um sem eru endalaus uppspretta efnis.“ Heimurinn er stór Attenborough segir fugla sér- staklega heillandi skepnur og segist ekki efast um það að þeir séu útbreiddasta og dugmesta dýrategund á jörðinni. „Það seg- ir ekki alla söguna að horfa á fugl og dást að fegurð hans. Stór hluti tilveru hans er okkur hulinn og við vitum sáralítið um hann. Ég hef leitast við það í þáttum mínum að opna fólki leið inn í hugarheim fuglsins. Fuglar fljú- ga langt út á sjó, þeir kafa og lifa á heimskautunum. Þeir hafa lagt himinhvolfið undir sig og eru á flugi nánast allt sitt líf.“ Attenborough er um þessar mundir að vinna að þáttaröð um köngulær, flugur og aðrar smá- verur sem oft enda ævina í fugls- goggi. „Ég hef mikinn áhuga á köngulóm, drekaflugum og öðr- um smádýrum sem hösluðu sér völl á jörðinni langt á undan stærri dýrum.“ Attenborough bætir því við að hann sé yfirhöf- uð heillaður af öllum skepnum. „Það er ekki aðalmálið hvort um er að ræða fugl, könguló eða apa. Ég hef áhuga á því hvað þau gera og ekki síður hvers vegna. Þess- ar spurningar eru rauði þráður- inn í þáttum mínum.“ Þrátt fyrir að Attenborough hafi ferðast út um allar trissur og fest dýralíf á filmu í fjóra ára- tugi segist hann hvergi nærri vera búinn og hann eigi enn eftir að skyggnast í mörg skúmaskot, jafnvel í sínu næsta nágrenni. „Það eru meira að segja eftir staðir á Englandi sem ég hef ekki skoðað, að ég tali nú ekki um í Evrópu“, segir Attenborough sem fullyrðir að hann hafi aldrei lent í lífsháska á öllu sínu flakki með myndavélina fyrir framan dýr merkurinnar. thorarinn@frettbladid.is Eitthva› fyrir alla! BARNABÆKUR • ÆVISÖGUR • SPENNUSÖGUR SJÁLFSHJÁLPARBÆKUR • LJÓÐ • DULRÆNT EFNI MATREIÐSLUBÆKUR • SKÁLDSÖGUR • ÞJÓÐLEGUR FRÓÐLEIKUR • HESTABÆKUR • ÁSTARSÖGUR • SPENNUSÖGUR O.FL . Grensásveg i 14 - bakhús • 108 Reyk jav ík • S ími : 588-2400 Fax: 588 8994 • Net fang: sk ja ldborg@sk ja ldborg . is BÓKAÚTGÁFA OPIÐ: 9-18 virka daga 10-17 laugardaga 13-17 sunnudaga David Attenborough staldraði við á Íslandi í vikunni og hélt fyrirlestur fyrir troðfullu húsi. Hann hefur komið hingað nokkrum sinnum áður og meðal annars drepið niður fæti á Surtsey, horft á Heklu gjósa og skoðað íslenska fugla sem heilla hann sérstaklega. Öll dýrin mín stór og smá SIR DAVID ATTENBOROUGH: Segir þolinmæðina mikilvægan þátt í starfi sínu. „Þekking á viðfangsefninu verður þó alltaf mikilvægust. Ef þú ert til dæmis að eltast við farfugla þýðir ekkert að mæta með myndatökuvélina til Íslands í desember. Innsæi og skilningur eru númer eitt. Síðan kemur þolinmæðin.“ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.