Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 08.11.2003, Blaðsíða 43
virkni lípasa í efnasmíðum á fituefnum í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Dokt- orsvörnin og er öllum opin.  14.00 Nanna Hermansson heldur fyrirlestur í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, um Norðurlöndin á tím- um Napóleons. Nanna er þjóðhátta- fræðingur að mennt og var borgarminja- vörður í Reykjavík 1974-1984, en síðan landsminjavörður í Suðurmannalandi í Svíþjóð og borgarminjavörður í Stokk- hólmi frá 1992. ■ ■ FUNDIR  13.30 Aðalfundur Listvinafélags Hallgrímskirkju, sem frestað var sl. vor, verður haldinn í Hallgrímskirkju í dag. Fundurinn hefst með stuttri tónlistardag- skrá í kirkjunni, þar sem Mótettukór Hallgrímskirkju og Schola cantorum syn- gja undir stjórn Harðar Áskelssonar. Að- alfundarstörf fara síðan fram í suðursal kirkjunnar. ■ ■ SAMKOMUR  10.30 Hátíðarhöld verða í Landa- koti í Reykjavík í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að Montfortreglan hóf störf fyrir kaþólsku kirkjuna á Íslandi. Aðgangur er öllum heimill. Dagskráin hefst með Biskupsmessu í Kristskirkju.  13.00 Opið hús verður í Snorra- stofu í Reykholti. Gestum og gangandi er boðið að skoða húsakynni stofnunar- innar og jafnframt kynna sér þá starf- semi sem þar fer fram. Gestum verður boðið að skoða bókhlöðu Snorrastofu og sýninguna Snorri Sturluson og sam- tíð hans. ■ ■ SÝNINGAR  Í Þjóðarbókhlöðunni standa nú yfir þrjár sýningar: Smekkleysusýningin Humar eða frægð, sýning um Land- nemann mikla, Stephan G. Stephans- son, og sýning um Óskar Ingimarsson, sagnfræðing, þýðanda og þul.  Hinn þekkti bandaríski listamaðurinn David Diviney er með sýninguna „Foxfire“ í Kling og Bang gallerí, lauga- vegi 23.  Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýn- ing á verkum eftir Karl Guðmundsson og Rósu Kristínu Júlíusdóttur. Þetta er þriðja sýningin í röð myndlistarsýninga listahátíðarinnar List án landamæra í norðursal Kjarvalsstaða, nýjum sal Lista- safns Reykjavíkur.  Yfirlitssýningu á verkum Júlíönu Sveinsdóttur í Listasafni Íslands, „Vefur lands og lita - Júlíana Sveinsdóttir“, lýkur á morgun. Á sýningunni eru málverk og myndvefnaður og spannar hún allan fer- il Júlíönu sem er einn af frumkvöðlun- um í íslenskri myndlist og ein fyrsta ís- lenska konan sem gerði myndlist að ævistarfi sínu.  Opnuð hefur verið sýning í Barna- spítala Hringsins á myndum sem gerð- ar hafa verið í listasmiðjunni Gagn og gaman í Gerðubergi í Reykjavík.  Á neðri hæðinni í Gerðarsafni í Kópavogi stendur yfir sýning Huldu Stefánsdóttur, Leiftur, þar sem hún tefl- ir saman óræðum ljósmyndum og ein- tóna málverkum. Í austursalnum efri hæðarinnar eru valin málverk úr einka- safni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur, sem hef- ur að geyma margar af perlum frum- herja íslenskrar málaralistar.  