Fréttablaðið - 08.11.2003, Side 14

Fréttablaðið - 08.11.2003, Side 14
Toshiki Toma, prestur innflytj-enda, er 45 ára í dag. Hann ætl- ar að halda upp á daginn með því að elda góðan mat fyrir vini sína og halda þeim dálítið teiti heima hjá sér. „Ég hef gaman af að elda mat og ég býst við að ég eldi sambland af kínverskum og japönskum mat og bjóði gestum mínum,“ segir hann. Toshiki er japanskur en hefur búið á Íslandi meira en tíu ár. Hann talar íslenskuna mjög vel og hefur vakið athygli fyrir skeleggan mál- flutning. „Mér finnst ég nú ekki tala nógu vel en hef gaman af að skrifa, finnst það alls ekki erfitt,“ segir hann. Hann segir að í Japan haldi fólk ekki almennt upp á afmælisdaga sína; það séu aðeins börn og gamal- menni sem það geri. „Í Japan þótti það hár aldur að ná því að verða sextugur og ástæða til að halda veg- lega upp á það. Einstaka sinnum halda menn upp á afmæli sem ber upp á tug en mér líkar ágætlega sá siður að menn haldi upp á afmæli sitt,“ segir hann. Toshiki er fráskilinn og á tvö börn sem oft koma til hans. Þess á milli yrkir hann ljóð og hefur gam- an af því að leika sér með orð. „Það er aldrei að vita nema það komi út ljóðabók en ég birti ljóð mín á www.ljod.is og eru þar nokkur ljóða minna og fleiri skálda,“ segir hann. Veðrið á Íslandi er Toshiki að skapi og finnst honum aldrei vera hér slæmt veður. „Mér líka allar tegundir af veðri og það hefur aldrei nein neikvæð áhrif á mig.“ segir Toshiki Toma, prestur inn- flytjenda, sem semur svona ljóð í frístundum: Örsmár geimur í blómvendi. Fegurð fullkomnast í andartaki og birtir svip eilífðar í höndum mínum ...fyrir þig. ■ 14 8. nóvember 2003 LAUGARDAGUR ■ Jarðarfarir Adolf Hitler gerði fyrstu til-raun sína til þess að ná völd- um í Þýskalandi að kvöldi 8. nóv- ember árið 1923. Hann réðst ásamt þrjótum sínum í Nasista- flokknum á bjórhöllina í München. Allt fór það þó út um þúfur. Hugmyndin var sú að byrja á landstjórninni í Bæjaralandi, sem þá var einmitt saman komin þar í bjórhöllinni á fundi með við- skiptajöfrum. Í framhaldinu átti að leggja til atlögu við sjálfa ríkisstjórnina í Berlín, þegar þýski herinn væri genginn til liðs við nasistana. Hermann Göring umkringdi bjórhöllina ásamt hópi manna. Hitler réðst síðan til inngöngu ásamt félögum sínum, skaut upp í loftið og lýsti því yfir að „bylting þjóðarinnar“ væri hafin. Ráðamennirnir á staðnum féll- ust nauðugir á að afhenda Hitler völdin, en strax morguninn eftir skipuðu þeir hersveitum sínum að ráða niðurlögum nasistanna. Þremur dögum síðar var Hitler handtekinn og dæmdur í fimm ára fangelsi. Áratug síðar var nasistaforing- inn hins vegar orðinn allsráðandi í Þýskalandi. ■ Afmæli TOSHIKI TOMA ■ Prestur innflytjenda er 45 ára í dag. Hann yrkir í frístundum og ferst það býsna vel úr hendi. BRAM STOKER Höfundur skáldsögunnar um Drakúla fæddist 1847 í Dyflinni á Írlandi. 8. nóvember ■ Þetta gerðist 1793 Louvre-safnið í París er opnað al- menningi. 1880 Franska leikkonan Sarah Bern- hardt kemur fyrst fram á sviði í New York. 1887 Doc Holliday, byssubófi og fjár- hættuspilari í Villta Vestrinu, deyr úr berklum. 1907 Leikkonan Katherine Hepburn fæðist. 1960 John F. Kennedy er kosinn forseti Bandaríkjanna. 1966 Ronald Reagan er kosinn ríkis- stjóri í Kaliforníu. 1994 Repúblikanar ná meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings í fyrsta sinn í 40 ár. HITLER Í FANGELSI Hitler var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir valdaránstilraunina í München. Hann not- aði tímann í fangelsinu til að skrifa ævi- sögu sína og stefnuskrá ásamt því að æfa sig í ræðuhöldum. ÁRÁS NASISTA Á BJÓRHÖLLINA Í MÜNCHEN ■ Hitler, Göring og fleiri nasistar ráðast inn á veitingastað í München, þar sem landstjórn Bæjarlands var á samkomu. 8. nóvember 1923 Eldar mat fyrir vini í kvöld Fyrsta valdaránstilraun Hitlers TOSHIKI TOMA, PRESTUR INNFLYTJENDA Veðrið á Íslandi hefur aldrei haft slæm áhrif á hann og kann hann rigningunni jafn vel og hverju öðru. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M ■ Andlát Karl Árnason, Kambi, Reykhólasveit, lést miðvikudaginn 5. nóvember. Sigurjóna Jóhannsdóttir lést miðviku- daginn 5. nóvember. Gunnhildur Sesselja Jónsdóttir frá Ás- garði, Miðneshreppi, lést miðvikudaginn 5. nóvember. Sveinsína Jónsdóttir Brekkugötu 7, Ólafsfirði, lést fimmtudaginn 6. nóvem- ber. Rósa Valtýsdóttir, síðast til heimilis í Hátúni 10a, lést fimmtudaginn 6. nóv- ember. 11.00 Guðmundur G. Bachmann Dval- arheimili aldraðra, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarnes- kirkju. 13.30 Friðrika Kristjánsdóttir frá Fremstafelli verður jarðsungin frá Þorgeirskirkju, Ljósavatni. 14.00 Sigurður A. Þorsteinsson, Borg- arbraut 65a, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju. 14.00 Katrín Lilliendahl Lárusdóttir verður jarðsungin frá Grindavíkur- kirkju. ARTIC TRUCKS er endursöluaðili PIAA PIAA LJÓSKASTARAR FYRIR ALLAR GERÐIR BIFREIÐA LAUSNIN ER LJÓS REIÐSKÓLINN ÞYRILL Reiðnámskeið hefst 11/11 Byrjenda- og framhaldsnámskeið fyrir börn og fullorðna Innritun í síma 899 4600 Bjarni 588 7887 Freydís Höfum opnað glæsilega Fótaaðgerðarstofu í Spönginni 37, 2 h. - Gott aðgengi fyrir alla Hildur Jakobsdóttir og Ólöf Högnadóttir, löggildir fótaaðgerðarfræðingar Fótaaðgerðarstofa Grafarvogs Spönginni 37, Sími 577-1088

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.