Ljósmyndasafni Reykjavíkur á 6. hæð í Grófarhúsinu stendur yfir yfirlits- sýning á verkum Magnúsar Ólafssonar (1862-1937), eins helsta frumherja í ís- lenskri ljósmyndun. Verk Magnúsar, sem eru kjölfestan í safneign Ljósmyndasafns Reykjavíkur, varpa ljósi á tímabilið frá aldamótum 1900 fram undir miðbik 20. aldar. Safnið er opið 12-19 virka daga, 13-17 um helgar. Sýningin stendur til 1. desember. Aðgangur er ókeypis.  Í skartgripabúðinni Mariella, Skóla- vörðustíg 12, stendur yfir sýning á perl- um og ýmsu er þeim viðkemur.  Sýningin „Humar eða frægð - Smekkleysa í 16 ár“ stendur yfir í Þjóð- arbókhlöðunni í Reykjavík. Menningar- borgarsjóður styrkir sýninguna, sem stendur til 23. nóvember.  Á Kjarvalsstöðum er til sýnis brot af verkum Jóhannesar S. Kjarval.  Þórdís Þórðardóttir, listakona á Eyr- arbakka, sýnir vatnslita, pastel og tepokamyndir í Rauða húsinu, Eyrar- bakka. Sýningin stendur til 19. nóvem- ber.  Á bókasafni Háskólans á Akureyri stendur yfir sýning Stefáns Jónssonar myndlistarmanns. Sýningin, sem Stefán nefnir „Listaverkahrúga“, stendur fram í miðjan nóvember. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. LAUGARDAGUR 8. nóvember 2003 43 Dansleikur ársins! Jazzhátíðardansleikur með fönksveitinni JAGÚAR á NASA laugadag 8. nóvember kl. 00.30 - 04.00 Komið og skemmtið ykkur þar sem fjörið verður á laugardag! Forsala aðgöngumiða í JAPIS Laugavegi og UppplýsingmiðstöðFerðamanna, Aðalstræti 2. www.ReykjavikJazz.com/ Í kvöl d Ídag klukkan þrjú verður Sinfón-ían aftur í bíóstuði og spilar und- ir þremur stuttmyndum frá þögla tímabilinu eftir höfuðsnillingana þrjá, Buster Keaton, Harold Lloyd og Charles Chaplin. Eftir Keaton verður sýnd myndin Járnsmiðurinn frá árinu 1922. Þar segir frá ævintýrum Busters á járnsmíðaverkstæði þar sem bæði hestar og bifreiðar koma við sögu. Mynd Lloyds er Draugafár frá 1920. Sú mynd er sprenghlægileg drauga- og ástarsaga. Rúsínan í pylsuendanum er svo Chaplin- myndin Ævintýramaðurinn frá 1917. Þar segir frá ævintýrum litla flækingsins þegar hann sleppur úr hinu illræmda Sing Sing fangelsi. Stjórnandi Sinfóníuhljómsveit- arinnar er Richard Benjamin, sem er mikill áhugamaður um kvik- myndatónlist þögla tímabilsins. Miðaverð er 2000 krónur fyrir fullorðna og 1000 krónur fyrir börn yngri en 12 ára. ■ Bókið hópa núna! Keramik fyrir alla, Laugavegi 48b, sími 552 2882, www.keramik.is Opið alla virka daga kl. 11-18, laugardaga 13-17, opið hús miðvikudagskvöld kl. 20-23. Hvernig fannst þér í Keramik fyrir alla? - Mér fannst frábært og kem aftur með vinkonu mína næst Kristín 10 ára ■ TÓNLEIKAR HAROLD LLOYD Harold Lloyd var einn þriggja höfuðsnillinga þöglu grínmyndanna í Bandaríkjunum. Hinir voru Buster Keaton og Charlie Chaplin. Meira Sinfóníubíó HÁDEGISDJASS MEÐ RAGNHEIÐI GRÖNDAL Hádegisdjass á Hótel Borg fylgir jafnan Jazzhátíð Reykjavíkur. Þetta árið sér Hljómsveit Ragnheiðar Gröndal um fjörið. Með henni leika bróðir hennar Haukur altósaxófónleikari, Jón Páll Bjarnason gít- aristi, Róbert Þórhallsson á bassann og Eric Qvick á trommur. Tónleikarnir hefjast á hádegi og standa til klukkan tvö. Matur er innifalinn í miðaverðinu. FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.